Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Blaðsíða 26
HÖNNUN Ýmsar sölusíður er að finna á Facebook þar sem notaðar hönn-unarvörur ganga kaupum og sölum. Klassísk hönnun stendur
alltaf fyrir sínu og heldur oft verðgildi eða jafnvel hækkar í verði.
Hönnun í endurnýjun lífdaga
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.12. 2016
Hulda B. Ágústsdóttir, myndlistarkonaog hönnuður, er konan á bak viðHappy Talk-kertastjakana sem fást í
Kirsuberjatrénu í öllum litum og stærðum.
Hún segir hugmyndina að stjökunum hafa
komið til þegar hún ákvað að búa til hálsfesti
fyrir frænku sína. „Það er svolítið fyndið
hvernig ein hugmynd leiðir mann inn í þá
næstu. Kertastjakarnir byrjuðu nefnilega sem
hálsfesti,“ segir Hulda. „Mig langaði að gera
nýja hálsfesti fyrir frænku mína sem var að út-
skrifast úr hönnunardeild Listaháskóla Ís-
lands og þá gerði ég festi sem er upphafið að
kertastjökunum. Síðan þróaðist þetta út í arm-
band, þaðan í kertastjaka og endaði eiginlega í
orkuboltanum, sem er ein kúla á festi.“
Hulda segir að hugmyndirnar séu allt í
kring og stundum taki það langan tíma að fatta
það að grípa þær á lofti. „Hugmyndirnar eru
stundum alveg borðleggjandi fyrir framan
mann, líkt og þær séu frosnar í tíma, en svo
áttar maður sig ekki á þeim fyrr en allt í einu.“
Hulda hannar einnig fallega skartgripi sem
vakið hafa lukku.
Byrjaði út frá fikti og leik
Hulda lærði myndlist í Beaux-Arts listaskól-
anum í Suður-Frakklandi. Hönnunin á skart-
gripum og öðrum munum byrjaði hins vegar
aðeins út frá fikti og leik. „Síðan þróaðist það
áfram og hefur verið mjög skemmtilegt.
Hulda notar liti mikið í hönnun sinni og seg-
ir þá mikilvæga gleðigjafa.
Skartgripir eiga að sjást
„Litir hafa alltaf höfðað mikið til mín. Mér
finnst mjög gaman að pæla í því hvernig og
hvaða litir passa saman og hvernig þeir
breytast eftir því með hvaða lit þeir standa.
Litir geta nefnilega verið svo afstæðir, al-
gjörlega eftir því hvernig þeir eru paraðir
saman. Ég nota einnig ýmiss konar efni,
pappamassa, skeljar, plexígler, plastslöngur,
kanilstangir, sítrónur og fleira, og mér þykir
alltaf jafn gaman að prófa einhver ný efni,“
segir Hulda.
„Ekki síst efni sem eru skrítin og venjulega
ekki notuð í skartgripi. Í mínum huga eiga
skartgripir að sjást og vera eins og kryddið
ómissandi, stórir og litskrúðugir, en auðvitað
er mismunandi hvað passar hverjum og ein-
um. Þessa dagana er ég einmitt að leika mér
með nýjar útfærslur að kertastjökunum og svo
er ég alltaf að velta mér upp úr nýjum hug-
myndum.“
En Hulda segir að ferðinni sé mögulega
heitið út fyrir landsteinana. „Já, það gæti verið
skemmtiferð á döfinni með góðri vinkonu sem
er með mikla ferðabakteríu, jafnvel til Suður-
Ameríku. Það er aldrei að vita.“
Hulda segir að skartgripir eigi
að vera eins og kryddið ómiss-
andi, stórir og litskrúðugir.
Morgunblaðið/Eggert
Litir mikilvægir
gleðigjafar
Það er gaman að leika sér með alls konar tegundir af
efnum í sköpuninni. Þetta segir Hulda B. Ágústsdóttir
listakona. Hún notar liti mikið í sinni sköpun og
óhefðbundin efni í skartgripagerð.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Happy Talk kertastjakarnir frá Huldu eru afar
fallegir og koma í öllum litum og stærðum.
Dagana 12.-24. desember mun skyndiverslun, eða popup-verslun, og sýning-
arrými skjóta upp kollinum á Hverfisgötu 71 þar sem nokkrir listamenn taka
sig saman. Opið verður milli kl. 12 og 22. Sigurgeir Sigurjónsson ljósmyndari
hefur haldið þar til í skemmtilegri viðbyggingu sem hlaut tilnefningu til evr-
ópsku byggingalistaverðlaunanna, Mies van der Rohe, á síðasta ári. Bækur
Sigurgeirs og Hugleiks Dagssonar verða á góðu verði en einnig föðurland og
káputöskur eftir Ágústu Heru Harðardóttur. Alexander Kirchner kynnir sína
fyrstu fatalínu og verk eftir Hörpu Einarsdóttur og aðra listamenn prýða
veggina.
LISTAMENN Í HATT SAMAN
Skyndiverslun á Hverfisgötu
Föðurland, bolur og brækur, eftir Ágústu Heru.Hverfisgata 71 er einstaklega fallegt rými.