Morgunblaðið - 14.11.2016, Page 13

Morgunblaðið - 14.11.2016, Page 13
Fagnaðarfundir Brasssysturnar þrjár eru glaðar að vera saman á ný. Alls staðar en samt hvergi Tónleikaferðalagið með Flor- ence + The Machine var einnig 18 mánuðir og þar fylgdu þau eftir sein- ustu plötu sveitarinnar, How Big, How Blue, How Beautiful. „Það ferðalag endaði núna í júlí svo maður er rétt kominn aftur á jörðina,“ útskýrir Valdís. „Þetta var miklu meiri keyrsla en með Björk og undir lokin vorum við öll orðin rosa- lega langþreytt. Margar starfs- stéttir ferðast mikið, en fæstar koma fram á tónleikum þar sem yfir 10 þúsund manns öskra framan í mann kvöld eftir kvöld. Við spiluðum 5-6 tónleika á viku og alltaf í nýrri borg. Það kom fyrir að ég var ekki viss hvar við vorum, en þá sá maður það á lagalistanum á sviðinu. Það er sold- ið fyndið. Maður er alls staðar en samt hvergi.“ Brasssystur saman á ný „Við vorum þrjár íslenskar úr Wonderbrass beðnar um að túra með Florence,“ svarar Valdís, spurð að því hvernig hún hafi fengið starfið. „Með mér voru Sigrún Jóns- dóttir básúnuleikari og Björk Níels- dóttir sem spilaði á trompet. Við vor- um ráðnar inn sem bakradda- söngkonur og brassleikarar, en eiginlega með áherslu á bakradda- sönginn, sem er mjög fyndið, því ég hef aldrei lært að syngja. Björk er reyndar klassísk sópransöngkona og hún hjálpaði okkur með tækni og bresku bakraddasöngkonurnar kenndu okkur að syngja með popp- rödd. Ég hef bara sungið í Hamra- hlíðarkórnum hjá Þorgerði Ingólfs- dóttur og sú reynsla nýttist reyndar ótrúlega vel í öllum poppharm- oníunum með Florence.“ Vinaleg bresk blómarós Valdís segir þau hafa ferðast mjög víða um Bandaríkin, en auk þess fóru þau til Ástralíu, Nýja- Sjálands og spiluðu víða um S- Ameríku og Evrópu. „Þegar kom upp að við værum að fara í þetta ferðalag þá hafði ég ekki hugmynd um hver Florence + The Machine væru, ég þurfti að gúgla sveitina. Ég áttaði mig strax á að sveitin var afar vinsæl; eftir að ég lærði lagalistann heyrði ég að það var alls staðar verið að spila þau og allir virtust þekkja til þeirra. Það var því kominn tími á að ég kynntist einhverju nýju,“ segir Valdís hlæj- andi. Hvernig var að vinna með Flor- ence? „Hún er rosalega feimin, mjög tilbaka félagslega, sem er mjög sér- stakt því hún er eiginlega andstæða sjálfrar sín á sviði, alveg á útopnu. Mjög töff, nánast eins og Jim Morr- ison. Annars er hún mjög vinaleg bresk blómarós. Við vorum öll orðin eins og ein stór fjölskylda. Áttum hvert annað að bæði á góðum og erf- iðum stundum. Þetta var jafn erfitt og það var skemmtilegt,“ segir Val- dís. Fyrir framan haf af fólki Ef þú fengir núna tilboð um að túra með hljómsveit í 18 mánuði, myndir þú fara? „Ó já!“ svarar Valdís án þess að hugsa sig um. „Ég held að þetta sé ávanabindandi. Við sem vorum með Florence erum öll farin að sakna þess að spila. Það er einstök orka sem myndast á þessum stóru tónlist- arhátíðum og íþróttaleikvöngum, sem er mjög hvetjandi og maður finnur ekki fyrir stressi fyrir framan þetta haf af fólki. Æpandi múgur verður að daglegu brauði. Þetta er mjög skemmtilegur lífsstíll þótt hann sé bæði þreytandi og krefjandi, enda snýst hann mikið um að hugsa vel um sig þessar dýrmætu stundir milli ferðalaga og tónleika; halda sér í góðu spila- og söngformi, sofa vel og borða hollt. Það eru án efa for- réttindi að fá að taka þátt í tónlistar- flutningi af þessari stærðargráðu.“ Hvert er draumabandið? „Radiohead, en ég held að þeir hafi aldrei verið með sessjónleikara, þannig að það er heldur ólíklegt að af því verði. Ég gæti það hvort eð er ekki, ég væri örugglega alltaf skæl- andi á sviðinu, tónlistin hefur það djúpstæð áhrif á mig,“ segir Valdís og hlær. „Ég væri hiklaust til í að vinna aftur með Björk eða Florence. Ég er einnig opin fyrir mismunandi tegundum tónlistar, í því felst hress- andi áskorun. Mér datt t.d. aldrei í hug þegar ég útskrifaðist sem klass- ískur trompetleikari að ég yrði farin að túra með bresku indíbandi ári seinna. Maður á aldrei að útiloka neitt.“ Sjáum til hvað gerist „Ég er að flytja heim í janúar. Ég á breskan kærasta og það var hans hugmynd. Það má segja að hann sé að flytja mig aftur heim. Ég er búin að vera í burtu í rúmlega fimm ár og er tilbúin að koma heim. Ég ætla að byrja á að leysa af í brasskennslu í Mosfellsbæ og hlakka mikið til að kenna og vekja áhuga á tónlist hjá börnum. Ég væri líka til í að vinna við við- burðastjórnun eða umboðs- mennsku, sem ég var aðeins byrjuð á í London áður en tilboðið frá Flo- rence kom. Við komum heim strax í byrjun janúar, beint í svartasta skamm- degið sem verður hressandi fyrir kærastann. Við ætlum að kaupa okkur jeppa svo við eigum ekki í vandræðum með að komast í kaffi í Mosfellsdal, og svo sjáum við bara til hvað gerist,“ segir Valdís bjart- sýn og brosandi að lokum. Bakraddir Þrjár íslenskar blómarósir styðja Florence í söngnum. Heimsreisa Wonderbrass-stelpurnar fylgdu Björk yfir hálfan hnöttinn. Kærastinn Benjamín ætlar að flytja Valdísi heim til Íslands. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2016 Grunnur að góðu lífi 34 ára reynsla í fasteignasölu Þorlákur Ómar Einarsson, löggiltur fasteignasali. Sími 820 2399 thorlakur@stakfell.is Manneskjan er í eðli sínu nokk- uð sterk og við höfum getu til að auka hraðann og takast á við erf- iðleika en einungis tímabundið. Fólk heldur svona ástand bara út í ákveðinn tíma áður en undan fer að láta. Stundum þarf ekki mikið til Það þarf oft ekki mikið til að létta undir með stuðningsaðila, stundum er nóg að samþykkja og sýna viðkomandi að við höfum skilning á því sem viðkomandi er að ganga í gegnum. „Hæ, hvernig hefur ÞÚ það?“ getur breytt miklu. Á öld samskiptamiðla þar sem minna er um að fólk kíki í kaffi eða taki upp símtólið er fjar- lægðin meiri á milli fólks og við í raun vitum minna hvernig fólki líður, flestir birta bara stöðu- færslur á samfélagsmiðlum af sér brosandi eða þegar allt gengur vel. Ef þú veist um einhvern í þínu nærumhverfi sem hefur misst ein- hvern sér nákominn, eða einhver þeim nákominn er að glíma við erfið veikindi eða áfall, hvernig væri þá að kíkja í kaffi eða taka upp símtólið og tala við viðkom- andi. Heyra hvernig hann (hún) hefur það og sýna hluttekningu og skilning í verki, ekki bara setja „like“ eða „love“ í stöðufærsluna.  Heilsustöðin, sálfræði- og ráðgjafarstofa, Skeifunni 11a, Reykjavík. www.heilsustodin.is Norræna bóka- safnavikan verður sett í 20. sinn í dag, mánudaginn 14. nóvember. Nor- ræn frásagnarlist og sagnaauður eru í öndvegi og vikan sneisafull af alls kyns viðburðum – svo sem upp- lestrum, umræðum, sýningum og öðrum menningarviðburðum – sem samtímis eiga sér stað á þúsundum bókasafna, skóla og samkomustaða víða á Norðurlöndum og nærliggjandi svæðum. Meginmarkmið Norrænu bókasafnavikunnar er að lýsa upp svartasta skammdegið með því að tendra ljós og lesa bók. Norræna bókasafnavikan er verkefni á vegum Sambands Norrænu félaganna sem leitast við að efla lestrargleði og breiða út norrænar bókmenntir. Stóri upplestrardagurinn er í dag, en þá er kappkostað að fá eins marg- ar stofnanir og hugsast getur til þátt- töku: mögulega verður um óopinbert heimsmet að ræða, þegar lesið verð- ur upp úr völdum textum á hinum ýmsu tungumálum samtímis á yfir 2.000 stöðum. Nánari upplýsingar: www.bibliotek.org/is. Stóri upplestrardagurinn Norræn frá- sagnarlist og sagnaauður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.