Morgunblaðið - 28.10.2016, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016
Haust- og jólalínan 2016
www.danco.is
Heildsöludreifing
Tímabókanir í sýningarsal í síma 575 0200
Opið 8.00-17.00
Viðar-
rugguhestur
Glerkúla m/fjöður
2 stk. í boxi 8 cm
Stjarna metal
m/glimmer 20 cm Gæra grá 60x90 cm
Snjósleði Wood
Tindáti m/ljósi
184 cm
Grenikrans m/ljósum
90 cm
Leðurstóll
Butterfly 87 cm
María Mey
50 cm
Jólakúlur, 4 teg. 8 cm
Viðararinn
140x110 cm
Hreindýr, svart,
2 teg. 12 cm
Jólatré í potti
Hnetubrjótur,
2 teg. 38 cm Kökustandur
140 cm
Fyrirtæki og verslanir
Vegghorn
hreindýr
65 cm
Glerkisa 13 cm
Icelandair Group hagnaðist um
tæpar 103 milljónir dollara á þriðja
fjórðungi ársins; jafngildir það um
11,7 milljörðum króna á núverandi
gengi. Er það litlu minni hagnaður
en yfir sama tímabil í fyrra og mun-
ar þar aðeins 378 þúsund dollurum.
Tekjur félagsins aukast töluvert
milli ára, eða um 13%. Á föstu gengi
nemur aukningin hins vegar 17%.
EBITDA á fjórðungnum nemur
161,8 milljónum dollara, jafnvirði
18,4 milljarða króna, en hún var
155,6 milljónir dollara á sama árs-
fjórðungi í fyrra.
Hagnaður félagsins á fyrstu níu
mánuðum ársins nemur tæpum 112
milljónum dollara, jafnvirði 12,7
milljarða króna, og eykst um rétt
tæpa milljón dollara frá árinu 2015.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Icelandair Group, segir að félagið
muni vaxa áfram en ítrekar að sá
árangur sem náðst hafi í rekstri fé-
lagsins á árinu sé til kominn þrátt
fyrir krefjandi aðstæður og óhag-
felldar ytri aðstæður.
„Flugáætlun okkar í millilanda-
flugi fyrir 2017 er 14% umfangs-
meiri en á þessu ári og við gerum
ráð fyrir að flytja 4,2 milljónir far-
þega á árinu. Nýtt hótel verður
opnað í miðbæ Reykjavíkur á næsta
ári og annað ári síðar. Tvær breið-
þotur bætast í flotann og áfram-
haldandi fjölgun ferðamanna til Ís-
lands skapar fjölmörg tækifæri
fyrir ferðatengda þjónustu. Miklum
vexti fylgja fjölmargar áskoranir
og starfsfólk félagsins stóð sig frá-
bærlega á þessum annasama tíma.
Það eru spennandi tímar fram und-
an hjá félaginu og horfur í rekstri
þess eru góðar.“
Hagnaður Icelandair eykst lítillega
Aldrei flutt fleiri farþega á þriðja ársfjórðungi Heildartekjur jukust um 13%
Fjarskiptafyrirtækin tvö, sem skráð
eru í Kauphöll Íslands, hafa bæði birt
afkomu sína fyrir þriðja fjórðung árs-
ins.
Hagnaður Fjarskipta (Vodafone)
nam 391 milljón króna á þriðja árs-
fjórðungi sem er 22% minni hagnaður
en á sama fjórðungi í fyrra. Tekjur fé-
lagsins námu 3,4 milljörðum króna og
stóðu í stað miðað við sama fjórðung í
fyrra. Framlegðin lækkaði um 5% á
milli ára og hún nam 1,7 milljörðum
króna á þriðja ársfjórðungi. Hagn-
aður fyrir afskriftir og fjármagnsliði,
EBITDA, nam 927 milljónum króna
og lækkaði um 10% milli ára.
EBITDA hlutfall var 26,9%. Félagið
hefur ákveðið að færa niður EBITDA
horfur fyrir árið og áætlar það nú í
kringum 3,1 milljarð fyrir árið 2016.
Á fyrstu níu mánuðum ársins var
hagnaður Fjarskipta 837 milljónir
króna sem er 19% minni hagnaður en
á sama tímbili 2015.
Góður fjórðungur hjá Símanum
Hagnaður Símans á þriðja árs-
fjórðungi nam rúmum 1,1 milljarði
sem er um 29,2% meiri hagnaður en á
þriðja ársfjórðungi í fyrra. Hagnaður
Símans yfir fyrstu níu mánuði ársins
nam rúmum 2,1 milljarði og lækkaði
um 1,9% milli ára.
Tekjur félagsins námu tæpum 7,3
milljörðum króna á þriðja ársfjórð-
ungi sem er samdráttur um tæp 4%
frá fyrra ári. Hagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði, EBITDA,
nam tæpum 2,6 milljörðum á þriðja
ársfjórðungi, samanborið við tæpa 2,4
milljarða á sama ársfjórðungi í fyrra.
EBITDA hlutfallið var 35,5% fyrir
þriðja ársfjórðung 2016 en var 31,3%
á sama tímabili 2015. Framlegð frá
rekstri nam á þriðja ársfjórðungi 3,6
milljörðum sem er nánast á pari við
þriðja ársfjórðung í fyrra og hækkar
hlutfallið í 51,4% af rekstrartekjum.
Morgunblaðið/Ernir
Sími Strembið ár í fjarskiptum.
Ólík af-
koma fjar-
skipta-
félaganna
Hagnaður Voda-
fone dróst saman
28. október 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 113.46 114.0 113.73
Sterlingspund 139.1 139.78 139.44
Kanadadalur 84.86 85.36 85.11
Dönsk króna 16.65 16.748 16.699
Norsk króna 13.789 13.871 13.83
Sænsk króna 12.653 12.727 12.69
Svissn. franki 114.33 114.97 114.65
Japanskt jen 1.0828 1.0892 1.086
SDR 155.79 156.71 156.25
Evra 123.85 124.55 124.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 155.5311
Hrávöruverð
Gull 1269.3 ($/únsa)
Ál 1673.0 ($/tonn) LME
Hráolía 50.26 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á