Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Page 56
SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 2016
KAY BOJESEN
Söngfugl
Verð 12.150,- stk.
MENU
Skartgripatré
Verð 10.350,-
KAY BOJESEN
Jólasveinn
Verð 13.990,-
MENU
Kertastjakar á vegg
Verð frá 6.500,-
ROSENDAHL
Kanna + 2 vatnsglös
Verð 4.900,-
ROSENDAHL
Kertastjakar
Verð 1.300,- stk.
IITTALA Alvar Aalto
16 cm vasar, verð frá 19.450,-
IITTALA
Maribowl
Verð frá 6.350,-
IITTALA Múmín
Bollar verð 3.500,-
Skálar verð 4.980,-
IITTALA Kastehelmi
Krukkur með loki
Verð frá 3.950,-
BIALETTI
Mokka könnur
Verð frá 2.690,-
KARTELL
Abbracciaio
Verð 28.900,- stk.
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640
Hugmyndir í jólapakkann
POMME PIDOU
Sparibaukar
Verð frá 3.390,-
KÄHLER
Omaggio
Vasar
Verð frá 3.590,-
IITTALA Kastehelmi
Kertastjakar, verð frá 2.400,-
Lukkutröll
Verð frá 4.290.-
NÝTT vetrarb
olli
NÝR litur
MENU Double
Kertastjaki 30 cm
Verð 22.450,-
Bikar sem Knattspyrnusamband Íslands,
KSÍ, færði brasilísku knattspyrnugoðsögn-
inni Pelé í ágúst 1991, í tilefni fyrstu heim-
sóknar hans til landsins, er til sölu á upp-
boðsvefnum Ebay.
Fyrr á þessu ári seldi Pelé ýmsa muni
tengda knattspyrnuferli sínum í gegnum
Julien’s-uppboðshúsið í London, verðlauna-
peninga, bikara og fleira og þar á meðal
þennan bikar sem er nú kominn í endursölu.
Heimsókn Pelé hingað til lands vakti
mikla athygli og varð öngþveiti í kringum
„Svörtu perluna“, eins og hann er jafnan
kallaður, hvert sem hann fór og þegar hann
gisti á Hótel KEA á Ak-
ureyri og það upp-
götvaðist að hann
hafði skilið náttfötin
eftir varð uppi fótur
og fit því fólk sá fyrir
sér að það yrði að
geyma þau því
þau gætu verið
boðin upp síðar
meir.
Ekki fer frek-
ari sögum af þeim
náttfötum en bik-
arinn frá KSÍ er í
það minnsta falur á
Ebay fyrir um
353.000 íslenskar
krónur.
Pele er orðinn 76 ára gamall en hér er hann umvafinn íslenskum
börnum í heimsókn sinni hingað árið 1991.
Bikar Pelé frá KSÍ til sölu
Bikar úr eftirminnilegri ferð brasilíska knattspyrnumannsins
Pelé hingað til lands árið 1991 er til sölu.
Teikningu eftir listamanninn
Mugg, Guðmund Thorsteinsson,
var stolið af sýningu í Listasafni
ASÍ á aðventunni 1984, þann 14.
desember. Myndin, sem bar
nafnið Beta, var teiknuð árið
1913 og var af þriggja ára gömlu
sofandi stúlkubarni, sem átti
jafnframt myndina árið 1984, þá
74 ára gömul.
Myndina hafði hún erft eftir
ljósmóður sína og var hennar
eini erfðagripur og fyrir utan
verðmætin var þetta sérstak-
lega sár og persónulegur missir fyrir eigandann, en
Muggur hafði verið móðurbróður hennar og þau
höfðu búið í sama húsi. Muggur lést aðeins 33 ára
gamall úr brjóstveiki.
Sýningin hafði verið sett upp í tilefni útgáfu út-
komu listaverkabókar um Mugg sem Listasafn ASÍ
og Lögberg-bókaforlag gáfu út. Viku eftir stuldinn
fannst þjófurinn, Reykvíkingur á þrítugsaldri, en þá
kom sú sorglega staðreynd í ljós að eftir að hann
hafði reynt að koma myndinni í verð og boðið fólki
hana til kaups, en ekki tekist, reif hann hana í smátt
og fleygði henni.
GAMLA FRÉTTIN
Stal teikningu
Muggs
Teikningin „Beta“ eftir Mugg sem var stolið af Lista-
safni ASÍ og var af systurdóttur hans, teiknuð árið
1913 þegar hún var þriggja ára.
Muggir, Guðmundur
Thorsteinsson.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Mikhail Baryshnikov
lettneskur dansari og danshöfundur
Anthony Hopkins
leikari
Tómas Jónsson
grafískur hönnuður
Bikarinn
frá KSÍ
sem er til
sölu á
Ebay.