Morgunblaðið - 14.11.2016, Page 22

Morgunblaðið - 14.11.2016, Page 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2016 Sturla Þórðarson, tannlæknir í Reykjanesbæ, á 70 ára afmæli ídag. Hann var lengi tannlæknir á Blönduósi, sat í hreppsnefndBlönduóss og var formaður Stangveiðifélags Austur-Húnvetn- inga en flutti í Reykjanesbæ árið 2001. „Ég hef lítið tekið þátt í félagsmálum á síðustu árum, er að verða latur. Ég var varamaður í bæjarstjórn Sandgerðis, mig minnir í eitt kjörtímabil. Ég man það ekki nákvæmlega, það fennir yfir slóðina.“ Þeir Sturla, Jón Björn Sigtryggsson og Benedikt Jónsson eru með tannlæknastofu á Tjarnargötunni. „En það er rétt að taka fram að ég er vinnumaður hjá Jóni Birni, ég rek þetta ekkert sjálfur. Það er miklu gáfulegra að hafa þetta svona fyrir gamla menn. Utan vinnu spila ég svolítið golf og er að gramsa í ljósmyndun, tek svona skorpur stundum. Ég tek í raun helst myndir af náttúrunni eins og hraununum hérna í kring og mosanum í hrauninu og landslaginu yfirleitt.“ Þegar blaðamaður ræddi við Sturlu fyrir helgi þá stóð ekkert til að gera í tilefni afmælisins. „Ég var nú að hugsa um að fela mig einhvers staðar.“ Eiginkona Sturlu er Unnur G. Kristjánsdóttir, kennari í Holtaskóla í Keflavík. „Við eigum engin börn saman en ég á tvö börn, Snorra sem býr í Garðabæ og Auði sem býr í Reykjavík, og Unnur á tvær dætur, Maríu Birnu og Guðmundu Sirrý, en þær búa úti í Kaupmannahöfn.“ Tannlæknirinn Sturla Þórðarson er tannlæknir í Reykjanesbæ. Var að spá í að fela sig á afmælinu Sturla Þórðarson er sjötugur í dag G uðrún Sigurjónsdóttir fæddist á Akranesi 14. nóvember 1966. Hún ólst upp á Glitstöðum í Norðurárdal í Borgar- firði. Guðrún gekk í Grunnskólann á Varmalandi, tók 9. bekk í Reykholts- skóla og Samvinnuskólapróf frá Bif- röst árið 1984. Hún var AFS- skiptinemi í Ekvador í eitt ár. Guð- rún fór svo í starfsnám á vegum Sambands íslenskra samvinnufélaga og vann m.a. í Samvinnubankanum, Iðnaðardeild SÍS, skrifstofu KEA og í Samvinnuskólanum á Bifröst. Guðrún var stúdent frá Bifröst 1988 og fór þaðan í vinnu sem gjald- keri á skrifstofu Kaupfélags Borg- firðinga. Hún rak farfugla- og gisti- heimili á Varmalandi í tvö sumur, lærði spænsku í Háskóla Íslands einn vetur og vann við bókhald og fjármál hjá Eðalfiski í Borgar- nesi.„Ég tók síðan þrjú ár í pásu frá vinnu utan heimilis til þess að sinna barnauppeldinu.“ Guðrún fór svo 1996 að vinna á skrifstofu Samvinnu- háskólans á Bifröst ásamt því að stunda nám við skólann. Útskrifaðist sem rekstrarfræðingur árið 2003. Eftir það vann hún hjá Búnaðarsam- tökum Vesturlands 2003-2006 sem rekstrarráðgjafi og bókari. „Ég tók við búi á Glitstöðum af for- eldrum mínum ásamt eiginmanni mínum árið 2000 og erum við með kýr og kindur. Ég sinni auk þess bókhaldi fyrir nokkur fyrirtæki og félög.“ Félagsstörf Guðrún hefur verið stjórnarmaður í Kaupfélagi Borgfirðinga frá 2001 og er núverandi stjórnarformaður þar. Hún situr einnig í stjórn Fóðurblönd- unnar, Veiðifélags Norðurár og Kúa- bændafélaginu Baulu á Vesturlandi. Hún var um árabil stjórnarmaður í Auðhumlu og Mjólkursamsölunni, Ungmennasambandi Borgarfjarðar, Hollt og gott og Búnaðarfélagi Þver- árþings. „Félagsstörf heilla og það er einhvern veginn þannig að mér finnst mjög margt spennandi og flest vekur áhuga minn. Í gegnum tíðina hef ég tekið þátt í ýmsu félagsstarfi s.s hjá Ungmennafélagi Stafholtstungna og leikdeild þess félags og Kvenfélagi Stafholtstungna.“ Helstu áhugamál „Ég hef mjög gaman af að ferðast og skoða mig um, bæði innanlands og utan. Við reynum alltaf að fara í frí á hverju ári til að ferðast og vildum gjarnan gera meira af því. Í sumar fórum við hjónin ásamt börnum og þeirra fjölskyldum norður Strandir og í Norðurfjörð. Í haust fórum við síðan einnig með börnum og tengda- syni til Ítalíu þar sem við ferðuðumst um milli borga og nutum ítalskrar gestrisni. Eftirminnilegt er ferðalag okkar hjóna til London á tónleika með Rolling Stones. Við vorum rétt komin út þegar tónleikunum var frestað því Jagger fékk hálsbólgu. Tónleikunum var frestað um mánuð svo við skelltum okkur bara aftur út þá. Og það var þess virði – tónleik- arnir voru æði. Ég er ein af þeim sem eru alltaf með eitthvað á prjónunum. Handa- vinna er stórt áhugamál og ég er með handavinnu í hverju horni svo það er nokkuð sama hvar ég sest niður Guðrún Sigurjónsdóttir, bóndi á Glitstöðum – 50 ára Við Hreðavatn Frá ættarmóti í sumar, á myndinni eru Guðrún, Eiður, systkini hennar og afkomendur. Félagsstörfin heilla Vinkonurnar Salka Rannveig Rúnarsdóttir og Arna Sigríður Gunnarsdóttir gengu í hús og seldu ýmiskonar dót sem þær höfðu föndrað. Þær styrktu Rauða krossinn með ágóðanum, 1.200 kr. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.