Morgunblaðið - 14.11.2016, Side 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2016
14. nóvember 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 111.78 112.32 112.05
Sterlingspund 138.43 139.11 138.77
Kanadadalur 83.22 83.7 83.46
Dönsk króna 16.361 16.457 16.409
Norsk króna 13.47 13.55 13.51
Sænsk króna 12.344 12.416 12.38
Svissn. franki 113.09 113.73 113.41
Japanskt jen 1.0494 1.0556 1.0525
SDR 153.25 154.17 153.71
Evra 121.76 122.44 122.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.9767
Hrávöruverð
Gull 1255.65 ($/únsa)
Ál 1772.5 ($/tonn) LME
Hráolía 45.8 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Danskir bankar
spá því að efna-
hagsstefna
Donalds Trumps
muni hafa slæm
áhrif á danskt
atvinnulíf. Helsta
hlutabréfavísitala
Danmerkur lækk-
aði um 3,3% í
síðustu viku og er lækkunin aðallega
rakin til bandarísku forseta-
kosninganna.
Að sögn Bloomberg áætlar Nordea
að verði sum kosningaloforð Trumps
að veruleika gæti það kostað danskt
atvinnulíf um 10.000 störf og minnk-
að viðskiptaafgang um þriðjung.
Mörg af stærstu fyrirtækjunum sem
skráð eru á danska hlutabréfamark-
aðinn fást við útflutning, skipaflutn-
inga og vindmyllusmíði, en Trump þyk-
ir líklegur til að grípa til aðgerða sem
gætu dempað alþjóðaverslun og vöxt
umhverfisvænna orkugjafa. ai@mbl.is
Telja stefnu Trumps
koma sér illa fyrir Dani
Tap Ráðhústorgið
STUTT
Sigurður Nordal
sn@mbl.is
Stjórn Kviku banka mælir ekki með
því við hlutahafa sína að taka nýju og
endurbættu tilboði Virðingar í allt
hlutafé Kviku. Stjórnin hefur gert
forsvarmönnum Virðingar grein
fyrir því að hún telji markvissari leið
til sameiningar að Kvika geri hlut-
höfum Virðingar tilboð um kaup á
bréfum þeirra.
Eins og greint hefur verið frá í
Morgunblaðinu hefur Virðing átt í
samskiptum við helstu hluthafa
Kviku um kaup á bréfum í bankanum
með sameiningu fjármála-
fyrirtækjanna í huga. Um miðjan
október sendu forsvarmenn Virðing-
ar stjórn Kviku formlegt tilboð sem
beint var til eigenda bankans.
Stjórnin mat tilboðið hins vegar ekki
nægilega hagstætt til þess að ástæða
væri til þess að senda það áfram til
hluthafa.
Virðing 31% í sameinuðu félagi
Í byrjun nóvember sendi Virðing
svo endurbætt tilboð til stjórnar
Kviku. Í tilboðinu er Kvika banki
verðmetinn á tæplega 6,6 milljarða
króna en eigið fé bankans var 6,2
milljarðar í lok september síðastlið-
ins. Á móti er verðmæti Virðingar
metið á tæplega 3 milljarða króna
þannig að verðmæti hlutafjár Virð-
ingar yrði um 31% í sameinuðu félagi
á móti 69% hlutafjár Kviku.
Samkvæmt tilboðinu myndi hlut-
höfum Kviku gefast kostur á að fá
söluvirði allt að helmings hlutafjár
síns greitt í reiðufé og afganginn í
formi hlutafjár í sameinuðu félagi.
Hluthafar með minna en 1% hlut í
Kviku myndu þó geta selt allan sinn
hlut fyrir reiðufé.
Virðing setur það skilyrði fyrir til-
boðinu að eigendur 2/3 hlutafjár í
Kviku gangi að því og samþykki
sameiningu félaganna, auk þess sem
hluthafar Kviku samþykki að selja
Virðingu að minnsta kosti 20% hluta-
fjár. Þann hluta sem greiddur yrði
með reiðufé hyggst Virðing fjár-
magna með útgáfu nýs hlutafjár.
Samlegð og tekjuaukning
Ljóst er að stjórnendur Virðingar
sjá mikil tækifæri í samruna fjár-
málafyrirtækjanna tveggja. Sam-
legðaráhrif eru metin á um hálfan
milljarð króna á ári auk þess sem
tækifæri til tekjumyndunar aukist
verulega. Nýr banki yrði leiðandi á
öllum sviðum fjárfestingarbanka-
starfsemi, með sambærilegar tekjur
og Íslandsbanki og Landsbanki hafa
á því sviði. Sameinaður banki yrði
leiðandi í eignastýringu með nærri
220 milljarða króna í stýringu, auk
verðbréfamiðlunar og fyrirtækjaráð-
gjafar. Fram kemur í tilboði Virðing-
ar að lagt er til að félögin yrðu sam-
einuð undir nafni Kviku banka.
Mæla ekki með tilboðinu
Stjórn Kviku tók tilboð Virðingar
til umfjöllunar á fundi í síðustu viku
og framsendi tilboðið í kjölfarið til
hluthafa. Ljóst er að áhugi á sam-
runa er fyrir hendi innan Kviku.
Stjórnin mælir hins vegar ekki með
því að hluthafar taki tilboðinu á
grundvelli þess að verðmæti Virð-
ingar sé metið hlutfallsleg of hátt í
tilboðinu miðað við verðmæti Kviku.
Þá séu fyrirvarar og skilyrði tilboðs-
ins, meðal annars varðandi fjár-
mögnun þess, flókin og óaðgengileg.
Stjórn Kviku telur að markvissari
leið til sameiningar sé að Kvika geri
hluthöfum Virðingar kauptilboð
gegn greiðslu reiðufjár og lýsir
stjórnin sig reiðubúna til viðræðna á
þeim grundvelli.
Kvika lýsir vilja til þess að
gera gagntilboð í Virðingu
Sameining Virðing hefur sent endurnýjað tilboð til hluthafa í Kviku með samruna fjármálafyrirtækjanna í huga.
Sameining Kviku
og Virðingar
» Kvika er með um 112 millj-
arða króna í stýringu og Virð-
ing með um 105 milljarða.
» Bæði fyrirtækin bjóða upp á
fyrirtækjaráðgjöf, markaðs-
viðskipti og eignastýringu.
» Kvika veitir bankaþjónustu
fyrir stærri viðskiptavini.
» Virðing rekur framtakssjóði
og hyggur auk þess á opnun
skrifstofu í London á nýju ári.
Stjórn Kviku mælir ekki með tilboði Virðingar Kvika metin á 6,6 milljarða
Gott gengi
bandarískra
hlutabréfa í kjöl-
far forsetakosn-
inganna í síðustu
viku varð til þess
að Warren
Buffett færðist
upp um tvö sæti á
lista Bloomberg
yfir ríkustu
menn heims. Jukust auðæfi Buffetts
um 6,2 milljarða dala í vikunni sem
dugði til að ýta honum upp fyrir
Amancio Ortega, eiganda Inditex,
og Jeff Bezos, stofnanda Amazon. Í
kosningabaráttunni hafði Buffett
lýst yfir stuðningi við Hillary
Clinton, frambjóðanda demókrata.
Meðal annars hækkaði hluta-
bréfaverð Wells Fargo um 13% eftir
að úrslit kosninganna urðu ljós.
Berkshire Hathaway, fjárfestinga-
félag Buffetts, á 10% hlut í bank-
anum en markaðurinn væntir þess
að með repúblikana við völd verði
dregið úr regluverki fjármálageir-
ans.
Mexíkóinn Carlos Slim, sem oft
hefur verið í eða við efsta sætið á
lista Bloomberg, tapaði jafnvirði
5,8 milljarða dala í vikunni vegna
veikingar mexíkóska pesóans.
ai@mbl.is
Trump ýtir Buffett
upp í annað sætið
Warren Buffett
Japanski bílaframleiðandinn
Toyota hefur samið um að greiða
3,4 milljarða dala í bætur vegna
ryðskemmda sem urðu á pallbílum,
jeppum og jepplingum sem fyrir-
tækið framleiddi á árunum 2005 til
2010. Er þetta niðurstaða hópmál-
sóknar þar sem Toyota var gert að
sök að hafa ekki ryðvarið um 1,5
milljónir bíla nægilega vel svo að
miklar ryðskemmdir gátu orðið á
burðarvirki bílanna.
Toyota neitar sök í málinu en
segist fagna því að tekist hafi að
ljúka dómsmálinu á farsælan hátt.
ai@mbl.is
Toyota borgar 3,4 milljarða
dala vegna ryðskemmda
AFP
Tjón Verslun Toyota vestanhafs.
Málið snerti hálfa aðra milljón bíla.