Morgunblaðið - 28.10.2016, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.10.2016, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016 Jón Þórisson Stefán Einar Stefánsson „Meðal fjárfesta á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði fór kosninga- skjálfti að gera vart við sig fyrir tveimur vikum eða svo. Hann hefur síðan ágerst í síðustu viku og upphafi þessarar. Það lýsir sér meðal annars í því að verðbólguálag hefur verið að þokast upp á við á skuldabréfamark- aði. Það sást til dæmis í mikilli eftir- spurn í útboði ríkissjóðs í lok síðustu viku þar sem í boði voru löng verð- tryggð ríkisskuldabréf,“ segir Agnar Tómas Möller, sjóðsstjóri hjá GAMMA. „Ég held að fjárfestar búist ekki við neinum stórum áföllum til skemmri og jafnvel millilangs tíma þótt hér komi vinstristjórn. Staða hagkerfisins er einfaldlega það sterk að misvitrir stjórnmálamenn ættu ekki að geta sett það auðveldlega á hliðina. Ísland skuldar lítið og það er lítil eftirspurn eftir lánum hjá heim- ilum og fyrirtækjum. Verðbólga er búin að vera lág í langan tíma, krónan að styrkjast en vextir áfram mjög há- ir. Enda höfum við fundið fyrir mikl- um áhuga erlendra fjárfesta á Íslandi á undanförnum misserum,“ segir hann. „En auðvitað er hægt að grafa undan þeim árangri sem hefur verið náð horft fram á veginn. Verðbólgu- álagið er að hækka, sem er afleiðing af því að menn búast við að verulega dragi úr aðhaldi í ríkisfjármálum komist vinstristjórn til valda og þar af leiðandi muni verðbólga aukast og af því leiðir að vextir Seðlabankans verða hærri. Undanfarið hefur fimm ára verðbólguálag á skuldabréfa- markaði farið nálægt 2% en það er nú komið í um 2,5%. Í ljósi þess að það er engan veginn víst að hér komist til valda ríkisstjórn sem sýni mikið að- hald í ríkisfjármálum er ljóst að markaðurinn telur að slíkt myndi leiða til verðbólgu vel yfir verðbólgu- markmiði að meðaltali næstu ár,“ segir Agnar. Áhyggjur hjá forystumönnum stærstu fyrirtækja landsins Morgunblaðið hefur á síðustu dög- um átt samtöl við marga forsvars- menn fyrirtækja sem skráð eru á skipulegan hlutabréfamarkað. Þessir viðmælendur eru í forsvari fyrir stærstu og umsvifamestu fyrirtæki landsins, sem veita þúsundum manna atvinnu. Það einkennir ef til vill hina óvissu stöðu að enginn þeirra var reiðubúinn að láta nafns síns getið en ljóst er af þessum samtölum að meðal þeirra eru áhyggjur af þeirri póli- tísku óvissu sem hér gæti orðið, verði úrslit kosninga eins og fjölmargar skoðanakannanir benda til. Sumir þessara aðila bentu á að þeir fyndu í rekstri sínum að viðskipta- menn þeirra héldu að sér höndum og biðu með ákvarðanir þar til ljóst yrði hvernig hið pólitíska landslag liggur eftir kosningarnar. „Það er ótrúlegt að eftir allt það sem atvinnulífið hefur lagt á sig til að leggja sitt af mörkum til að ná hér efnahagslegum bata, eins og raun ber vitni, séu nú líkur á því að eftir kosningar verði að því starfi vegið,“ sagði einn viðmælenda. Annar benti á að erlendir við- skiptamenn litu svo á að pólitísk áhætta væri sú sem vægi þyngst á metunum þessi dægrin þegar litið væri til áhættu af viðskiptum við Ís- land. Þau atriði sem flestir voru sam- mála um að yllu óvissu og stefndu ár- angri sem náðst hefur í efnahags- málum í uppnám eru hugmyndir um skattkerfisbreytingar. „Mér sýnist hugmyndir um skattbreytingar aðal- lega ganga út á að plokka meiri skatta af þeim sem raunverulega greiða tekjuskatt í landinu.“ Jafn- framt nefndu margir viðmælenda hugmyndir um hækkun fjármagns- tekjuskatts. Stutt kjörtímabil eykur óvissu og eyðir mikilvægum tíma Þá nefndi einn viðmælenda blaðs- ins að hugmyndir um stutt kjörtíma- bil, þar sem áhersla væri fyrst og fremst lögð á að koma í gegn miklum breytingum á stjórnarskránni, ykju á þá óvissu sem íslenskt atvinnulíf býr við. „Hvað sem mönnum finnst um mögulegar breytingar á stjórnar- skránni er alveg ljóst að sá tími sem fara mun í þær mun ekki auka hag- sæld íslenskra heimila og fyrir- tækja,“ sagði hann. Þegar spurt var hvaða jákvæðu teikn menn sæju í kortunum í tengslum við kosningarnar sagði einn viðmælenda blaðsins, sem starfar í útflutningi, að það kynni að hafa já- kvæð áhrif að til valda kæmust flokk- ar sem auka myndu útgjöld svo hressilega að verðbólgan færi af stað. „Með því að hleypa ríkisfjármálun- um og þar með efnahagslegum stöðugleika í uppnám myndu skapast aðstæður sem óhjákvæmilega yllu því að krónan veiktist verulega. Það væri sannarlega gott fyrir útflutn- ingsgreinarnar í hagkerfinu en það er ekki víst að almenningur yrði sátt- ur við afleiðingarnar.“ Verðbólguálag þrýstist upp í aðdraganda kosninganna Morgunblaðið/Árni Sæberg Kosningar Titrings gætir á markaði í aðdraganda alþingiskosninganna.  Forstjóri útflutningsfyrirtækis telur stóraukin ríkisútgjöld munu leiða til hraðrar veikingar krónunnar Saltkaup ehf | Cuxhavengata 1 | 220 Hafnarfjörður | Sími 560 4300 | saltkaup.is Frágangsvörur í miklu úrvali Bylgjupappír Áprentuð límbönd Límbönd Vélstrekkifilmur Plastbretti Alhliða umbúðalausnir Salt - Umbúðir - Íbætiefni Plasthettur HandstrekkifilmurBóluplast Bindiborðar Kíktu á heimasíðunawww.saltkaup.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.