Morgunblaðið - 08.11.2016, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2016
Hringbraut-Fjölmiðlar ehf. | Eiðistorgi 17 | 170 Seltjarnarnesi | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100
Missið ekki af áhugaverðum þætti um viðhald og
viðgerðir flugvéla og viðtali við framkvæmdastjóra ITS. Hringbraut næst á rásum7 (Síminn) og 25 (Vodafone)
ATVINNULÍFIÐ ÁdagskráHringbrautar
í kvöld kl. 20.00
Heimsókn til Icelandair – Viðhaldsstöð ITS
á Keflavíkurflugvelli
í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá Hringbrautar
kl. 20.00 í kvöld (ath. endursýnt á fimmtudagskvöldum og um helgar)
• Viðhaldsstöðin var tekin
í notkun 1993 og verið
að stækka um helming
• Flugskýlin rúma 3 þotur
Icelandair samtímis
• Fjölbreytt þjónusta
við Icelandair og
aðra viðskiptavini
• Varahlutaþjónusta,
RR-hreyflar, flugvéla-
dekk ogmargt fleira
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Hatrið og gremjan í garð Hillary Clin-
ton er undarlegt fyrirbæri. Ég held að
það sé vegna þess að repúblikanar hafa
í áraraðir haldið því á lofti hve hræðileg
hún sé,“ segir Meghan Milloy, formað-
ur samtaka kvenna í Repúblikana-
flokknum sem ætla að kjósa Hillary
Clinton, forsetaframbjóðanda demó-
krata, í kosningunum í dag. Hún telur
eins og fleiri í samtökunum að fram-
koma Trumps gagnvart konum sé
óviðunandi og því sé í fyrsta skipti
ástæða til að kjósa forsetaefni demó-
krata.
Miklar líkur eru þó taldar á því, sam-
kvæmt umfjöllun The Wall Street
Journal, að um þriðjungur kjörgengra
kvenna kjósi Trump í dag. Ef Clinton
sigrar má því telja að sá árangur hafi
verið knúinn áfram með fordæma-
lausum mun á fylgi forsetaefna eftir
kyni kjósendanna. Margar kvennanna
munu því líta á það sem stórslys frem-
ur en sögulega stund í baráttu kvenna
að Hillary Clinton verði kosin fyrsti
kvenkyns forseti Bandaríkjanna.
Meira forskot á meðal kvenna
Clinton mælist með 13 prósentustiga
forskot meðal kvenna í Bandaríkjunum
samkvæmt nýjustu könnun The Wall
Street Journal og NBC-sjónvarpsins.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna,
náði 10 prósentustiga forskoti á meðal
kvenna í kosningunum 2012 en demó-
kratar hafa í gegnum tíðina haft 8 pró-
sentustiga meira fylgi meðal kvenna í
forsetakosningum frá árinu 1980 í
samanburði við frambjóðanda repú-
blikana og er því allt útlit fyrir að Clin-
ton muni setja nýtt met. Trump held-
ur þó 8 prósentustiga forskoti á meðal
karlmanna samkvæmt sömu könnun.
Menntun, þjóðerni og aldur er það
sem helst skilur að kvenkyns kjós-
endur Trumps og Clinton að því er
fram kemur í könnuninni. Konur yngri
en 50 ára hallast frekar að Clinton, eða
51-30%, á meðan jafnari skipting er
hjá eldri konum, eða 48-40%. Þá styð-
ur yfirgnæfandi meirihluti svartra
kvenna og kvenna af rómansk-
amerískum uppruna Clinton. Trump
er hins vegar með 8 prósentustiga
meira fylgi meðal allra hvítra kvenna.
Clinton hefur þó 18 prósentustiga for-
skot á meðal hvítra kvenna með há-
skólagráðu en Trump hefur 24 pró-
sentustiga forskot á meðal hvítra
kvenna sem eru ekki með háskóla-
gráðu.
Til samanburðar má nefna Barack
Obama naut stuðnings svartra Banda-
ríkjamanna með mjög afgerandi
hætti. Um 95% þeirra kusu hann,
fyrsta forseta Bandaríkjanna úr röð-
um blökkumanna, árið 2008.
Andúðin augljósari hjá Trump
Kvenkyns stuðningsmenn fram-
bjóðendanna, Trumps og Clinton, hafa
gert sig gildandi í kosningabaráttunni
og fara ekki leynt með stuðninginn.
Stuðningsmenn Clinton horfa tárvot-
um augum til þess að fyrsta konan
verði forseti Bandaríkjanna og klæð-
ast hvítu eins og konurnar sem börð-
ust fyrir kosningarétti kvenna á með-
an dætur þeirra klæðast bolum með
áletruninni „Ég stend með henni“.
Á kosningafundum Trumps má hins
vegar sjá konur, margar hverjar
klæddar eins og tugthúslimi eða í bol-
um með svívirðilegum áletrunum til að
lýsa skoðun sinni á Clinton. Skilti með
áletruninni „Konur með Trump“ hafa
einnig sést fyrir framan sjónvarpsvél-
arnar á fundunum og þær segjast vilja
mótmæla hlutdrægni fjölmiðlanna.
Konur úr bæði Demókrataflokkn-
um og Repúblikanaflokknum sem
styðja Clinton segja að heiftin í garð
hennar stafi af ákafanum sem ein-
kenni marga stuðningsmenn Trumps
en að andúð kvennanna sem mæta á
kosningafundi hans sé oft sýnilegri en
karlanna. Til að mynda hafi kona
mætt með eftirmynd af Clinton með
snöru um hálsins og önnur hafi stung-
ið prjónum í vúdúdúkku sem svipaði til
Clinton.
„Stórslys“ eða sigur kvenna?
Hillary Clinton með 13 prósentustiga forskot á Donald Trump meðal kvenkyns kjósenda
Þriðjungur kvenna styður Trump Mikil heift meðal stuðningsmanna hans í garð Clinton
Flestar giftar konur
kusu repúblikana
Kjörsókn kynjanna í %
Þekktur stuðningsmaður Trumps Þekktur stuðningsmaður Clinton
2000
58
62 61 60%
64%666561
Konur
Karlar
2004 2008 2012
2000 2004 2008 2012
2016
(kannanir)
2008
McCain
2012
Romney
44
43
55%
56%
Öldungadeildar-
þingmaður frá
Massachusetts
Fyrrverandi
varaforsetaefni
repúblikana
Sarah
Palin
Elizabeth
Warren
Ógiftar
konur
Tekist á um atkvæði kvenna
Heimildir: Center for AmericanWomen and Politics, útgöngukannanir CNN, RealClearPolitics
Ógiftar konur eru núna í fyrsta
skipti fleiri en giftar á meðal
þeirra sem eru kjörgengir
Demókratar hafa notið meiri
stuðnings meðal kvenna en karla.
Hér er munurinn í%
Hlutfall kvenna sem hneigjast til að
styðja demókrata
Kjörsókn kvenna er meiri en karla
Fylgi meðal kvenna
Obama
2008
Obama af skráðum
kjósendum
af öllum
kjósendunum
26%
51%
>60%
2012
af ógiftum konum
kusu demókrata
Árið 2012
kosningar
22
12 14
18 17
KOSNINGAR Í BANDARÍKJUNUM
AFP
Andúð Konur á kosningafundum
Trumps sýna heift sína í garð Clinton.