Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2015, Qupperneq 6
Jólablað 22.–28. desember 20156 Fréttir
H E I L S U R Ú M
A
R
G
H
!!!
2
51
11
5
Stærð: 90x200cm
Verð: 83.709 kr.-
Tilboð: 66.967 kr.
Stærð: 120x200cm
Verð: 98.036 kr.
Tilboð: 78.429 kr.
Stærð: 153x200cm
Verð: 124.620 kr.
Tilboð: 99.696 kr.
ROYAL CORINNA
ÞAÐ LÍÐUR AÐ JÓLUM
Þægileg millistíf dýna með fimm-svæðaskiptu poka-gorma kerfi og góðann mjúkan topp
ásamt hörðum PU-leðurklæddum botni á stál löppum
„Þetta er algjör
vendipunktur“
Alþingi samþykkti um helgina 10
milljóna króna fjárveitingu fyrir
Aflið - Samtök gegn kynferðis- og
heimilisofbeldi á Norðurlandi.
Eins og DV greindi frá á dögun-
um stóð til að Aflið fengi aðeins
þrjár milljónir króna, fjórðungi
minna en árið áður. „Við höfum
miklar áhyggjur af þessu. Það er
erfitt að viðhalda faglegri þróun
í starfinu og í raun að halda
áfram starfseminni undir þess-
um kringumstæðum,“ sagði Sóley
Björk Stefánsdóttir gjaldkeri við
DV á dögunum.
Nú horfir málið öðruvísi við.
„Þetta er algjör vendipunktur
fyrir samtökin og nú getum við
virkilega farið að byggja upp
þjónustuna við þolendur ofbeldis
í samræmi við eftirspurnina
sem hefur vaxið gríðarlega síð-
ustu ár,“ segir á Facebook-síðu
Aflsins. Þar er þingmönnunum
Brynhildi Pétursdóttur og Vigdísi
Hauksdóttur þakkað sérstaklega.
„Einnig viljum við þakka öllum
þeim sem sent hafa þingmönn-
um og ráðherrum bréf vegna
málsins eða átt við þau símtöl
eða bein samtöl. Það er hinn
breiði stuðningur sem Aflið nýtur
í nærsamfélagi sínu sem hefur
haft hvað mest að segja í barátt-
unni fyrir auknum framlögum.“
Áhættufjárfesting
í ólgusjó olíuverðs
n Sérfræðingur í orkumálum segir ómögulegt að spá um þróun olíuverðs
L
ykilatriðið er að það getur far-
ið svo að olíuverð hækki ekki
umtalsvert fyrr en eftir mörg
ár. Það er hins vegar ómögu-
legt að spá fyrir um það en ef
svo fer verður ástandið hjá Fáfni Offs-
hore væntanlega áfram mjög erfitt,“
segir Ketill Sigurjónsson, sérfræðing-
ur í orkumálum og eigandi Orku-
bloggsins, um lækkun olíuverðs og
áhrifa þess á Fáfni Offshore sem rek-
ur sérútbúna fimm milljarða króna
olíuþjónustuskipið Polarsyssel,
dýrasta skip Íslandssögunnar.
Tunna af Norðursjávarolíu (e.
Brent crude) kostaði á mánudag 36,2
Bandaríkjadali og hafði þá ekki ver-
ið ódýrari síðan í júlí 2004. Verð olí-
unnar hafði þá fallið um 67% síðan
Polarsyssel var sjósett í mars 2014.
Tunnan kostaði 80 dali í nóvember
2014 þegar framtakssjóðurinn Akur,
sem er í eigu þrettán lífeyris sjóða,
Íslandsbanka og VÍS, varð stærsti
eigandi Fáfnis með 1.260 milljóna
króna hlutafjáraukningu. Framtaks-
sjóðurinn Horn II, sem er í eigu líf-
eyrissjóða, fjármálafyrirtækja og
fagfjárfesta, fór inn í hluthafahóp
Fáfnis í maí 2014 þegar tunnan kost-
aði 108 dali.
„Þetta var mikil áhættufjárfesting
en ég held samt að það sé eðlilegt að
lífeyrissjóðirnir fari út í slíkar fjár-
festingar upp að ákveðnu marki.
Eftir á að hyggja var þetta auðvitað
óheppileg tímasetning hjá Akri og
gat varla verið verri. Það er alltaf gott
að vera vitur eftir á og svo ræðst þetta
af framhaldinu og því hvort Fáfnir
nær að halda sjó. Olíuverð mun
hækka, það er einungis spurning um
hvenær,“ segir Ketill.
Kom á óvart
Steingrími Erlingssyni, stofnanda og
fyrrverandi framkvæmdastjóra Fáfn-
is, var sagt upp störfum í síðustu viku.
Vefmiðillinn Kjarninn fullyrti þá að
miklir samstarfsörðugleikar hafi ver-
ið milli stjórnar fyrirtækisins og Stein-
gríms. Stofnandinn á 21 prósents
hlut í Fáfni og var andlit fyrirtækis-
ins út á við. Hann sagði í samtali við
DV í lok júlí, þegar blaðið fjallaði um
þá ákvörðun Bjarna Ármannsson-
ar, fjárfestis og fyrrverandi forstjóra
Glitnis, að taka að sér formennsku í
stjórn Fáfnis, að eigendur félagsins
væru vel meðvitaðir um þá miklu
samkeppni sem er innan greinar-
innar. Fyrirtækið er með samning
við norska ríkið, um að sinna gæslu-
störfum við Svalbarða, sem hefði ver-
ið því mikilvægur. Samningurinn var
endurnýjaður í haust og tryggir skip-
inu verkefni í níu mánuði á ári.
„Ég er hissa á þessari uppsögn því
það er engin þekking á þessum olíu-
þjónustubransa hér á Íslandi. Stein-
grímur hefur komið að útgerð og
virðist hafa ýmis sambönd. Ég veit
ekki betur en að samningurinn sem
fyrirtækið gerði við sýslumanninn á
Svalbarða, að það sé hans verk. Ég
sé ekki fyrir mér að þetta fyrirtæki
geti náð betri árangri með því að
ráða inn einhverja Íslendinga en þeir
gætu farið til Noregs og sótt einhverja
reynslubolta þar,“ segir Ketill.
Of mörg skip
Ketill segir að taka verði öllum spám
um þróun olíuverðs með miklum
fyrirvara vegna þess hversu mikil
óvissan sé. Sumir sérfræðingar spái
því að olíuverð nái 60–70 dollurum á
tunnu á næstu tólf mánuðum en aðrir
álíti að það geti tekið allt að fimm ár.
„Að spá fyrir um þetta er eins og
að leggja undir á spilaborði í Las
Vegas. Það þarf að passa sig á að fara
varlega í hugtakanotkun eins og of-
framboð. Hvort um sé að ræða of-
framboð eða ótrúlega litla eftirspurn
vegna mikils og óvænts efnahags-
slaka er ekki ljóst,“ segir Ketill og
heldur áfram:
„Það er hins vegar offramboð
þegar kemur að þessum skipum
eins og Polarsyssel sem þjónusta
olíuiðnaðinn. Menn voru bjartsýnir
um og eftir 2009 um að þessi djúpa
vinnsla úti á landgrunninu myndi
aukast mjög hratt og því fóru þeir
í að láta smíða mörg svona skip og
þeim kom flestum á óvart þegar olíu-
verð féll svona hratt. Það myndað-
ist mikið offramboð af þessum skip-
um enda hægðist á öllum verkefnum
sem menn voru að plana. Taxtinn
fyrir þessi skip hefur því lækkað og
samkeppnin aukist. Ofan á það bæt-
ist að það er nýtt skip í smíðum hjá
Fáfni sem ólíklegt er að sé með góða
verkefnastöðu,“ segir Ketill.
Ekki náðist í Steingrím Erlingsson
við vinnslu fréttarinnar. Jóhannes
Hauksson, framkvæmdastjóri Akurs,
vildi ekki tjá sig um málefni Fáfnis
Offshore þegar eftir því var leitað. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is Fær 840 milljónir á ári
Fáfnir Offshore tapaði 3,5 milljónum norskra króna á síðasta ári eða
jafnvirði 52 milljóna íslenskra króna. Samkvæmt nýjum samningi
fyrirtækisins og norska ríkisins mun það fá um 840 milljónir íslenskra
króna á ári fyrir verkefnin við Svalbarða. Tekjur Fáfnis í fyrra námu
hálfum milljarði króna. Afhendingu á nýju skipi þess, Fáfni Viking,
hefur nokkrum sinnum verið frestað vegna erfiðra markaðsaðstæðna
og er nú gert ráð fyrir að það verði tilbúið sumarið 2017.
Sagt upp störfum Steingrímur Erlingsson stofnaði Fáfni Offshore árið 2012. Mynd Havyard
Polarsyssel Fáfnir Offshore á
dýrasta skip Íslandssögunnar sem er
sérútbúið til að þjónusta olíuiðnaðinn.
Orkubloggari Ketill Sigurjónsson.
Banaslys í
Ártúnsbrekku
Hjólreiðamaður sem varð fyrir
bíl í Ártúnsbrekku á mánudag
lést af áverkum sínum. Ekið
var á manninn á sjöunda tím-
anum á mánudagsmorgun
og átti slysið sér stað rétt hjá
bensínstöð N1.
Maðurinn var á sextugsaldri.