Morgunblaðið - 08.11.2016, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 08.11.2016, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2016 Skreyting Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Eftir tæplega sjö vikur skellur jólahátíðin á og þá er eins gott að skreytingarnar verði allar á sínum stað eins og þessar í Austurstræti. Eggert Nú þegar kosningar eru búnar er ýmislegt sem kemur upp í hug- ann. Blessuðu fólkinu sem er upptekið af eig- in ágæti og fullvisst um að aðrir séu spilltir og óheiðarlegir, einkum sjálfstæðismenn og framsóknarmenn, tókst að hrópa Sig- mund Davíð Gunn- laugsson úr forsætisráðherrastóln- um. Síðan var plottið í þinginu að smjaðra fyrir Sigurði Inga, fram- sóknarmenn gengu í gildruna, héldu að Sigurður Ingi væri einhver sér- stakur friðarhöfðingi. Segja má að framsóknarmönnum hafi farið svipað og Njálssonum forðum, sem létu gabba sig til að vega Höskuld Hvítanesgoða. Sann- leikurinn er sá að Sigurður Ingi hef- ur ekki verið neinn leiðtogi, bara for- sætisráðherra í starfsstjórn sem þurfti að ljúka ákveðnum verkum. Í kosningabaráttunni 2013 bar Sigmundur Davíð fram ákveðna stefnu um aðgerðir til að rétta við hag lands og þjóðar, sem var skulda- niðurfærsla heimilanna og hvernig ná mætti til baka fé frá svokölluðum hrægömmum og úr slitabúum bank- anna. Fréttamenn og flestir stjórn- málamenn kölluðu hann lýðskrum- ara og lygara. Áður hafði Sigmundur Davíð farið fremstur í baráttunni gegn Icesave sem endaði með sigri þjóðarinnar, en algjörri niðurlæg- ingu Steingríms J. og Jóhönnu Sig. Ýmislegt fleira hefir komið á daginn um þeirra störf, eins og Vigdís- arskýrslan sem ekki má ræða vitnar um. Skömm Steingríms og Jóhönnu mun uppi meðan land byggist. Það hlálega við þetta allt er að Sigmundur Davíð, sem hrópaður var út af sviðinu, hefur með störfum sín- um og stefnu unnið heimssögulegan sigur yfir fjármálaöflunum, enda eru það þau sem standa á bak við allt plottið sem þessi Jó- hannes Kristjánsson lét ginna sig til að vinna við og Kastljós tók fegins hendi til birtingar. Sannleik- urinn er sá að þjóðir eru misheppnar með leiðtoga og á það við um Íslendinga eins og aðrar þjóðir. Heim- urinn stendur t.d. í ævarandi þakkarskuld við Churchill, forsætis- ráðherra Breta, fyrir að vinna stríðið gegn Hitler. Mér virðist að megnið af því fólki sem kosið var nú á þing sé svona miðlungar og lakara en það og sumt jafnvel úrkast. Skömm þingflokks framsóknarmanna í vor er mikil að hafa ekki tekið utan um manninn og stutt hann, ekki brugðust framsókn- armenn Ólafi Jóhannessyni þegar gerningahríðin gekk yfir hann. Ís- lendingar standa í mikilli þakk- arskuld við Sigmund Davíð fyrir hans góðu störf, sem skilað hafa þeim árangri að Ísland er í fremstu röð á flestum sviðum og komið út úr skuldakreppunni. Skömm lítilmennanna sem lögð- ust á sveif með fjármálaöflunum við að fella Sigmund Davíð er mikil, þar er skömm framsóknarmanna þó langmest að bila þegar mest á reyndi, enda varð fylgið við Fram- sóknarflokkinn í kosningunum það minnsta frá stofnun hans. Eftir Þorstein Ágústsson » Sigmundur Davíð, sem hrópaður var út af sviðinu, hefur með störfum sínum og stefnu unnið heims- sögulegan sigur yfir fjármálaöflunum. Þorsteinn Ágústsson Höfundur er bóndi og framsóknarmaður. Spilling og heiðarleiki Ég smurði súkku- laðikreminu varlega á kökuna, sáldraði yfir það kókosmjöli og stakk afmæliskerti í miðjuna og kveikti á. Ég beið eftir að mamma kæmi heim úr vinnunni í Neðra- Breiðholtið, þar sem við bjuggum – en hún átti ekki afmæli. Ég vildi bara gleðja hana og fá hana til að gleyma amstrinu um stund – og þreytunni. Ég var átta ára. Mamma var í tveimur vinnum, venjulegu (láglauna)vinnunni sinni og svo ræsti hún vinnustaðinn að hefðbundinni vinnu lokinni. Venjulegu vinnulaunin dugðu nefnilega ekki fyrir fram- færslu litlu fjölskyldunnar, mömmu, mín og bróður míns og ekki einu sinni þó aukavinnunni væri bætt við. Mamma var hörkudugleg og vann oft tíu tíma á dag en við söknuðum hennar. Þrátt fyrir að vera aðeins sex ára þegar mamma varð einstæð móðir skynjaði ég strax þá erfiðleik- ana sem heimilið átti við að etja til að ná endum saman – og þar var ekki spreðað. Mamma var snillingur að elda ríkisstjórnarmálítiðir og okkur systkinum fannst lifur, hjörtu og nýru herramannsmatur. Ég var stolt af mömmu og öllu því sem hún gerði og stóð fyrir og vitaskuld reyndi hún eins og hún gat að láta okkur systk- inin ekki finna fyrir efnaleysinu – en stundum var það erfitt. Strax átta ára var ég orðin ansi lunkin í heimilisbókhaldi. Um hver mánaðamót, á meðan mamma var í vinnunni, þá tók ég upp launaseð- ilinn hennar og alla reikningana – lagði reikningana saman og dró heildarsummuna frá launaseðlinum. Útkoman var nær alltaf í mínus. Þá tók ég upp símtólið, hringdi í mömmu í vinnuna og tilkynnti henni að við ættum ekki fyrir mat þennan mánuðinn. Vitaskuld harðbannaði hún mér að gera þetta en ég hlýddi aldrei og hún sagði mér að þetta væri vitleysa en mér fannst þetta vera sameiginlegt vandamál okkar mömmu, bara verst að ég gæti ekki fengið vinnu líka til að hjálpa til. Okurlánaheimur barnsins Ég hafði heyrt talað um okurlánara í frétt- um og var alveg bálreið að þeir skyldu vera að senda henni mömmu minni svona reikninga. En mamma hafði ekki svo mikið sem slegið lán, nema fyrir íbúðinni okkar og engan áttum við bílinn. Það var þarna sem ég ákvað að ég skyldi aldrei skulda neinum neitt og það hefur reynst farsæl ákvörðun. Reyndar sagði mamma mér seinna að reikningarnir hefðu nú bara verið hefðbundnir, eins og frá Orkuveit- unni, Rafmagnsveitunni, rukkanir fyrir fasteignagjöldum og því um líkt. En það breytti því ekki að það kom fyrir að við áttum við ekki fyrir mat eftir að hafa greitt þessa reikn- inga, þrátt fyrir að mamma ynni svona mikið. Við sultum ekki og áttum góða að en það er alvarlegt ef vinnandi fólk nær ekki endum saman á launum sínum – að þau dugi ekki fyrir lág- marksframfærslu. Er hægt að kalla það eitthvað annað en fátækt? Um það snúast kjaradeilur að hluta. Um það snýst skýrslan um Efra- Breiðholtið. Slíkt hlutskipti hefur ekki aðeins áhrif á foreldrana heldur líka börn og samfélagið allt, því eng- inn maður er eyland, einhlítur sjálf- um sér. Í Neðra-Breiðholtinu vorum við krakkarnir lítt meðvitaðir um hvað væru eignaríbúðir og hvað væru félagslegar íbúðir. En allir vissu hvar bæjarblokkin var og hverjir komu þaðan. Þau, drengir og stúlkur, fengu að finna fyrir því að búa í þessari blokk. Foreldravandi, barnavandi eða samfélagsvandi? Sjálf kenndi ég um skeið í Efra- Breiðholtinu og í öðru úthverfi í Reykjavík sem þá var í byggingu og gat maður frekar fundið að það var eitthvað að aðstæðum heima fyrir, annaðhvort foreldravandamál (t.d. hjónabandserfiðleikar, veikindi, fíkniefnavandamál, vanhæfni) efna- hagsvandamál (t.d. lág laun, mikil skuldsetning miðað við tekjur eða ein innkoma) eða sambland af þessu tvennu, sem gerði það að verkum að oft og tíðum voru það börn frá sömu fjölskyldu sem lentu í erfiðleikum í skóla. Það eru í raun ekki börn sem eru fátæk heldur foreldrarnir. Fátækt er efnahagslegt ástand, skortur, hvort sem það er algilt eða afstætt. Börn eru iðulega mjög meðvituð um ástandið á heimili sínu og það getur haft áhrif á þau, oft mótandi og til góðs, en stundum fylgja fátækt erf- iðleikar, færri tækifæri og minni lífs- gæði fyrir börn sem geta haft nei- kvæð áhrif á lífstakt þeirra. Við höfum búið í velferðarþjóðfélagi síð- an eftir stríð og það hlýtur að vera metnaður okkar að halda því áfram fyrir komandi kynslóðir. Stefnum að því að útrýma fátækt og basli á Íslandi, ekki bara í Efra- Breiðholti, heldur alls staðar. Stefnum að því að útrýma hinum langa vinnutíma, stefnum á að leyfa íslenskum fjölskyldum að njóta sín saman, stefnum á að skipta íslensku þjóðarkökunni á sanngjarnan en skynsamlegan og uppbyggilegan hátt. Stefnum á að gera Breiðholts- börnunum og öllum öðrum slíkum hátt undir höfði. Ég skora því á verð- andi ríkisstjórn, núverandi borg- aryfirvöld og sveitarfélög að móta stefnu sem fylgt er eftir og gera sitt til að bjarga börnunum því þetta er fyrst og fremst samfélagsvandi sem hleður upp á sig ef ekkert er að gert. Eftir Unni H. Jóhannsdóttur » Þrátt fyrir að vera aðeins sex ára þegar mamma varð einstæð móðir skynjaði ég þá strax erfiðleikana sem heimilið átti við að etja til að ná endum saman. Unnur H. Jóhannsdóttir Höfundur er kennari, blaðamaður og með diplóma í fötlunarfræði. Ég er Breiðholtsbarn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.