Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.12. 2016
Ármúla 24 - s. 585 2800 - www.rafkaup.is
Opið virka daga 9-18, laugardaga 11-16
TÍMALAUS HÖNNUN
FRÁ BELID
Ljós á mynd:
Belid Primus II
VETTVANGUR
Það segir sig sjálft að þaðgetur verið erfitt að verastjórnmálamaður þegar illa
árar. Kröfur um aðgerðir dynja á
stjórnmálamönnum þegar hægist á
hjólum efnahagslífsins. Um leið er
engum kennt um nema stjórn-
málamönnunum. Fyrirtæki í
einkaeigu fara jafnvel ekki á haus-
inn í niðursveiflu án þess að
stjórnmálamenn séu dregnir til
ábyrgðar. Þið þekkið dæmin. En
hvað með þegar vel gengur?
Jákvæð teikn í efnahagslífi virð-
ast vera sjálfstætt vandamál í um-
ræðunni. Velgengninni er ekki
hallmælt með beinum hætti en
þeim mun meira er fjallað um
þensluna. Orðið sjálft ber feigðina
í sér. Vei þeim sem gleðst yfir
góðu gengi. Þenslan ógnar stöð-
ugleika, er sagt. Það getur verið
erfitt fyrir stjórnmálamenn að átta
sig á hvort æskilegt er að standa
eða sitja undir þessum skila-
boðum. Þess utan þá reynist
stjórnmálamönnum oft erfitt að
fóta sig í hagsældinni og þeir
missa sjónar á þeim takmörkunum
sem stjórnmál-
unum eru settar.
Fimm flokkar
hafa reynt í dá-
góðan tíma að
komast að sam-
komulagi um
ríkisfjármálin. Það hefur ekki bara
mistekist í tvígang heldur virðist
þeim ómögulegt að ná sam-
komulagi um hvað það er sem þeir
eru ósammála um. Allir þó sam-
mála um að eyða meira af pen-
ingum landsmanna.
Nú liggur fyrir að skatttekjur
ríkisins á þessu ári verða um 30
milljörðum króna meiri en fjárlög
gerðu ráð fyrir, þrátt fyrir skatta-
lækkanir. Aðrar tekjur ríkisins
verða líka meiri en gert var ráð
fyrir. Það á ekki að vera sérstakt
markmið í sjálfu sér að auka
skatttekjur ríkisins. Skatttekjum
er ætlað að standa undir verk-
efnum sem við erum sammála um
að hið opinbera sinni og eiga ekki
að vera meiri en svo. En nú ber
svo við að sumir leggjast gegn því
að lækka skatta í því góða árferði
sem ríkir. Fyrir alþingi liggur
jafnvel tillaga um að hækka skatta
á áfengi og eldsneyti til þess að
„slá á þensluna“. Er það nú ekki
harla ólíklegt að áfengi og elds-
neyti orsaki þenslu hér á landi?
Nær væri að hafa áhyggjur af
hækkun á vísitölu neysluverðs sem
þessari hagstjórnarskattahækkun
fylgir.
Skattalækkun eykur á þenslu er
sagt. En þá líta menn hjá því að
þensla í efnahags-
lífinu hefur þá
hliðarverkun að
ríkið fær meiri
tekjur að öðru
óbreyttu eins og
dæmin sýna ein-
mitt nú um stundir. Þessu ættu
unnendur ríkistekna reyndar að
fagna. Ef hins vegar opinberir
embættismenn og skjólstæðingar
þeirra, stjórnmálamennirnir,
hræðast þenslu og tilheyrandi
verðbólgu þá er ríkinu í lófa lagið
að halda meira eftir af þeim
tekjum sem það fær af aukinni
þenslu og stemma þannig stigu við
eigin þenslu. Ríkisfjármálin eru í
höndum stjórnmálamanna.
Ábyrgðinni verður ekki varpað yf-
ir á neytendur, áfengis eða annars.
Að fóta sig í hagsæld
’ Fimm flokkumhefur ekki tekist aðsammælast um neittnema meiri skatta.
Úr ólíkum
áttum
Sigríður Andersen
sigga@sigridur.is
Morgunblaðið/Kristinn
Verðlag á Íslandi hefur talsvert ver-
ið í umræðunni. Jón Gnarr, fyrr-
verandi borgarstjóri og grínisti
með meiru, skrifar á Facebook:
„Eftir fréttir af óeðlilega miklum
verðmun á vörum hér á Íslandi og í
útlöndum þá hef ég verið að gera
örlitla óformlega verðkönnun. Ég
komst til dæmis að því að borvélin
sem ég keypti mér
í fyrra í ónafn-
greindri bygginga-
vöruverslun er
meira en helmingi
ódýrari í Englandi.
Í Lyfju kostar túba
af A+D áburði 1.939 kr. Í Ameríku
kostar sambærileg túba 5.78 doll-
ara. Það munu vera um 650 kr. Þús-
undkall væri nokkuð rífleg álagning
hvað þá nær tvöþúsund. Og ég fæ
ekki betur heyrt en þetta sé svona
víðar. Það sem kostar 65.000 í út-
löndum er þá gjarnan selt hér á
193.000 o.s.frv. Ég ætla að skoða
þetta betur og hvet aðra til að gera
hið sama.“
Jólasveinarnir eru komnir til
byggða og einar heitustu umræður
samfélagsmiðlanna snúast um þá
félaga.
Þorsteinn Guðmundsson
grínisti tísti um það sem var að ger-
ast á því sviði á
hans heimili: „Get-
urðu skilað til jóla-
sveinsins hvort
hann geti einu
sinni sett hollt í
skóinn?“ spurði 10 ára sonur minn.
Já, ok. I can take a hint.“
Þórhildur Ólafsdóttir, dag-
skrárgerðarkona á Rás 1, hafði
þetta um jólasveinamálin að segja á
Twitter: „Sigga litla finnst agaleg til-
hugsun að ókunnugur jólakarl komi
í herbergið hans á nóttunni og vill
frekar að pabbi sinn gefi í skóinn.“
Elísabet Kristín Jökulsdóttir
rithöfundur skrifaði á Facebook:
„Ég fór til læknis í morgun af því ég
þóttist viss um að ég væri komin
með sjúkdóm sem heitir Sjögren,
læknirinn var hugsi dálitla stund og
svo leit hann á mig og sagðist
örugglega geta fundið einhvern
þægilegri sjúkdóm fyrir mig.“
Skáldkonan bætti svo við að hún
hefði komið læknuð út frá honum
og læknirinn hefði líka sagt henni
að hækka verðið á nýju bókinni
sinni, Næturvörðurinn. „Svo hann
er a.m.k. búinn að lækna bókina,“
skrifaði hún.
Og séra Hildur Eir Bolladótt-
ir er með ábendingu á Facebook:
„Ég er með smá
ábendingu til fólks
sem sendir
skammarpóst
vegna þess að
maður leyfir sér
að andmæla þjóð-
kjörnum fulltrúa alþingis: Ekki hefja
skammirnar á því að segja að þú
hafir alltaf verið hrifinn af mér en
nú getir þú ekki orða bundist,
segðu bara það sem þér finnst en
ekki reyna að láta mig fá eitthvert
samviskubit yfir því að hafa valdið
þér vonbrigðum, ég ber ekki
ábyrgð á þeim tilfinningum sem þú
berð til mín og þar sem við erum
fullorðið fólk þá bara mætumst við
sem jafningjar í umræðunni og þá
varðar mig ekkert um vonbrigði
þín yfir persónu minni heldur varð-
ar mig um málefnið sem við erum
að ræða. Þetta er sem sagt út-
dráttur úr samskiptum 102. Ann-
ars bara þrælgóð.“
AF NETINU
jakkafatajoga.is
ÁNÆGJA EFLING
AFKÖST