Morgunblaðið - 28.10.2016, Qupperneq 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016
VINNINGASKRÁ
26. útdráttur 27. október 2016
355 10458 20267 34955 43309 51721 59607 70645
437 11013 21355 35411 43449 52059 60017 70845
1006 11762 22009 35522 43493 52475 60038 71128
1073 11950 22345 35640 43627 52833 60176 71710
1246 12186 22525 35756 43977 52962 60370 71809
1660 12191 22714 35837 44206 53008 60456 72261
2061 12309 22811 35868 44326 53259 60676 72303
2384 12325 22826 36000 44639 53979 60760 72390
2564 12422 23108 36396 44839 53988 60841 72490
2804 12547 23222 36777 45069 54289 60892 72984
2811 12554 23244 36935 45175 54761 61006 73213
2824 12952 23892 37033 45188 54807 62515 73797
2842 13108 24127 37436 45698 54946 62578 73884
3085 13640 24408 38279 46321 55025 62636 74236
3105 14035 24522 38390 46335 55124 62787 74655
3177 14516 24640 38400 46354 55221 63244 76011
3462 15501 25327 38406 46760 55315 64136 76290
3630 15527 25352 38617 46992 55402 64313 76378
3814 15881 25962 38922 47325 55527 64575 76930
4603 16170 26345 38973 47602 55620 65232 77049
4905 16428 26705 39020 47671 55857 65274 77779
5158 16756 26889 39141 47900 55882 65504 77894
5189 17070 26922 39220 47933 55890 65569 77953
5287 17078 27165 39271 48148 56170 65590 78080
5725 17100 27288 39393 48159 56278 65700 78411
6018 17301 28142 39554 48195 56435 67068 78853
6382 17338 28651 39606 48493 56949 67496 78899
6421 17384 28878 39785 48825 57087 67549 79193
6430 17482 29184 40378 48869 57334 67829 79263
6596 17575 29347 40448 49263 57906 68161 79367
6638 18109 29597 40890 49491 58085 68407 79460
7654 19193 30885 40943 49804 58456 68428
7742 19320 31731 41586 49911 58936 68990
7763 19412 31934 42019 50122 59153 69026
8326 19793 32525 42049 50560 59254 69883
8753 19887 34114 42097 50669 59321 70216
9683 20147 34550 42634 51385 59403 70408
620 7479 16417 31534 43059 52257 63989 73316
792 7923 23112 32607 44052 53452 64253 75112
1296 8386 24739 32874 44055 56180 65011 76101
1373 8557 25519 32892 44057 56623 67484 77093
1541 10379 26199 33053 44277 57932 68644 77449
2618 10966 26834 33057 45211 58600 68905 77512
4124 11355 27129 33501 45880 58748 70649 78091
4769 11642 27242 37227 47261 59793 71284 79540
5916 11694 28161 37672 47500 59991 71434 79852
5968 11909 30460 37751 47703 60182 72112
6841 12467 30773 39202 49830 60601 72356
7235 14179 31105 40426 51342 60732 72900
7394 16414 31463 41327 51729 63865 73031
Næstu útdrættir fara fram 3., 10., 17., 24. nóv & 1. des 2016
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
27894 34462 37616 73475
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
204 21802 41110 60828 72448 77106
2413 27468 42412 63586 73060 77225
8888 27573 53529 64307 73873 77777
20172 37437 56219 68323 75793 78402
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
5 4 7 0 0
Aðalhvatamaður að
stofnun Viðreisnar yf-
irgaf Sjálfstæðisflokk-
inn vegna þess að hann
fékk ekki að ráða
stefnu flokksins og við-
horfi manna þar gagn-
vart Evrópusamband-
inu gegn vilja
meirihlutans í því máli.
Einhverjum datt nú í
hug að einlægur stuðn-
ingsmaður flokksins hefði kosið að
berjast fyrir hugsjónum sínum innan
flokksins á lýðræðislegan hátt. Svo
fór ekki enda sá maðurinn sér leik á
borði að stofna flokk þar sem hann
fengi að ráða för. Þrátt fyrir þá aug-
ljósu staðreynd að innganga í ESB
nú er glapræði af verstu gerð hefur
hann ekki vikið frá stefnu sinni, en
dulbýr sig nú í orðaflaumi um önnur
stefnumál sem ekki skera sig að
neinu leyti efnislega fá stefnumálum
annarra flokka.
Síðan beit hann höfuðið af skömm-
inni með því að lýsa því yfir að sam-
starf hans við Sjálfstæðisflokkinn
eftir kosningar væri útilokað. Ekki
er það vegna ágreinings um mál sem
horfa til framfara. Það er vegna
ágreinings um ESB. Flokks-
formaður sem gefur slíka yfirlýsingu
fyrir kosningar gerir sér ekki grein
fyrir því að hann á ekki erindi til for-
seta lýðveldisins þó að
kosningar gangi honum
í hag.
Fyrir skömmu gengu
fyrrverandi formaður
og varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins til liðs
við Viðreisn en bæði
eru þau miklir stuðn-
ingsmenn þess að Ís-
land afsali fullveldi sínu
til ESB. Sérlega
smekklegt þar sem
hægt er að nota 100 ára
fullveldisafmælið 1.
desember 2018 til að ganga frá full-
veldisafsali. En það er önnur saga.
Að vanda fagnaði RÚV þessu lið-
hlaupi úr Sjálfstæðisflokknum og tók
liðhlaupana báða tali í fréttum og
Kastljósi. Formaðurinn fyrrverandi
sagði ekki neitt af viti en allir, sem
þekkja hans stjórnmálasögu vita,
hvað honum gekk til. Varaformað-
urinn fyrrverandi talaði of mikið til
þess að hægt væri að átta sig á lið-
hlaupinu en ekki varð annað skilið en
að hún væri samstiga forystu Sjálf-
stæðisflokksins í öllum málum nema
inngöngu í ESB. Ekki fékkst hún til
að viðurkenna hreinskilnislega af-
stöðu sína til aðildar Íslands að ESB.
Hún kæfði þá spurningu með fallegri
framkomu og innihaldslausu mál-
skrúði.
Nú er rétt að Viðreisn leiti stuðn-
ings við afsal fullveldisins til annarra
flokka. Þar er á vísan að róa hjá spor-
göngumönnum Jóhönnu I og hjá
fyrrverandi formanni Vinstri
grænna. Reynslan segir okkur að svo
mannorðsrúinn maður er ekki dýr-
keyptur og sennilega kostar hann
minna núna en þegar hann sveik
heitasta kosningaloforð sitt árið 2009
og fékk að launum ráðherrastól hjá
Jóhönnu I.
Stofnandi Viðreisnar hlýtur að vita
að fjölgun flokka á Alþingi er það
versta sem þingræðinu er gert. Það
eykur á sundrungu og það torveldar
stjórnarmyndun eftir kosningar.
Ríkisstjórn, sem verður skipuð
mönnum úr 4-5 flokkum sem hafa
ekki sömu afstöðu til mála, að ætla
má, verður fljótt óstarfhæf, kemur
engu í verk nema ef til vill ein-
hverjum lýðskrumsmálum og skatta-
hækkunum til að standa undir óraun-
hæfum loforðum. Slík ríkisstjórn
mun eyðileggja allt sem núverandi
ríkisstjórn hefur komið í verk.
Er hægt að leggja allt í sölurnar til
að setjast í ráðherrastól hjá slíkri
ógæfustjórn?
Viðreisn og ESB
Eftir Axel
Kristjánsson » Stofnandi Viðreisnar
hlýtur að vita að
fjölgun flokka á Alþingi
er það versta sem þing-
ræðinu er gert.
Axel Kristjánsson
Höfundur er lögmaður.
Það fer ekki fram
hjá neinum að stutt er í
kosningar til Alþingis.
Stjórnarflokkarnir lofa
verk sín og umbætur
og stjórnarand-
stöðuflokkarnir ham-
ast, eins og þeir trúi
því og treysti að eng-
inn muni síðustu ríkis-
stjórn.
Margt hefur verið vel gert á þessu
kjörtímabili og fleiri verkefni hefðu
náðst í hús, ef kosningum hefði ekki
verið flýtt. Það er stundum erfitt að
átta sig á, af hverju ekki eru gerðar
vissar breytingar. Til dæmis að
skattleysismörkin skuli ekki vera
komin í 300 þúsund. Stjórnarand-
staðan hrópar auðvitað á torgum, yf-
ir því að fleiri en þeir allra lægst
launuðu njóti góðs af, en það er ein-
faldlega ekki hægt að hlusta á slíkt.
Í stefnu Sjálfstæðisflokksins er
gert ráð fyrir að allir geti lifað af
launum sínum. Þess vegna verður að
hækka skattleys-
ismörkin. Það er líka
spurning hvort það eigi
að vera með ofurskatt-
þrep, þannig að af laun-
um yfir 4 milljónir til
dæmis, verði greiddur
það hár skattur að þau
félög sem greiða slík
laun hugsi sig um. Það
hlýtur að fylgja því
mikil áhætta að vinna
hjá fyrirtæki sem
greiðir slík laun, of-
urlaun hljóta að vera
einskonar áhættuþóknun.
Það er mikið talað um kjör eldri
borgara. Þau eru eitt af því, sem erf-
itt er að átta sig á, af hverju þau hafa
ekki verið leiðrétt. Væri nokkuð að
því að skattleysismörk fólks eldra en
70 ára, væru til dæmis 700 þúsund?
Það er merkilegt, þegar talað er um
hærri laun og hærri lífeyr-
isgreiðslur, að það er eins og þetta fé
sé glatað og tröllum gefið. Hvert
fara þessir fjármunir ? Ef hægt væri
að sprauta litarefni í þessa peninga,
svona eins og gert er við ýmsar at-
huganir á innri hegðun mannslíkam-
ans, þá kæmi í ljós, hve stór hluti
skilaði sér fljótt og vel í ríkiskassann
í formi tekjuskatts og veltuskatta.
Fyrir utan það, hversu fráleitt það
er, að eyða dýrmætum tíma og orku
í endalaust þref yfir því sem ekki
ætti einu sinni að þurfa að ræða.
Það eru mörg verkefni fram-
undan. Forysta Sjálfstæðisflokksins
fær ekki frið, fyrr en betur hefur
verið gert. Ekki bara varðandi það
sem hér hefur verið nefnt, heldur
svo ótal margt annað.
Sjálfstæðisflokkurinn, með sína
sterku innviði, reynslu og kraft, hef-
ur þá sýn á kjör fólks og atvinnulíf,
að hann getur og mun vinna að þeim
markmiðum sem leiða til betra lífs,
þar sem hver einstaklingur skiptir
máli.
Sjálfstæðisflokkurinn
getur, veit og vill
Eftir Maríu E.
Ingvadóttur » Forysta Sjálfstæðis-flokksins fær ekki
frið, fyrr en betur hefur
verið gert.
María E. Ingvadóttir
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Hvað gerist á fjög-
urra ára fresti og jafn-
vel fyrr, þar sem ann-
ars skynsamt fólk
missir gersamlega al-
menna dómgreind og
verður eins og örgustu
sósíóhólistar með Maí-
stjörnuna úr leikskól-
anum greypta í höfuð-
leðrið? Það upphefur
karaktera sem aldrei
yrði hleypt inn í venju-
leg fyrirtæki, en fá leyfi eftir kosn-
ingar til þess að níðast á framtaks-
semi fjöldans í gegn um ríkið þar til
flestir gefast upp fyrir því og gerast
þrælar þess og þurfalingar.
Almennt myndi íslenskur
almenningur ekki láta sér detta það
í hug að afhenda æðstu völd í land-
inu til fólks sem vill
færa þau völd til al-
ræðisklíku í öðrum
löndum og breyta þar
að auki grundvall-
arreglum lýðræðisins
til þess að það verði
hægt, allt eftir hug-
myndum ídealista sem
hópuðust saman á
fund í múgæsingi al-
þjóðlegrar atburða-
hrinu.
En af og til ofhitna
rásirnar í símalandi
þjóðarmaskínunni svo illa, að skyn-
semin kemst hreinlega ekki að. Til-
finningahiti andartaksins verður
mikill og ómur slagorðanna hristir
jafnvel traustustu híbýli. Hjáróma
rödd einstaklingsins um frelsi til at-
hafna án áþjánar fyrir hvern og
einn nær ekki að yfirgnæfa þennan
gný, sem endar með að þeim er
hampað er síst skyldi.
Niðurstaðan verður þannig fjögur
þrautaár og vel betur, ef alræð-
issinnarnir ná sínu fram. Kælum
okkur niður fyrir kosningarnar. Þá
erum við líklegri til þess að velja
farsælasta kostinn, Sjálfstæðis-
flokkinn.
Örgustu sósíóhólistar
Eftir Ívar Pálsson » Á að afhenda æðstu
völd í landinu til
fólks sem vill færa þau
til alræðisklíku í öðrum
löndum og breyta
grundvallarreglum til
þess að það verði hægt?
Ívar Pálsson
Höfundur er viðskiptafræðingur
með eigið útflutningsfyrirtæki.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER
NÆSTA
VERKSTÆÐI?