Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2015, Qupperneq 24
Jólablað 22.–28. desember 201524 Fólk Viðtal
É
g hef stundum sagt í gríni
að á aðventunni séum við,
prestar, jólasveinar fullorðna
fólksins. Aðventan er okkar
mesti annatími og þar sem ég
hef verið prestur í hátt í þrjá áratugi
hefur starfið mótað mína jólaupp-
lifun að miklu leyti,“ segir Hjörtur
Magni Jóhannsson prestur við Frí-
kirkjuna í Reykjavík sem minnir á
að þótt jólin séu ljósanna hátíð séu
þau einnig tími myrkurs. „Það er
dimmt úti og þunglyndi sækir að
mörgum auk þess sem syrgjendur
eiga oft erfitt á þessum tíma. Það
getur verið erfitt að horfa á gleðina
hjá öðrum þegar manni líður illa
hið innra.“
Fjölbreytileiki heillandi
Hjörtur Magni ólst upp á kristilegu
heimili í Keflavík. „Mamma átti
vini í öllum kristnum trúfélögum
og sótti þangað sem hún vildi og
studdi gott starf, bæði hjálparstarf
og kristniboð. Trú móður minnar
mótaði fjölskyldulífið með vissum
hætti og þótt áherslurnar hafi
stundum verið í átt til bókstafstrúar
þá er það hvers og eins með aukn-
um lífsþroska að sjá að það eru fleiri
litir í litrófinu en það svarthvíta sem
bókstafstrúin býður upp á. Þá ber
okkur að láta af þröngsýni og for-
dómum. Ef við meðtökum fjöl-
breytileika mannlífsins sjáum við
hvað hann er heillandi og auðgandi
en ekki hamlandi eða ógnvekjandi.“
Unglingur í uppreisn
Hjörtur Magni er yngstur af fjór-
um systkinum og lýsir góðri æsku í
Keflavík þar sem íþróttir og vinirnir
skipuðu stóran sess. „Ég fór í vissa
uppreisn þegar ég komst á ung-
lingsaldur og prófaði ýmislegt. Ég
hafði sjálfstæða sýn og vildi prófa
mig áfram í lífinu eins og eðli-
legt er en held að ég hafi ekki ver-
ið vandræðaunglingur. Við vorum
ágætur hópur unglinga sem tóku
virkan þátt í kirkjustarfinu og köll-
uðum okkur Kristið æskufólk og
tengdumst Ungu fólki með hlutverk
og svo þegar ég var 18 ára fór ég í
biblíuskóla til Englands en hluti af
náminu var þriggja mánaða ferða-
lag til Ísraels og Egyptalands.“
Guðs hreina opinberun
Hjörtur Magni dvaldi síðar á þriðja
ár í Jerúsalem þar sem hann var
við háskólanám. „Í Jerúsalem voru
gyðingar í meirihluta en einnig ar-
abískir múslimar sem og fulltrúar
allra helstu kirkjudeila kristninnar.
Borgin helga er skurðpunktur þriggja
stóru eingyðistrúarbragða verald-
ar. Og þar er að finna afar ólíkt fólk
þar sem hver og einn heldur því fram
að hann hafi fengið Guðs einu og
hreinu opin berun í sinni helgu bók.
Þar sem margir slíkir koma saman ná
þeir ekki að tala saman og úr verður
fáránleiki. Þegar slíkum fáránleika er
haldið áfram er afleiðingin bókstafs-
trú og einstrengingsháttur, sem því
miður einkennir gjarnan hina trúðu.
Þessi dvöl opnaði augu mín á
nauðsyn þess að geta lyft sér upp
fyrir trúarbrögðin sem oft eru mis-
notuð af trúarstofnunum og sjálf-
hverfum talsmönnum þeirra.
Við þurfum að leita eftir því kær-
leikans ljósi sem kemur innan frá og
er óháð öllum trúarstofnunum. Því
frumglæði ljóssins, sem við munum
syngja um innan tíðar í sálminum
Heims um ból. Það eilífðar ljós sem
þar um getur er í raun óháð kirkju-
deildum og trúarbrögðum. Alls stað-
ar þar sem kærleikur, réttlæti og
miskunnsemi er haft að leiðarljósi
má finna Guð, óháð því með hvaða
trúartáknum menn skreyta sig. Kross
kristninnar, davíðsstjarna gyðinga
og hálfmáni múslima, öll þessi tákn
hafa verið notuð í neikvæðum til-
gangi. En þeim er ætlað að vísa til
æðri veruleika sem er kærleikurinn
sjálfur.
Ég kýs að hafa einkunnarorð Frí-
kirkjunnar að leiðarljósi, víðsýni,
umburðarlyndi og frjálslyndi. Það er
eitthvað sem mér þykir vænt um og
á auðvelt með að tileinka mér, þótt
auðvitað ætti enginn að lýsa því yfir
að hann beri þessa kosti. Slíkt á að
ráðast af verkum fólks.“
Hippi á sandölum
Hann segist snemma hafa verið
gagnrýninn á það nána samband
milli ríkis og kirkju sem Þjóð-
kirkjan byggir á. „Mitt uppeldi var
þannig, því þótt móðir mín hafi
verið skráð í Þjóðkirkjuna sótti hún
líklega minnst þangað. Ég vissi það
frá móður minni að Guð væri ekki
fjötraður af neinni trúarstofnun
og alls ekki þeim kirkjum sem leita
fyrirmynda í hinum myrku mið-
öldum og leitast við að drottna yfir
fólki með forræðishyggju og kúgun.
Ég vildi kynnast þessum Jesú frá
Nasaret, þessum síðhærða hippa-
lega manni á sandölunum sem gekk
um þarna í Galíleu fyrir tvö þúsund
árum, í grasrótinni á meðal þeirra
þurfandi.“
Skilningur vegna skilnaðar
Hjörtur Magni gekk í gegnum skiln-
að í upphafi starfsins og segir rétt
að eflaust ætlist margir til þess að
prestar séu fordæmi annarra og
sennilega eigi þeir helst ekki að
ganga í gegnum hjónaskilnað. „En
svona er veruleikinn og í rauninni
er ekki svo óalgengt að prestar skilji.
Við mættum miklum skilningi, ég
get ekki kvartað hvað það áhrærir.
Auðvitað var þetta erfitt ferli meðan
á því stóð en þetta var eitthvað sem
varð að gerast. Eftir slíkt ferli skiptir
máli að einstaklingar standi ekki eftir
bitrir, reiðir og sárir, heldur geti horft
til baka óbrotnir. Svona reynsla get-
ur þroskað ef vel er úr unnið og hlúð
er að börnum. Svona er lífið. Lífið er
ekki bein braut.
Þetta var á tíma mikilla áfalla
á Suðurnesjum, skipskaðar og
banaslys á Reykjanesbrautinni. Það
var mikið leitað til mín víða að á
Suðurnesjum og ég þjónaði veru-
lega langt út fyrir mitt prestakall.
Fyrir störf mín bæði við sorgar- og
áfallahjálp sem og almenn prests-
störf, svo sem hjónavígslur og skírn-
ir, var ég valinn maður ársins á
Suðurnesjum af ábyrgum aðilum
sem Víkurfréttir tilnefndu. Það er
kannski hégómi en ég leit á það
sem viðurkenningu á að ég væri að
gera góða hluti. Ég fór þakklátur frá
Suðurnesjum. Þar var gott að fá að
hlaupa af mér hornin í starfinu á
mínu heimasvæði þó svo að sagt sér
að það sé enginn spámaður í sínu
heimalandi. Prestsstarfið er krefjandi
og ekki síst í sjávarplássi þar sem ná-
lægðin er mikil. Fólk fylgist vel með
„Hættulegt að
persónugera Guð“
Hjörtur Magni Jóhannsson hefur gegnt
starfi fríkirkjuprests í 18 ár. Indíana Ása Hreinsdóttir
ræddi við Hjört Magna um jólahátíðina, ástandið
í heiminum, ástina sem hann fann á Mallorka og
trúarbrögðin sem hann segir nær öll hafa einhvern
tímann verið notuð til ills.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Fríkirkjuprestur Hjörtur
Magni hefur gegnt starfi
fríkirkjuprests í Reykjavík
undanfarin 18 ár. Mynd
SIGtryGGUr ArI „Forstöðumenn
trúfélaga lágu
vel við höggi og það
átti að nýta það til að
koma höggi á mig
„Við eigum að láta
kærleika og mann-
gæsku stýra en megum
ekki heldur vera bláeygð
og loka augunum fyrir því
sem gerðist í París.