Morgunblaðið - 14.11.2016, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 14.11.2016, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2016 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælummeð Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selolía fyrir hunda • Fyrirbyggir exem • Betri og sterkari fætur SVIÐSLJÓS Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ein mikilvægasta forsenda þess að rafbílum fjölgi hér á landi er að gott aðgengi sé að raftenglum við heimili, ekki síst fjöleignarhús, og vinnu- staði. Þetta er mat Runólfs Ólafs- sonar, framkvæmdastjóra Félags ís- lenskra bifreiðaeigenda (FÍB). „Yfirvöld hafa ekki sinnt því í ára- tugi að setja þá kröfu í regluverkið að það séu úti- tenglar í nýbygg- ingum fyrir raf- bíla,“ sagði Runólfur. Hann rifjaði upp að þegar fjölbýlis- hús voru byggð við Hraunbæ í Árbæjarhverfi fyrir 40-50 árum hafi verið settir raftenglar við bílastæði íbúanna. Þá var hugsunin sú að þar gætu bíleigendur sett ryk- sugu í samband. Einnig höfðu hönn- uðir í huga þróun sem orðið hafði á Norðurlöndum varðandi rafknúna vélarhitara og hitablásara í bílum. Þá voru vélin og bíllinn orðin heit þegar lagt var af stað á köldum vetr- armorgnum. Runólfur sagði að skortur á raf- tenglum, einkum við fjöleignarhús, skapaði vandamál. Rafbílseigandi í blokk kemst ef til vill ekki í raftengil til að hlaða bílinn nema í sameign. Slík mál hafa m.a. komið á borð FÍB, en leyst farsællega hingað til. „Það ríkir ákveðin vanþekking á orkuþörf rafbíla. Hún er tiltölulega lítil og mun minni en flestir halda. Í sumum tilvikum hafa húsfélög samið um að eigandi rafbíls borgi aukalega í hússjóðinn sem nemur áætlaðri orkuþörf bílsins,“ sagði Runólfur. „Hin lausnin er að setja upp sér mæli við tengil sameignarinnar sem þá er rukkað sérstaklega fyrir.“ Runólfur sagði að yfirleitt væri auðvelt að leysa svona mál á meðan aðeins einn í fjölbýlishúsinu ætti raf- bíl. Þegar rafbílaeigendum fjölgaði ykist vandinn. Meðal annars vökn- uðu spurningar um hvort rafbíla- eigendur fengju forgang að til- teknum bílastæðum sameignarinnar og eins hvar ætti að stinga bílunum í samband. Þörf fyrir fleiri hleðslutengla Hreinir rafbílar eru enn sem kom- ið er innan við 1% af fólksbílaflota landsmanna. Runólfur sagði að aukningin nú væri í tengiltvinn- bílum, þ.e. rafknúnum bílum sem líka væru með bensínvél. Framboðið og úrvalið ykist sífellt og kvaðst hann eiga von á að rafknúnum bílum fjölgaði á næstu árum. Þó gæti það orðið flöskuháls ef ekki yrði búið að mæta þörfinni fyrir hleðslutengla við heimili, einkum fjöleignarhús. Hann sagði að setja þyrfti í bygg- ingareglugerð kvöð um raftengla ut- anhúss á nýbyggingum. „Fyrir um 15 árum fórum við í FÍB í herferð með Landvernd og fleiri varðandi uppsetningu úti- tengla. Fyrst og fremst var það hugsað fyrir vélarhitara sem klár- lega draga úr eldsneytisnotkun og auka þægindi bíleigenda. Það hefði orðið ákveðin þjálfun til framtíðar til undirbúnings rafbílavæðingu,“ sagði Runólfur. „Við áttum fundi með raf- orkufyrirtækjunum, Siv Friðleifs- dóttur, þáverandi umhverfisráð- herra, Sambandi íslenskra sveitar- félaga og Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur, þáverandi borgarstjóra. Það tóku allir mjög vel í þetta en nú, 15 árum seinna, er það ekki enn komið inn í byggingarreglugerð að það séu settir útitenglar við nýjar skrif- stofubyggingar og fjöleignarhús. Þetta kostar lítið í nýbyggingu en getur kostað töluvert mikið þegar þetta er sett upp eftir á.“ Gefins hleðslustöð Í frétt Morgunblaðsins 7. október sl. kom fram að Orkusalan, sem er dótturfyrirtæki RARIK, hefur ákveðið að færa öllum sveitar- félögum á Íslandi hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla að gjöf. Magnús Krist- jánsson, framkvæmdastjóri Orku- sölunnar, segir að með þessu vilji fyrirtækið leggja sitt af mörkum til að stuðla að aukinni rafmagnsvæð- ingu bílaflotans hérlendis. Víða vantar tengla fyrir rafbílana  Framkvæmdastjóri FÍB vill að gert verði ráð fyrir tenglum í nýbyggingum til að hlaða rafbíla  Eigendur rafbíla sem búa í fjöleignarhúsum hafa í tilvikum þurft að nota rafmagn úr sameign Morgunblaðið/Hallur Már Hallsson Í hleðslu Víða má sjá hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla. Ljóst er að þeim mun fjölga og net þeirra þéttast rafbílaeigendum til mikillar gleði. Runólfur Ólafsson Talsvert hefur verið rætt um hvort gera eigi kröfur í bygging- arreglugerð sem lúta að aðstöðu fyrir hleðslu raf- bíla. Björn Karls- son, forstjóri Mannvirkjastofn- unar, segir málefnið mjög mik- ilvægt og að fjallað hafi verið um það á vettvangi stjórnsýslunnar. „Ef nú yrði gerð krafa um það í byggingarreglugerð að það verði að vera hægt að hlaða rafbíla í bílakjöllurum þá vakna margar spurningar,“ sagði Björn. T.d. hvað krafan taki til stórs hluta stæða, hvaða tækni eigi að krefjast og hve öflugrar tengingar. Einnig hvort krafan eigi að ná til orkusal- ans um heimtaug að húsinu. Björn benti á mjög öra þróun á þessu sviði. Ef svona krafa yrði gerð í dag þá næði hún til allra húsa sem hönnuð yrðu eftir það. „Eftir 20 ár væru bara um 10% af húsakostinum svona útbúin. Það að setja svona kröfu í byggingar- reglugerð myndi ekki hjálpa okkur mikið,“ sagði Björn. Hann kveðst telja að það sé mikilvægara að grípa til almennra aðgerða til að auðvelda fólki að hlaða rafbíla í þegar byggðum byggingum. Mannvirkjastofnun hefur fengið fyrirspurnir um brunavarnir í bíla- kjöllurum og hvort gera þurfi sér- stakar ráðstafanir vegna nýrra orkugjafa. Hvort t.d. rafhleðsla margra bíla muni auka bruna- hættu í bílakjallara. „Við erum með góðar brunavarnir í bílakjöllurum í dag. Brunahólfun bílakjallara út í stiga- gang er mjög örugg. Þannig gerir byggingarreglugerð ekki auknar kröfur um öryggi í bílakjöllurum vegna rafbílahleðslu. En sem stendur eru ekki gerðar sérstakar kröfur um að tryggja skuli mögu- leika til rafbílahleðslu þó hvatt sé til að hugað sé að slíkum ráðstöf- unum við hönnun nýbygginga,“ sagði Björn. Almennra aðgerða er þörf MANNVIRKJASTOFNUN SPURÐ UM ÖRYGGIÐ Björn Karlsson Húseigendafélag- inu hafa ekki bor- ist kvartanir vegna rafbíla eða hleðslustöðva, að sögn Tinnu Andr- ésdóttur, lög- fræðings félags- ins. „Það virðist vera almenn sátt um þetta,“ sagði Tinna. Húseig- endafélagið hefur verið spurt hvað þurfi samþykki margra eigenda til að taka frá stæði í sameiginlegri bílageymslu fyrir rafbíla. Hún sagði að ef bílastæðin væru öll í sameign, þannig að það þyrfti að taka frá stæði fyrir rafbíla þar sem eru raf- tenglar, þá þyrftu allir eigendur að samþykkja það. „Þá ertu búinn að tileinka þér sameign umfram aðra,“ sagði Tinna. Hún kvaðst hafa búið í fjöleignar- húsi og átt rafbíl. „Umboðin sem selja rafbíla gefa upp áætlaðan kostnað við að hlaða bílinn yfir árið. Hann er svona 10-12 þúsund krón- ur. Við greiddum ríflega þessa fjár- hæð í hússjóðinn svo húsfélagið væri ekki að greiða aukinn raf- magnskostnað okkar vegna.“ Þrír íbúðareigendur í húsinu voru með rafbíla. Þeir settu hver upp hleðslustöð við sitt stæði. Stæðin í bílakjallaranum tilheyrðu íbúðun- um þannig að hver átti sitt ákveðna stæði. Frátekin bílastæði í sameign HÚSEIGENDAFÉLAGIÐ FÉKK FYRIRSPURN Tinna Andrésdóttir Orka náttúrunnar (ON) er með 13 hraðhleðslu- stöðvar fyrir raf- bíla. Þar er hægt að fá 80% hleðslu á 20-30 mínútum. Hleðsl- an hefur verið gjaldfrjáls til þessa en það breytist um mitt næsta ár. „Við er- um að undirbúa að hefja gjaldtöku fyrir þessa þjónustu,“ sagði Áslaug Thelma Einarsdóttir, forstöðu- maður markaðs- og kynningarmála ON. Unnið er að gerð upplýsinga- og greiðslukerfis. Útbúið verður smá- forrit (app) sem sýnir hvar hleðslu- stöðvar eru og hvort þær eru laus- ar. Hægt verður að borga í gegnum appið eða með lykli líkum þeim sem notaðir eru á bensínstöðvum. Appið eða lykillinn verða tengd við greiðslukort viðskiptavinarins. Upplýsinga- og greiðslukerfið verð- ur kynnt snemma á næsta ári en gjaldtaka á að hefjast um mitt næsta ár. Gjaldskrá liggur ekki fyrir. ON er að skoða næstu skref í uppbyggingu hleðslustöðva. Til skoðunar er að setja upp milli- hleðslustöðvar til viðbótar við hrað- hleðslustöðvarnar. Millihleðslustöð er 2-5 klukkustundir að hlaða rafbíl. Til greina kemur að setja milli- hleðslustöðvarnar hjá hraðhleðslu- stöðvunum. „Við erum að skoða hvort við lok- um hringnum í kringum Ísland með hraðhleðslustöðvum eða með blöndu af hraðhleðslu- og milli- hleðslustöðvum. Það er líka verið að skoða að setja upp fleiri stöðvar milli Reykjavíkur og Akureyrar og eins að fjölga hraðhleðslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu,“ sagði Áslaug. ON fær margar fyrirspurnir um samstarf við rafbílavæðingu. Sótt var um styrk úr Orkusjóði til upp- byggingar á innviðum fyrir rafbíla. Skv. upplýsingum frá Orkusjóði eru 200 milljónir til ráðstöfunar en umsóknir voru upp á um fjórfalda þá upphæð. Gjaldtaka hefst á næsta ári ORKA NÁTTÚRUNNAR FJÖLGAR HLEÐSLUSTÖÐVUM Áslaug Thelma Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.