Morgunblaðið - 28.10.2016, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 28.10.2016, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016 Ármúla 24 - s. 585 2800 - www.rafkaup.is Opið virka daga 9-18, laugardaga 11-16 ELDHÚSLJÓS OG BORÐSTOFULJÓS TÍMALAUS HÖNNUN Ljós á mynd: Belid Primus II Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er hætt við misskilningi eða rugl- ingi í ástarmálunum í dag. Spurðu sjálfa/n þig hvort þú þurfir nokkuð að leika dýrling þessa dagana. 20. apríl - 20. maí  Naut Framtíðaráætlanir tengdar menntun, útgáfu og ferðalögum borga sig. Einbeittu þér að því að efla styrk fólks frekar en að ein- blína á veikleikana. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þér finnst eins og þú vitir ekki alveg hvar þú eigir að hafa vinnufélaga þína. Ef þú vilt hjálpa skaltu henda reglunum út um gluggann. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Mikilvægar manneskjur eru í nálægð þinni. Varkárni er dyggð en getur svo sem gengið of langt eins og allt annað. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert eitthvað annars hugar í vinnunni og verður að taka þig á áður en allt fer í hund og kött. Gerðu engar ráðstafanir, njóttu þess heldur að slá á létta strengi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Smámunasemin er alveg að fara með þig þessa dagana. Gefðu þér tíma til að leika þér. En haltu þig við þitt, stíll og sköp- unargáfa eru ekki hégómlegir hlutir. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þig langar til að hjálpa vini þínum, kunn- inga eða jafnvel einhverjum ókunnugum í dag. Stattu fast á þínu. Börn, gamalmenni og útigangsfólk þarfnast alltaf hjálpar. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Minniháttar árekstur getur leitt til margskonar erfiðleika ef þú tekur ekki strax af skarið og leysir málið. Hafðu gát á öllu, því þannig kemstu hjá áföllunum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Mundu að allt á sinn stað og stund og nú er ekki rétti tíminn til að tala hreint út um hlutina. Allt sem tengist ást, rómantík, ánægju og skemmtun kemur vel út í þínu merki á næstu vikum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Láttu það ekki buga þig þótt verk- efni þitt sé erfiðara en þú bjóst við. Hristu af þér slenið, brettu upp ermarnar og taktu til hendinni! 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Ýmsir erfiðleikar í einkalífinu eiga hug þinn allan. Kannski afmæli eða verkefni. Vertu opin/n fyrir nýjum viðskiptavinum og leiðum til að auka fjölbreytni. 19. feb. - 20. mars Fiskar Athygli þín beinist að heimili, fjöl- skyldu og fasteignamálum á næstunni. Ef gera þarf ferðaáætlanir má íhuga að taka lokaákvörðunina eftir næsta miðvikudag. Björn Ingólfsson segist á mið-vikudag hafa lært nýtt orð af DV sem Bragi Valdimar notaði um þá sem hafa yfirhöndina í jafnréttis- baráttunni. – „Datt í hug að máta það við frambjóðendur – sem er auð- vitað alveg út í hött:“ Ætla sér stórvirki að færast í fang flokkar með loforðabrask og mang, nýta sér brellur og pot og prang og pungfýlufretskunkayfirgang. Það var ekki að sökum að spyrja, að Páll Imsland inspíreraðist í morgunskúrinni: „Þetta nýyrði er nú svo langt að það kemst varla fyr- ir í Vaðlaheiðargöngunum, en þó þyrfti viðleitnin sem það lýsir að fá að sjóða þar í hitanum í nokkra mán- uði. Ég var reyndar að kvarta undan því fyrir skömmu, að mér gengi ekk- ert með yrkingar í anda pólitískrar hnjóðunar, en ég sé að mér fer fram. Pungfýlufretskunkayfirgangsafl allt reynir ná hérna völdum, viðhefur pretti og tvíræðnitafl með táldrægnibrögðum svo köldum.“ Mér þykir við hæfi að láta þessum skáldskap fylgja „eina limru með bókmenntalegri skírskotun“ eftir Pál Imsland: Hann er klókur og skrýtinn, hann Skúli, og skáldmæltur er víst hans túli, en yrkı́ hann að ráði sá ótugtarsnáði, þá yrkir hann eins og Jón Múli. Það stóð ekki á Fíu á Sandi að svara, – „skemmtileg þessi. Má til að taka undir núna. :-) Það er það skondna við Skúla að skaðræðis hefur hann túla, yrkir því níð í erg bæði og gríð og flestalla gerir því fúla. Á þriðjudaginn skrifaði Sigrún Haraldsdóttir í Leirinn: Illa er bólgnaður bossi, blámi nær oní tær, ofanaf hrekkjóttu hrossi hrapaði ég í gær. Batakveðjum norðan úr Mývatns- sveit fylgdi þessi staka Friðriks Steingrímssonar: Við því ekki er gott að gera, gremju þína vel ég skil, marbletturinn mun þá vera meters langur, um það bil. Sigrún var skjót til svars og sagði að Friðrik hefði misreiknað sig: Bletti mínum búki á betur þarft að mæla, í mesta lagi er metri frá munni niður á hæla :))) Þetta kom Helga Zimsen á óvart: „Ég hélt að þú værir lengri,“ skrif- ar hann í Leirinn. Sumir ýkja og eflaust þá ögn á frúnni teygja, hálfs- þó aðeins -meters má marblett hennar eygja.“ Halldór Blöndal halldorblondal@sismnet.is Vísnahorn Nýyrði og hrekkjóttir hestar Í klípu „ÞÚ ÞARFT RÓTTÆKA SKURÐAÐGERÐ. DR. SKRAPI HÉRNA ER ILLA RÓTTÆKUR, SKILURÐU.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG ER ENNÞÁ VAKANDI!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að skilja fortíðina eftir í fortíðinni. STUNDUM LÍÐUR MÉR EINS OG LÍFIÐ SÉ AÐ FARA FRAMHJÁ MÉR. MAURAAAAR!!! OG ÞAÐ ER FÍNT. GEIRI GRIMMI, FLESTIR HUNDAR MYNDU GRÁTBIÐJA UM ÞETTA GÆSALÆRI! HUNDUR MINN GRÁTBIÐUR EKKI! HANN HEIMTAR! Hvað eiga Bob Dylan, nýlega út-nefndur Nóbelsverðlaunahafi í bókmenntum, Robben Ford og Björn Thoroddsen sameiginlegt? Mikið rétt, þetta eru allt frábærir tónlistar- menn og lagasmiðir og á disknum Bjössi introducing Anna, nýjustu plötu Bjössa Thor, sem Ford stjórn- aði upptökum á, eru öll lögin eftir snillingana þrjá. x x x Robben Ford, sem spilar djass, blúsog rokk jöfnum höndum, er eng- inn venjulegur gítarleikari. Hann var valinn í hóp 100 athyglisverðustu gít- arleikara heims á nýliðinni öld og hef- ur spilað með heimsþekktu tónlistar- fólki eins og George Harrison, Joni Mitchell, Jimmy Witherspoon, Barbra Streisand, Bob Dylan og John Mayall, svo einhverjir séu nefndir. x x x Það sýnir hvað Bjössi Thor er mik-ils metinn í tónlistarheiminum að Robben Ford hefur ekki aðeins kom- ið einu sinni til þess að skemmta á Gítarveislu Bjössa Thor heldur tvö ár í röð, auk þess sem hann bauðst til þess að stjórna upptökum á fyrr- nefndri plötu. x x x Gítarveisla Bjössa Thor í Há-skólabíói um liðna helgi var í einu orði sagt frábær. Diskurinn var kynntur í fyrri hlutanum, en þar leika meðal annars með Birni gítarleikar- arnir Robben Ford og Tommy Emm- anuel, og Robben Ford og hljómsveit hans áttu sviðið eftir hlé. x x x Víkverji hefur sjaldan eða aldreiskemmt sér eins vel og á þessari gítarveislu enda valinn maður í hverju rúmi í fullum sal. Gítarveislan að ári verður sjálfstætt framhald þessarar veislu og eins gott að taka daginn frá. Víkverji hefur hitt nokkra, sem misstu af tónleikunum um liðna helgi, og eftir að hafa heyrt um frammistöðu tónlistarfólksins ætla þessir einstaklingar ekki að brenna sig aftur á sama hlutnum. Það kemur ekki á óvart vegna þess að hérlendis er bara ein Gítarveisla Bjössa Thor árlega. víkverji@mbl.is Víkverji Gott mannorð er betra en mikill auð- ur, vinsæld er betri en silfur og gull. Orðskv. 22:1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.