Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Blaðsíða 53
sem er með skegg, leikarann Richard Attenborough, og árið 1994 lék hann í endurgerð kvikmyndarinnar Miracle on 34th Street. Attenborough er van- ur að leika sveinkalega afa; svo sem eiganda Jurrasic Park.  Sveinkinn úr Elf Þrátt fyrir að jólasveinninn hafi ekki verið í fyrirferðarmiklu hlut- verki í kvikmyndinni Elf frá 2003, heldur mannsbarnið sem hann ól upp sem álf, þá var hann fullkominn sveinki í þeim atriðum sem hann kom fram í. Leikarinn, Edward Asner, er 87 ára í dag en fyrir aðeins tveimur árum talaði hann fyrir jólasveininn í teiknimyndaendurgerð myndarinnar.  Jólasveinn í afleysingum Í The Santa Clause lék Tim Allen venjulegan mann sem varð að fara á norðurpólinn og læra að verða jóla- sveinn. Ástæðan var sú að hinn raun- verulega slasaði sig við að falla niður um þakið hjá honum svo Allen varð að taka að sér verkið. Tvær framhalds- myndir fylgdu í kjölfarið, The Santa Clause 2 og 3 en í þeim var Allen kom- inn í fullt starf sem jólasveinninn en lenti í vandræðum því hann var ein- hleypur og átti á hættu að missa stöðu sína ef hann fyndi ekki hina einu sinni eiginkonu jólasveinsins til að eyða æv- inni með.  Jólasveininn með fjölskyldu- vandamálin Verðlaunaleikarinn Paul Giamatti lék fyrir um 10 árum jólasvein sem á bróðurinn Fred Claus í samnefndri kvikmynd en bróðirinn skapar honum töluverð vandræði. Fred biður bróður sinn jólasveininn um lán en þarf í stað- inn að hjálpa honum á norðurpólnum með að ákveða hverjir fái kartöflu í skóinn. Giamatti þótti sýna nýjar hlið- ar jólasveinsins, sem getur líka orðið þreyttur á veseninu á sínum nánustu. Richard Attenborough gekk árið 1994 í fótspor Edmund Gwenn sem einn helsti jólasveinn kvikmyndanna í endurgerð Miracle on 34th Street. Tim Allan lærði að vera jólasveinn. Paul Giamatti sem þjakaður sveinki.David Huddleston var sveinki 1985. Billy Bob Thornton sem slæmi sveinki. 18.12. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53 Sjónvarp Bandarísku sjónvarpsþættirnir West World sem sýndir hafa verið á Stöð 2 eru að margra mati þættir ársins en þessari 10 þátta seríu lauk um síðustu helgi og hefur bandaríska sjón- varpsstöðin HBO strax pantað til sýninga aðra þáttaröð. Það gerði hún hins vegar bara nýlega svo að næsta þáttaröð kemur ekki til sýninga fyrr en árið 2018. Mörgum til mikilla vonbrigða fékk ein aðalpersóna þáttanna, Dr. Ford, sem Anthony Hopkins leikur, byssu- kúlu í sig og leit atburðarásin ekki öðruvísi út en að Dr. Ford væri þar með úr sögunni. Handritshöfundar seríu tvö ljóstra því upp í viðtali sem birtist í Los Angeles Times að persóna sem margir hafi afskrifað í seríu eitt muni snúa aftur. Hvort það er Dr. Ford vildu þeir þó ekki láta uppi. Hver snýr óvænt aftur? Anthony Hopkins í hlutverki Dr. Ford í Westworld. Tónlist James Blunt er þekktur af miklum húmor fyrir sjálfum sér á samfélagsmiðl- unum. Og hvað svo sem fólki þykir um tónlist hans eru fáir sem kunna ekki að meta færslur hans á Twitter. Eins og þessa, þar sem hann tilkynnti að hann væri að vinna að nýrri plötu með tísti: „Ég þú hélst að 2016 hefði verið slæmt, þá er ég að gefa út plötu árið 2017.“ Á vefsíðu hans voru þessar fréttir svo staðfestar í kjölfarið. Síðast sendi Blunt frá sér plötu árið 2013 en það lag sem hann er þekktastur fyrir, You’re Beautiful, er orð- ið 11 ára gamalt. Blunt á enn eftir að slá það sölumet sem hann setti þá í tónlist. Blunt fyndinn á Twitter James Blunt er þekktur fyrir óborganleg tíst. Morgunblaðið/hag Kvikmyndir Kvikmyndahandrit um ævi popptónlist- arkonunnar Madonnu hefur verið valið „besta ófram- leidda kvikmyndahandritið“ í Hollywood. Elyse Hol- lander skrifar handritið að þessari væntanlegu kvikmynd, Blond Ambition, en handritið fékk flest at- kvæði á svokölluðum „Black List“ eða „Svarta listan- um“. Eru það helstu forráðamenn kvikmyndageirans í Hollywood sem velja besta handritið sem stendur til að byrja að mynda árið 2017. Blond Ambition sigrar þar 73 handrit en kvikmyndaðdáendur skyggnast inn í líf og ævi söngkonunnar sem og hið mergjaða samfélag sem New York var á 9. áratugnum. Hollander þykir stjarnfræðilega hæfileikaríkur ný- græðingur í bransanum en hún aðstoðaði meðal ann- ars lítillega við leikstjórn Óskarsverðlaunamynd- arinnar Birdman og hefur gert nokkrar stuttmyndir. Svarti listinn hefur verið birtur frá árinu 2005 og myndir eins og Manchester Bye the Sea, Miss Sloane og The Founder hafa verið sigurvegarar hans síðustu ára. Myndin um Ma- donnu er talin lík- leg til stórafreka en handritið þyk- ir afburðagott. AFP Best af óframleiddum www.gjofsemgefur.is P IP A R \T B W A • S ÍA • 102985
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.