Morgunblaðið - 14.11.2016, Síða 16

Morgunblaðið - 14.11.2016, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Nýafstaðinkosn-ingabar- átta hér á landi snerist að drjúg- um hluta um það sem engu skiptir í bland við þráhyggju og mis- skilning. Því miður virðast stjórnarmyndunarviðræður ætla að taka mið af þessu og dellumálin vera helsti ásteytingarsteinninn. Eftir því sem fram hefur komið er umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu helsta ágreiningsefni flokk- anna þriggja (eða tveggja?) sem nú eiga í viðræðum um stjórnarmyndun. Inn í þetta blandast svo annað mál af sömu rótum runnið sem er breytingar á fyrirkomulagi gjaldmiðils þjóðarinnar. Ísland stendur frammi fyrir margvíslegum brýnum verkefnum. Hér á til dæmis eftir að ráðast í myndarlegar skattalækkanir eftir yfir- gengilegar skattahækkanir vinstristjórnarinnar. Þá þarf að huga að ýmsum verk- efnum til að treysta stoðir samfélagsins, meðal annars vegna aukins ferðamanna- straums til landsins en einn- ig til að tryggja að heil- brigðis-, velferðar-, og menntakerfi standi undir þeim kröfum sem almenn- ingur í landinu gerir til þeirra mála. Allt eru þetta þýðingarmikil verkefni sem varða almenning miklu. En það eru ekki þessi verkefni og önnur álíka sem mestu ráða um myndun næstu ríkisstjórnar. Sú um- ræða snýst aðallega um hvernig hægt sé að þóknast Viðreisnarflokkunum í Evr- ópumálum og í aðförinni að undirstöðuatvinnuvegum þjóðarinnar, en íslenskir krataflokkar hafa af ein- hverjum ástæðum lengi haft horn í síðu þeirra atvinnu- greina. Evrópumálin voru kosin út af borðinu með eftir- minnilegum hætti þegar helsti ESB-flokkurinn nán- ast þurrkaðist út. Niður- staðan var sú að þeir flokkar sem töluðu þannig að skilja mátti að þeir vildu inn í Evr- ópusambandið, sem þeir þorðu reyndar aldrei að segja berum orðum af ótta við kjósendur, hafa 14 þing- menn af 63. Svo eru ein- hverjir sem vilja láta kjósa um eitthvað tengt þessu að- ildarbrölti, en það er óljóst nákvæmlega hverjir það eru og hvað þeir myndu styðja í þeim efnum. En þeir segjast ekki styðja aðild að ESB. Og ef horft er til skoðanakannana um vilja þjóðarinnar er hún staðföst sem fyrr að vilja ekki inn í ESB. Það er ömurlegt að enn skuli ESB-mál þvælast fyrir í íslenskum stjórnmálum þrátt fyrir skýran vilja al- mennings um að Íslandi sé haldið utan sambandsins. Þetta er mikið skemmd- arverk og það versta er að það byggist á þeirri blekk- ingu að einhver munur sé á að sækja um aðild og gerast aðili. Að hægt sé að sækja um og sjá hvað „býðst“ í því sem aðildarsinnar kalla „samningaviðræður“. Allir vita og ESB talar mjög af- dráttarlaust um þetta, að það sem býðst við aðild að ESB er aðild að ESB. Um- sóknarríki fær engar var- anlegar undanþágur og lagar ekki ESB að sínum þörfum á neinn hátt. Þess vegna eru aðildarviðræðurnar kallaðar aðlögunarviðræður; með við- ræðunum er verið að laga lög og reglur umsóknarríkisins að regluverki ESB. Málið er ekkert flóknara en þetta og þess vegna eru allar umræð- ur um að sækja um aðild að ESB, sem réttilega hefur verið lýst sem brennandi húsi, fjarstæðukenndar og fráleitar. Það að umsókn um aðild að ESB skuli þykja eiga erindi inn í jafn mikilvægar um- ræður og nú standa yfir um stjórnarmyndun er verulegt áhyggjuefni. Það gefur ekki góðar vonir um framhaldið næstu fjögur árin ef ein- hverjir aðilar að ríkisstjórn, ekki síst ríkisstjórn með naumasta þingmeirihluta, eru svo laustengdir raun- veruleikanum að þeir telji brýnast af öllu að blásið verði lífi í þá alræmdu aðild- arumsókn sem vinstristjórn- in setti af stað með bak- tjaldamakki sem á sér enga líka, nema ef til vill í Icesave- máli sömu ríkisstjórnar. Þjóðin á betra skilið en að vera þvælt eina ferðina enn í gegnum þessa vitlausu um- ræðu um ESB-umsókn þegar full þörf er á að nýta tíma og pólitískt þrek í að leysa raunveruleg viðfangsefni og tryggja áframhaldandi lífs- kjarabætur almennings. Með ólíkindum er að ESB-málið sé helsta viðfangsefni stjórnarmyndunar} Áhyggjuefni Þ að hafa allir skoðanir á sköttum. Á að innheimta skatt, hversu mikinn skatt á þá að innheimta og af hverjum, á að vera þrepaskattur svo þeir tekjuhæstu borgi mest en minna fáist í sameiginlega sjóði, eykur skatt- heimta jöfnuð í samfélaginu eða er skattheimta kannski aldrei réttlætanlega þar sem hún felur í sér hótun um ofbeldi af hálfu ríkisins gagn- vart þegnum sínum? Þessar spurningar og margar fleiri leita upp á yfirborðið í kosn- ingum, hvort sem þær eru til Alþingis hér á Ís- landi eða til forseta í Bandaríkjunum. Skoðun meirihluta kjósenda í þessu máli virðist vera skýr ef marka má úrslit kosning- anna en þar hlutu markmið um lága og einfalda skatta brautargengi umfram stefnu vinstri- manna um síhækkandi skatta. Það er nefnilega þannig að skattheimta og skattbyrði snertir venjulegt fólk beint, það horfir á peninga hverfa úr veskinu sínu og fær- ast til ríkisvaldsins sem ekki aðeins heldur helstu örygg- isþáttum samfélagsins við, þ.e. heilbrigðiskerfi, mennta- kerfi, lögreglu, dómstólum og landvörnum, heldur eys fé í ýmis verkefni sem mun betur færu á höndum einkaaðila. Fólk horfir því um hver mánaðamót á sín eigin lífsgæði minnka til að ríkið geti fengist við hin furðulegustu verk- efni eins og verslunarrekstur með vín og tóbak með lengdum afgreiðslutíma, vínfræðingum og afgreiðslu- fólki, til að ríkið geti borgað hópi fólks til að banna sum nöfn en ekki önnur, til að ríkið haldi úti rútuferðum um landið og sveitarfélögin innan sinna marka, til að ríkið geti borið út póst, til að ríkið getið rekið fríhöfn þar sem þeir sem hafa efni á því að fara til útlanda fá að greiða lægra verð fyr- ir sömu vörur og fást utan flugstöðvarinnar, til að ríkið geti flutt þér sömu fréttir og einka- rekni fjölmiðillinn, til að ríkið geti spáð fyrir um veðrið og til að ríkið geti mælt landið í samkeppni við einkaaðila. Ríkið gengur því sí- fellt á lagið gagnvart skattgreiðandanum og útilokar samkeppni á þeim sviðum sem það neitar að yfirgefa. Skattheimta á að vera neyðarúrræði til þess að tryggja öryggi en ekki eyðslufé stjórnmálamanna. Ef þeir vilja fara út í alls konar rekstur og ævintýri geta þeir stofnað fyrirtæki og lagt til sitt eigið fé – en ekki annarra. Óvíst er enn þegar þetta er ritað hvernig ríkisstjórn mun sitja næstu fjögur árin en ljóst er af niðurstöðum kosninganna að sá stjórnmálaflokkur sem talaði um lága skatta á alla, traust til venjulega fólksins til að ráðstafa eigin peningum og forgangsröðun ríkisfjár í grunnþætti samfélagsins hlaut þriðjung allra atkvæða á landsvísu. Sá stjórnmálaflokkur hefur einnig sýnt það og sannað að hann hræðist ekki að lækka skatta og álögur á venjulegt fólk. Það er því eðlilegt að Sjálfstæðisflokkurinn leiði ríkis- stjórnina og tryggi að farið verði með sjálfsaflafé fólksins í landinu af virðingu og meðvitund um að það tilheyrir ekki ríkinu sjálfkrafa. laufey@mbl.is Laufey Rún Ketilsdóttir Pistill Ríkið á ekki fé fólks STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Guðm. Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Íslendingar eru almenntheilsuhraustir ef marka mániðurstöður samræmdrarlífskjararannsóknar, sem gerð var á Evrópska efnahags- svæðinu í fyrra. Tæplega átta af hverjum tíu íbúum á Íslandi töldu heilsufar sitt vera gott eða mjög gott. Heldur hefur heilsu Íslend- inga þó hrakað síðasta áratuginn eða svo því hlutfall heilsugóðra var ívið hærra í sambærilegri könnun árið 2004. Hagstofan hefur birt skýrslu um þessar kannanir og kemur þar fram, að árið 2014 var hlutfall karla, sem mátu heilsu sína góða, það sjötta hæsta í Evrópu, 79%, en hlutfall heilsuhraustra kvenna það níunda hæsta, 73%. Könnunin náði til 32 landa. Írar við bestu heilsu Írar voru heilsuhraustasta þjóðin að eigin mati en 83% karla og 82% kvenna þar mátu heilsufar sitt gott eða mjög gott. Svíar komu næstir, þá Svisslendingar og Norð- menn. Danir voru í 12. sæti og Finnar í 15. sæti. Í neðstu sætunum voru Eystrasaltríkin, Eistland, Lettland og Litháen, auk Portúgals. Rúm- lega 40% kvenna og um helmingur karla í þessum löndum töldu sig vera við góða eða mjög góða heilsu. Þetta er í nokkru samræmi við lífslíkur í viðkomandi löndum en ef miðað er við aðildarríki Efna- hags- og framfarastofnunarinnar, OECD, er meðalævin einna styst í Eystrasaltsríkjunum. Heilsa og tekjur tengjast aldri Fram kemur í skýrslu Hag- stofunnar, að heilsufar og tekjur tengist hvort tveggja aldri, en með ólíkum hætti þó. Heilsufar er yfir- leitt best á fyrstu æviskeiðunum en því fer svo hrakandi, tekjur hækka hins vegar fram að miðjum aldri, standa í stað um tíma en lækka svo þegar fólk fer á eftir- laun. Hagstofan skoðaði sérstaklega samband heilsu og tekna í aldurs- hópnum 25-64 ára. Fram kom þá, að hlutfall þeirra, sem segjast vera við góða heilsu, er hærra hjá fólki sem er í tekjuhæstu hópunum hjá báðum kynjum. Þannig kváðust 86% karla og 83% kvenna í hæsta tekjufimmtungi vera heilsuhraust árið 2015 á móti 77% karla og 71% kvenna í þeim lægsta sama ár. Spurt var sérstaklega í lífs- kjararannsókninni hvort fólk væri með einhver langvinn heilsufars- vandamál. Slík heilsufarsvandamál eru algengari meðal kvenna en karla hér á landi en hlutfallið hefur að sögn Hagstofunnar þróast með svipuðum hætti hjá báðum kynjum á síðustu árum. Lægst varð hlut- fallið árið 2007 þegar um 15% karla og 21% kvenna reyndust með langvinn heilsufarsvandamál. Þetta hlutfall hækkaði árin á eftir og fór hæst í 27% hjá körlum árið 2014 og 35% hjá konum árið 2015. Í Evrópu reyndust langvinn heilsufarsvandamál vera algengust í hjá báðum kynjum í Finnlandi og Eistlandi og sjaldgæfust í Búlgaríu og Rúmeníu. Ísland er þar í 18. sæti af löndunum 32, næstneðst Norðurlandanna; aðeins Danir voru neðar. Ísland var hins vegar ofarlega á listanum þegar spurt var um alvarlegar heilsufarslegar takmarkanir í daglegu lífi. Þannig sögðust 12% íslenskra kvenna búa við slíkar takmarkanir og hlutfallið var aðeins hærra í Grikklandi, 13%. Íslendingar eru al- mennt heilsuhraustir Hlutfall Evrópubúa semmeta heilsu sína góða -eftir búsetulandi og kyni (2014) H ei m ild :H ag st of an % 0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100 Írland Svíþjóð Sviss Noregur Kýpur Holland Malta Ísland Belgía Lúxemborg Grikkland Danmörk Bretland Spánn Finnland Austurríki Rúmenía Frakkland Meðaltal í ESB Hvergi í Evrópu er ungbarna- dauði jafn lítill og hér á landi en samkvæmt nýlegri skýrslu nam hann 1,8 af hverjum 1.000 lifandi fæddum á síðasta ára- tug. Á síðasta ári létust 5,9 millj- ónir barna 5 ára og yngri, helm- ingurinn á fyrsta mánuði. Fram kom í grein í læknablaðinu The Lancet í síðustu viku, að 60% þessara barna voru í 10 löndum í Afríku og Asíu. Í fimm þessara landa, Angóla, Lýðveldinu Kongó, Eþíópíu, Níg- eríu og Tansaníu, var lang- algengasta dánarorsökin lungnabólga, í fjórum landanna, Bangladess, Indónesíu, Indlandi og Pakistan, var helsta dánar- orsökin erfiðleikar í fæðingu og í Kína voru fæðingargallar helsta dánarorsökin. Tíu lönd skera sig úr UNGBARNADAUÐI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.