Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Blaðsíða 21
18.12. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21 Jólamarkaðirnir í Vín eru um 50 talsins, þeir stærstu viðSchönbrunn-höllina, Maria-Theresien platz, Karlsplatz og Rathausplatz eða ráðhústorgið sem er þeirra stærst- ur með yfir 150 sölutjöld, þar af 19 sem selja eitthvað mat- arkyns og Glühwein að sjálfsögðu, sem er hinn hefðbundni drykkur á þessum slóðum í aðdraganda jólanna. Uppi- staðan í Glühwein er rauðvín, sítrónusafi, niðursneiddar appelsínur, negull og kanill. Ilmurinn er alltumlykjandi og hluti af stemmningunni. Óáfengt barnajólaglögg er einnig í boði ásamt ýmsum öðrum heitum drykkjum. Mikil mannþröng er á stærstu mörkuðum eftir að skyggja tekur, einkum ráðhús- torginu. Greinilegt er á öllum þeim fjölda tungumála sem þar heyrast að fjöldi manns frá nálægum löndum leggur leið sína til Vínar að njóta dýrðarinnar og gera góð kaup. Mikið úrval er af gjafavörum, jólaskrauti, handverksmunum, matvörum af ýmsu tagi og kryddi svo fátt eitt sé nefnt. Undirritaður sveimaði á dögunum með myndavél um helstu markaðina til að fanga jólastemmningu Vínarborgar. Maður nartar í Brezel allt árið um kring. Candy-flossið virtist bragðast vel. Frá miðjum nóvember fram að jólum eru öll helstu torg Vínarborgar undirlögð töfraheimi jólamarkaðanna. Ljósmyndir ÓMAR ÓSKARSSON omar@mbl.is Þessi náungi var með ýmsar flautur sem líkja eftir hljóðum fuglanna. Á Karlsplatz var ýmislegt til skemmtunar fyrir börnin. Blöðrur seljast líka fyrir jólin. Víða gefast tilefni til að taka sjálfu. Jólastemmning í Vínarborg Það getur verið erfitt að velja úr svona miklu úrvali af jólakúlum. Sukurhúðuð jólaepli virtust nokkuð vinsæl. Uppgripatími hjá pylsusölum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.