Morgunblaðið - 28.10.2016, Page 23

Morgunblaðið - 28.10.2016, Page 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016 Nú í aðdraganda al- þingiskosninga er ljóst að ákveðin stjórn- málaöfl hafa gert hug- myndir um róttækar breytingar á stjórn- arskrá að einu helsta kosningamáli sínu. Auðvitað þarf það ekki með öllu að koma á óvart í ljósi þess að stjórnarskrárbreyt- ingar hafa verið umdeilt mál í ís- lenskum stjórnmálum á und- anförnum árum og meðal annars tekist á um leiðir og markmið í þeim efnum í alþingiskosningum 2009 og 2013. Það sem hins vegar kemur á óvart í umræðum nú á haustdögum 2016 er að ýmsir helstu talsmenn róttækra breytinga láta í veðri vaka að tíminn hafi með einhverjum hætti numið staðar einhvern tímann á síð- asta kjörtímabili og nú sé rétti tím- inn til að endurlífga málið og færa það aftur í gamlan átakafarveg. Tilraunastarfsemi á síðasta kjörtímabili Í ljósi þess er full ástæða til að rifja upp að allt frá því að minni- hlutastjórn Samfylkingar og VG var mynduð snemma árs 2009 og allt kjör- tímabilið 2009 til 2013 áttu sér stað harðvítug átök um stjórn- arskrána innan þings og utan. Af hálfu rík- isstjórnanna sem þá sátu voru gerðar ítrek- aðar atlögur að því að gerbreyta stjórn- arskránni, meðal ann- ars með mjög óhefð- bundnum aðferðum, sem augljóslega höfðu þann tilgang að fara fram hjá Al- þingi eins og kostur væri, og stilla þingmönnum upp við vegg þegar kæmi að endanlegri og óhjá- kvæmilegri málsmeðferð stjórn- arskrárbreytinga á þingi. Ýmislegt má segja um alla þá tilraunastarf- semi, en niðurstaðan var hins vegar á þá leið að ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms lenti í slíkum ógöngum með málið, að vorið 2013 lögðu nýir formenn Samfylkingar og VG til, í samstarfi við þáverandi formann Bjartrar framtíðar, að farin yrði önnur og hófsamari leið til að vinna áfram að stjórnarskrárbreytingum. Var á það fallist af formönnum þá- verandi stjórnarandstöðuflokka, Sjálfstæðisflokks og Framsókn- arflokks og í anda þess gagnkvæma skilnings var unnið að tillögum til stjórnarskrárbreytinga frá því ný ríkisstjórn tók við völdum í lok maí 2013. Markmiðið var að vinna í áföngum að endurskoðun tiltekinna þátta stjórnarskrárinnar og mikil áhersla lögð á að ekki yrði farið fram með breytingar nema í víð- tækri sátt. Horfið frá samstöðu vegna harðlínuviðhorfa Vinnan í nefndinni gekk til- tölulega vel fyrir sig miðað við ólíkar hugmyndir flokkanna en þegar nefndin birti drög að tillögum um þrenns konar breytingar snemma á þessu ári fór samstaðan að rofna. Snerust tillögurnar þó um málefni, sem allir flokkar höfðu lýst sig reiðubúna til að skoða, þ.e. nátt- úruvernd, nýtingu auðlinda og aukna möguleika til þjóðaratkvæða- greiðslna, og mikil vinna hafði verið lögð í að ná málamiðlunum innan nefndarinnar. Fyrst varð ljóst að Pí- ratar væru ekki tilbúnir að styðja framgang þessara tillagna þar sem þær væru ekki nógu róttækar og í kjölfarið kom í ljós mikil andstaða af hálfu Samfylkingarinnar. Strax á vordögum var því ljóst að ólíklegt væri að málið næði lengra og eftir að ákveðið var að boða til haustkosn- inga kom skýrt fram að flokkarnir lögðu meira upp úr því að marka sér stöðu með tilliti til kosninganna heldur en binda sig við málamiðlanir þar sem allir höfðu þurft að gefa eitthvað eftir. Mikið rætt um form en lítið um innihald Málatilbúnaður stjórnarand- stöðuflokkanna nú skömmu fyrir kosningar bendir til að Pírötum sé að takast að festa hina vinstriflokk- ana í yfirlýsingum um umbyltingu stjórnarskrárinnar á grundvelli til- lagna stjórnlagaráðs frá 2011. Mikið hefur verið fjallað um form í þeim efnum en lítið um innihald. Rætt hefur verið um hvort taka ætti 9 mánuði til verksins og boða svo til nýrra kosninga, eitt og hálft ár, tvö ár eða jafnvel lengri tíma. Um það virðast umræður þessara flokka helst snúast. Ekki hefur, að því er séð verður, verið fjallað um hvort taka ætti tillögur stjórnlagaráðs upp óbreyttar eða lítt breyttar, eða hvort aðeins eigi að hafa þær til hlið- sjónar. Þetta skiptir þó gríðarlega miklu máli, enda er verið að tala um grundvallarlöggjöf landsins, sem öll önnur löggjöf byggist á, og sam- kvæmt tillögum stjórnlagaráðs átti að breyta öllum 80 greinum núgild- andi stjórnarskrár auk þess að bæta 35 nýjum við. Það er ekki heldur eins og tillögur stjórnlagaráðs hafi á sínum tíma verið óumdeildar. Öðru nær. Þær sættu á sínum tíma harðri gagnrýni innan þings og utan, meðal annars frá svo til öllum fræðimönnum hér- lendum, sem sérstaklega hafa lagt stjórnskipunarmál fyrir sig. Með því að taka málið aftur upp á forsendum tillagna stjórnlagaráðs væru vinstriflokkarnir því að vekja upp gamla deilu, ýta undir sundr- ungu um stjórnarskrármálefni og hafna möguleikum á að ná víðtækri sátt. Það er auðvitað í samræmi við kröfu Pírata um allt eða ekkert, en spurningin hvort reyndari og hóf- samari stjórnmálamenn innan hinna vinstriflokkanna eru í hjarta sínu sammála slíkri nálgun. Eftir Birgi Ármannsson »Málatilbúnaðurinn nú fyrir kosningar bendir til að Pírötum sé að takast að festa hina vinstriflokkana í yfirlýs- ingum um umbyltingu stjórnarskrárinnar. Birgir Ármannsson Höfundur er þingmaður Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Allt eða ekkert í stjórnarskrármáli? Þessa dagana höf- um við Íslendingar færi til að hafa áhrif á það hvernig við vilj- um að samfélagið þróist á næstu árum. Við Vinstri græn höf- um lagt fram skýra stefnu um aukinn jöfnuð, umhverf- isvernd og aukin áhrif almennings á allar ákvarðanir. Við leggjum fram útfærðar hugmyndir um uppbyggingu heilbrigðisþjón- ustu, eflingu menntakerfis, sann- gjarnt skattkerfi og viðunandi fram- færslu fyrir okkur öll. Við viljum að umhverfisvernd og náttúruvernd verði á oddinum á komandi kjör- tímabili og atvinnulíf blómstri með sjálfbærum hætti. Við viljum byggja upp traust á stjórnmálum, tryggja aukið gagnsæi og langtímahugsun við mótun samfélagsins. Við höfum reynslu af því að hafa verið í ríkisstjórn og höfum nýtt tím- ann til að læra af henni. Reynsla okkar af stjórnarsetu er blendin en við þekkjum vítin til að varast og treystum okkur til að gera vel. Efnahagsbatinn und- anfarin ár hefur sem betur fer skilað því að margir standa betur nú en í kjölfar hrunsins. Því miður hefur tækifærið ekki verið nýtt til að tryggja aukinn jöfnuð í samfélaginu heldur hef- ur áherslan verið á að létta skattbyrðinni af þeim efnameiri. Ýmsar aðgerðir stjórnvalda, eins og leiðréttingin svokallaða, nýttust einkum þeim sem stóðu best fyrir. Því miður eru teikn á lofti um að ójöfnuður aukist á ný. Ríkustu tíu prósentin eiga tvo þriðju alls auðs samkvæmt nýjustu tölum og ríkasta eina prósentið tek- ur til sín nær helming fjármagns- tekna. Þetta er óheillavænleg þróun. Við Vinstri græn höfum það að markmiði að allir hafi jöfn tækifæri í samfélaginu. Það á ekki að skipta máli hver fæðist inn í ríka eða fá- tæka fjölskyldu og það er okkar að tryggja að það skipti ekki máli. Í vel- ferðinni felast verðmæti fyrir venju- legt fólk og það er sú velferð sem við viljum einhenda okkur í að byggja upp á næstu árum. Tækifærin til að byggja upp velferðina hafa nefnilega ekki verið nýtt í tíð núverandi rík- isstjórnar. Þess vegna viljum við draga úr kostnaði þeirra sem þurfa á lækn- isþjónustu og lyfjum að halda því enginn á að þurfa að neita sér um slíkt vegna þess að hann hefur ekki efni á því. Meðal annars viljum við gjaldfrjálsa sálfræðiþjónustu í fram- haldsskóla og á heilsugæslustöðvar. Við viljum forgangsraða fjármunum til sjúkrahúsa, heilbrigðisstofnana og heilsugæslunnar og tryggja þannig hið félagslega rekna heil- brigðiskerfi. Þess vegna viljum við stórefla menntakerfið og tryggja að allir geti sótt sér menntun við hæfi. Ef við viljum byggja upp atvinnulíf sem byggist á hugviti þá verðum við að fjárfesta í framhaldsskólum og ekki síst í háskólum en á háskólastiginu stöndum við nágrannaþjóðum okkar langt að baki þegar kemur að fjár- veitingum. Þess vegna viljum við bæta kjör aldraðra og öryrkja og tryggja að launaþróun þessara hópa fylgi al- mennri launaþróun í samfélaginu. Þess vegna viljum við grípa til að- gerða í húsnæðismálum sem miða að því að allir geti haft þak yfir höfuðið. Það viljum við meðal annars gera með því að stuðla að auknu framboði á öruggu og hagstæðu leiguhúsnæði í samstarfi við samfélagslega rekin leigufélög á vegum námsmanna- hreyfinga og verkalýðsfélaga. Þess vegna viljum við útrýma kynbundnum launamun með auknu gagnsæi í launaákvörðunum og raunhæfa aðgerðaáætlun gegn kyn- bundnu ofbeldi í samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Jöfn tækifæri snúast líka um tækifæri framtíðarkynslóða til að láta drauma sína rætast. Þess vegna viljum við alvöru aðgerðaáætlun til að takast á við loftslagsbreytingar. Hennar er þörf núna því annars gæti það orðið of seint. Við Vinstri græn höfum útfærðar hugmyndir um hvernig má fjár- magna þessa uppbyggingu. Það gerum við með því að gera skatt- kerfið réttlátara. Með átaki gegn skattaundanskotum og skattsvikum sem hefur verið áætlað að nemi um 80 milljörðum á ári. Með því að þeir sem nýta sameiginlegar auðlindir greiði sanngjarnt gjald af auðlinda- rentunni til samfélagsins og með því að skattleggja þá sem mest eiga og geta þar af leiðandi lagt mest til samfélagsins. Nú er það kjósenda að spyrja sig hverjir hafi hinn góða vilja og hinn nauðsynlega styrk til að hrinda þessum málum í framkvæmd. Ég trúi því að við eigum samleið í bar- áttunni fyrir réttlátara samfélagi fyrir okkur öll. Nú er kosið um réttlátt samfélag Eftir Katrínu Jakobsdóttur » Í velferðinni felast verðmæti fyrir venjulegt fólk og það er sú velferð sem við viljum einhenda okkur í að byggja upp á næstu ár- um. Katrín Jakobsdóttir Höfundur er formaður Vinstri grænna. Á morgun er kosið til Alþingis. Það eru ávallt tímamót þegar kosið er. Kosningar fjalla oftar en ekki um tvennt, uppgjör við fortíðina og væntingar um fram- tíðina. Þegar þessu stutta kjör- tímabili lýkur með snemmbærum kosningum er vert að staldra við og meta árangurinn. Árangur ríkisstjórna og einkunnagjöf til þeirra er mjög vel mælanleg. Bestu mælanlegu þættirnir eru verðbólga og kaupmáttur launa. Verðbólga hefur verið 1,9% á ári í þrjú og hálft ár. Kaup- máttur launa hefur aukist um 5,8% á ári. Það er oft betra að horfa á verkin í hinu stóra sam- hengi en einblína á hið smáa. Koma þá til nokkrar einfaldar hagstærðir. Þær segja meira en orðaflaumur. Lofa eða ljúga? Það er oftar en ekki ógæfa stjórnmála- manna að lofa út og suður og lofa svo hratt að þeir hafa ekki tíma til að hiksta. Vart er hægt að greina á milli hvort menn lofa eða ljúga. Og þá er vandi að segja satt á eftir. Miklu oftar en ekki er rétt að horfa til þess hvert skuli stefna, fremur en að horfa til þess hvaða brýr eða spottar verða á forgangslista vegna sérhagsmuna ein- staklinga. Horfum til heildar- innar. Það er líka óþarfi að lofa því að yrkja nýjan þjóðsöng. Ekki batna lífskjörin við það! Ungt fólk og kosningar Kosningarnar á morgun snú- ast um framtíðina. Kosning- arnar snúast meðal annars um framtíð ungs fólks í landinu. Þá vaknar einföld spurning, sem er um atvinnu og búsetu unga fólksins. Loforð duga þar skammt. Efndir ráða um framtíð. Sjálfstæðisflokknum er oftar en ekki velt upp úr lítilli umhyggju fyrir umhverfinu og skorti á áhuga á þeim málum. Þar hafa þingmenn flokksins talað og efndirnar komið fram með forgöngu um stofnun þjóðgarðs í Skaftafelli, svo aðeins eitt dæmi sé nefnt. Ungt fólk vill atvinnu við sitt hæfi og það vill búsetu. Atvinna og menntun og búseta þættast saman. Ungt fólk, sem hefur aflað sér mennt- unar, óskar þess að geta notað sína menntun „heima“. Það eru alltaf bláir dalir heima. Bláir eru dalir þínir byggð mín í norðrinu heiður er þinn vorhiminn hljóðar eru nætur þínar létt falla öldurnar að innskerjum – hvít eru tröf þeirra. Þöglar eru heiðar þínar byggð mín í norðrinu. Huldur býr í fossgljúfri saumar sólargull í silfurfestar vatnsdropanna. Sæl verður gleymskan undir grasi þínu byggð mín í norðrinu því sælt er að gleyma í fangi þess maður elskar. Ó, bláir eru dalir þínir byggð mín í norðrinu. (Hannes Pétursson) Dyggð og samviska Það er mikið um uppboð og yfirboð í þessum kosningum. Þeir sem best hafa fylgst með telja að „kosningaloforð“ megi meta á sem næst um 200 milljarða. Það þarf stundum sterk bein til að standa gegn svokölluðum „loforðum“. Þá er réttlætið köld dyggð og samviska stjórnmála- mannsins valtur dómari. Flest kosningaloforð skila engu nema verðbólgu og verðbólgu fylgir hnignun lífskjara. Þá hverfa hinir bláu dalir. Það er ekki það sem ungt fólk vill. Unga fólksins er framtíðin. Spurningunni um hvað á að gera fyrir „gamla fólkið“ verður ekki svarað nema að hugsa um unga fólkið sem erfir framtíðina. Framtíð þess og allra annarra íbúa í landinu verður best tryggð með því að hlúa að undirstöðum atvinnulífs og almennri velsæld í stað þess að einblína á óraunhæf áform um aukningu útgjalda. Bláir eru dalir þínir Eftir Vilhjálm Bjarnason » Það er líka óþarfi að lofa því að yrkja nýjan þjóðsöng. Ekki batna lífskjörin við það! Vilhjálmur Bjarnason Höfundur er alþingismaður, sem býður sig fram fyrir Sjálfstæðisflokksinn í Suðvesturkjördæmi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.