Morgunblaðið - 28.10.2016, Blaðsíða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016
Vistvænna prentumhverfi og hagkvæmni í rekstri
Með Prent+ fæst yfirsýn, aðhald í rekstri og fyrsta flokks þjónusta.
Prent+ er þjónusta fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja hagræða
í rekstri prentumhverfis. Við aðstoðum þig við val á hagkvæmasta
prentbúnaði í samræmi við kröfur.
www.kjaran.is | sími 510 5520
Bergsveinn Birgisson tók að grafast fyrir um
það hver Geirmundur heljarskinn væri, en hans
er aðeins getið stuttlega í íslenskum fornsögum
og þó sagður göfgastur landnámsmanna og
honum lýst sem auðmanni. Í bókinni Svarti vík-
ingurinn fer Bergsveinn á slóðir Geirmundar
við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, rýnir í skjöl
og fornleifar og nýtir nýjustu tækni til að segja
sögu Geirmundar. Fyrsta útgáfa af Leitinni að
svarta víkingnum kom út á norsku og varð met-
sölubók þar í landi, en íslensk útgáfa bókar-
innar er mikið aukin og breytt.
Í skáldsögu Guðrúnar Evu Mínervudóttur,
sem hún nefnir Skegg Raspútíns, segir frá
Evu og Matta sem hafa nýlega umbylt lífi sínu
og flutt úr miðborginni til smábæjar utan
borgarmarkanna. Vandamálin vaxa og óveður-
ský hrannast upp, en þá kynnist Eva rúss-
neskumælandi garðyrkjubónda, Ljúbu, sem
segir henni litríka sögu sína og fjölskyldunnar.
Atli Sigþórsson notar listamannsnafnið Kött
Grá Pje og sendir frá sér bókina Textar sem
hefur að geyma sögu og smáprósar. Þetta er
fyrsta bók Atla en hann er þekktur fyrir rímur
sína.
Í skáldsögunni Heiða – fjalldalabóndinn segir
Steinunn Sigurðardóttir frá ungri konu sem
ákveður að gerast sauðfjárbóndi úr alfaraleið í
stað þess að verða fyrirsæta í New York. Heiða
er sannkallað náttúrubarn og er einyrki á Ljót-
arstöðum sem er efsti bær í Skaftártungu. Jafn-
framt því að sinna fimm hundruðum fjár hefur
hún barist fyrir tilveru sinni og sveitarinnar fyr-
ir austan.
Ævintýri um dauðann og saga af venjulegu
fólki eftir Unni Birnu Karlsdóttur segir frá því
er ungur maður deyr af slysförum frá konu og
syni. Í sögunni fylgist lesandinn með því
hvernig þau takast á við áfallið og eins hvernig
hann kemst burt frá þessu lífi og öðlast frið.
Í ljóðasveignum Tappi á himnum segir Eva
Rún Snorradóttir frá því hvernig það er fyrir
unga stúlku að alast upp í Breiðholti og læra
að fóta sig í lífinu.
Svartur víkingur og rússneskur garðyrkjubóndi
Eva Rún
Snorradóttir
Bergsveinn
Birgisson
Guðrún Eva
Mínervudóttir
Steinunn
Sigurðardóttir
Unnur Birna
Karlsdóttir
Veröld gefur út skáldfræðirit, skáldsögur og ljóð
Tónlistarmaðurinn Tómas Jónsson
sendir frá sér sína fyrstu plötu í
eigin nafni og ber hún nafnið Tóm-
as Jónsson. Tómasi hefur brugðið
fyrir víða í íslensku tónlistarlífi
undanfarin ár og leikið með fjöl-
breyttum hópi listamanna, bæði á
hljómleikum og á hljómplötum,
hérlendis og erlendis.
Tónlistin á plötunni er draum-
kennd og uppfull af hljóðum úr
hljóðgervlum áttunda áratugarins í
bland við akústík og nútíma-
elektróník og er að mestu leyti laus
við söng en þó kemur skáldið Sigfús
Daðason við sögu þegar hann les
eigið ljóð í laginu Að komast burt –
The City of Reykjavík.
Tómas gefur út
Tómas Jónsson
Plata Tómas gefur út sýna fyrstu plötu.
Þrjár myndir verða frumsýndar í
kvöld og þar af ein hálfíslensk.
Masterminds
Hér er á ferð mynd í leikstjórn Jar-
ed Hess með þeim Kristen Wiig,
Kate McKinnon, Jason Sudeikis,
Owen Wilson og Zach Galifianakis í
aðalhlutverkum. Myndir fjallar um
rán og afleiðingar þess.
Imdb: 58%
Doctor Strange
Hér er á ferðinni ofurhetjumynd
um dr. Stephen Vincent Strange
sem leikinn er af Benedict Cumber-
batch. Það er Scott Derrickson sem
leikstýrir myndinni en hennar hef-
ur verið beðið í ofvæni af aðdáend-
um bæði Marvel og DC.
Imdb: 83%
Child Eater
Myndin fjallar um barnfóstruna
Helen sem villist út í nærliggjandi
skóg þegar barnið sem hún passar
hverfur um miðja nótt. Erlingur
Thoroddsen leikstýrir hrollvekj-
unni sem kemur út þessa hrekkja-
vökuhelgi.
Imdb: 77%
AFP
Bíó Benedict Cumberbatch töfrandi.
Galdrar,
grín og
hrollvekja