Morgunblaðið - 28.10.2016, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 8. O K T Ó B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 253. tölublað 104. árgangur
EINS KONAR
HUGLEIÐSLA
AÐ SVÍFA FRUMHERJAR ROKKSINS
JOAN JONAS LAS
ÍSLENDINGASÖGUR
OG LAXNESS
FYRIR ELDRA FÓLK OG YNGRA 41 TVÆR SÝNINGAR Á ÍSLANDI 39SVIFVÆNGJAFLUG 12
Helgi Bjarnason
Jón Þórisson
Kristján Johannessen
Stjórnarandstöðuflokkarnir fjórir
sem hafa verið í viðræðum um sam-
starf eftir kosningar tapa samanlögðu
fylgi, samkvæmt nýrri skoðana-
könnun sem Félagsvísindastofnun
Háskóla Íslands gerði fyrir Morgun-
blaðið. Flokkarnir fengju 33 þing-
menn, sem dugar til að mynda rík-
isstjórn. Fá þeir þremur
þingmönnum færri en síðasta könnun
gaf til kynna.
Bjarni Benediktsson segir að sam-
kvæmt þessu stefni í vinstristjórn á
Íslandi. Það myndi þýða „mjög veika
ríkisstjórn fjögurra flokka [...],“ segir
Bjarni. Katrín Jakobsdóttir, formað-
ur VG, segist ekki óttast að fjögurra
flokka ríkisstjórn verði veik verði hún
stofnuð.
Tveir formenn utan þings
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með
mest fylgi í þessari könnun og tekur
forystuna af Pírötum, sem voru efstir
í könnun sem gerð var um miðjan
mánuðinn. Sjálfstæðisflokkurinn
fengi 22,5% atkvæða og 16 þingmenn,
sem er heldur meira en í síðustu
könnun. Píratar fengju um 21% og 14
þingmenn, sem er minna en síðast.
Vinstri græn fengju tæp 17% og 11
þingmenn, sem er minna en í síðustu
könnunum. Viðreisn er með 11% fylgi
og Framsókn 10% og báðir flokkarnir
fengju 7 þingmenn. Björt framtíð
mælist með tæplega 7% fylgi og Sam-
fylkingin tæp 6% og báðir flokkar
fengju 4 þingmenn. Aðrir flokkar
fengju ekki menn kjörna.
Ef þetta yrðu úrslit kosninga
myndu tveir formenn stjórnmála-
flokka, sem ná mönnum á þing, ekki
fá kosningu. Það eru Oddný G.
Harðardóttir, Samfylkingu, sem
einnig var utan þings samkvæmt
könnun um miðjan október, og Bene-
dikt Jóhannesson í Viðreisn, sem býð-
ur sig fram í Norðausturkjördæmi.
Sjálfstæðisflokkur
fram úr Pírötum
Stjórnarandstöðuflokkar tapa fylgi Stefnir í veika
vinstri ríkisstjórn, segir formaður Sjálfstæðisflokksins
7Viðreisn
16Sjálfstæðisflokkurinn
Fjöldi þingsæta
22,5%
21,2%
16,8%
Píratar 14
11Vinstri græn
5,7%
4Björt framtíð
11,4%
10,2%
6,7%
4Samfylkingin
7Framsóknarflokkurinn
Fylgi stjórnmálaflokka
MKosningar »4, 5, 6 og 10
Á síðustu tveimur vikum hefur
verðbólguálag hækkað umtalsvert
og rekja sérfræðingar það helst til
þeirrar pólitísku óvissu sem sam-
fara er yfirvofandi kosningum til
Alþingis.
„Meðal fjárfesta á hlutabréfa-
og skuldabréfamarkaði fór kosn-
ingaskjálfti að gera vart við sig
fyrir tveimur vikum eða svo. Hann
hefur síðan ágerst í síðustu viku
og upphafi þessarar. Það lýsir sér
meðal annars í því að verðbólgu-
álag hefur verið að þokast upp á
við á skuldabréfamarkaði,“ segir
Agnar Tómas Möller, sjóðsstjóri
hjá fjármálafyrirtækinu GAMMA,
í samtali við Morgunblaðið.
Í tengslum við þann skjálfta
sem vart hefur orðið við á markaði
hefur Morgunblaðið rætt við for-
stjóra nokkurra stærstu fyrir-
tækja landsins. Er það samdóma
álit þeirra að sú óvissa sem rekja
má til væringa á stjórnmálasviðinu
valdi titringi í viðskiptalífinu.
Þannig bendi kannanir til að
stjórnarskipti séu fram undan og
að miðað við kosningaloforð flokk-
anna megi gera ráð fyrir minna
aðhaldi í ríkisfjármálum en verið
hefur. Sá efnahagslegi slaki sem
því muni fylgja muni óhjákvæmi-
lega leiða til aukinnar verðbólgu
og þar með stýrivaxtahækkana af
hálfu Seðlabanka Íslands.
jonth@mbl.is/ses@mbl.is » 16
Óvissan
ýtir undir
verðbólgu
Stjórnendur fyrir-
tækja áhyggjufullir
Ökumenn eru byrjaðir að huga að vetrarbúnaði
bifreiða sinna og eru verkefni að aukast á
dekkjaverkstæðum. Strákarnir á Hjólbarðaverk-
stæði Sigurjóns í Hátúni eru tilbúnir í slaginn.
Veðurspáin bendir til að árstími rúðusköfunnar,
frostlagarins og vetrardekkjanna sé að renna
upp. Leyfilegt er að setja nagladekk undir bíla 1.
nóvember og raunar fyrr ef aðstæður krefjast.
Reykjavíkurborg telur þau þó óþörf innan
borgarmarkanna. Þau slíti götum, auki elds-
neytiskostnað bifreiða og valdi óþarfa hávaða og
loftmengun.
Tími rúðusköfunnar og vetrardekkjanna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Annir fram undan hjá hjólbarðaverkstæðum landsins
Eftir fund stjórnarandstöðu-
flokkanna fjögurra í gær er það
ekki lengur ófrávíkjanleg krafa af
hálfu Pírata að næsta kjörtímabil
verði stutt og breytingar á
stjórnarskrá nái í gegn.
Birgitta Jónsdóttir lét hafa eftir
sér í viðtalsþætti Eyjunnar á Stöð 2
í febrúar að enginn afsláttur yrði
gefinn af þessari kröfu. Píratar
myndu ekki vinna með flokkum
sem ekki samþykktu það.
Hið sama sagði Smári McCarthy
á vef Eyjunnar 17. október sl.
„Við vitum þótt við séum ekki
gömul í pólitík að málamiðlanir eru
á dagskrá. Þetta er bara niður-
staðan úr samningaviðræðunum,“
segir Einar A. Brynjólfsson Pírati
við Morgunblaðið. »2
Píratar falla frá meginkröfu í viðræðum