Fréttablaðið - 06.02.2017, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 06.02.2017, Blaðsíða 16
Jón Guðmundsson Lögg. fasteignasali jon@fastmark.is Guðmundur Th. Jónsson Lögg. fasteignasali gtj@fastmark.is Gísli Rafn Guðfinnsson Aðstoðarmaður fasteignasala gisli@fastmark.is Elín D. Wyszomirski Lögg. fasteignasali elin@fastmark.is Magnús Axelsson Lögg. fasteignasali magnus@fastmark.is Hallveig Guðnadóttir Skrifstofustjóri hallveig@fastmark.is Heimir Fannar Hallgrímsson hdl. og lögg. fasteignasali heimir@fastmark.isÓðinsgötu 4, Sími 570 4500, opið virka daga kl 9 – 17. Netfang: fastmark@fastmark.is – www.fastmark.is Í TRAUSTUM HÖNDUM Í ÁRATUGI Grettisgata 46. Glæsileg 3ja herbergja íbúð. Eignin verður til sýnis í dag frá kl. 17.15 – 17.45 Afar falleg 86,8 fm. íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi í miðbænum. Búið er að endurnýja eldhús, baðherbergi og gólfefni á smekklegan hátt. Góð lofthæð er í allri íbúðinni. Möguleiki væri að færa eldhús inn í aðra stofuna og útbúa annað svefnher- bergi í stað eldhúss. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara inn af íbúð. Búið er að endurnýja þak, þakeinangrun, rennur og glugga í sameign fyrir u.þ.b. 10 árum. Sameign er nýlega máluð. Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á horni Grettisgötu og Vitastígs. Stutt er í alla verslun og þjónustu, t.d. Bónus, Austurbæjarskóla, Sundhöllina, veitingastaði og kaffihús. Verð 44,9 millj. Blikanes 6 - Garðabæ. Einbýlishús á sunnanverðu Arnarnesi. Eignin verður til sýnis þriðjudag frá kl. 17.15 – 17.45 Bjart og vel skipulagt 235,0 fm. einbýlishús á einni hæð með innbyggðum tvöföldum 39,6 fm. bílskúr á sunnanverðu Arnarnesi. Stórar samliggjandi stofur, rúmgott eldhús með miklum upprunalegum innréttingum. Þrjú svefnherbergi. Nýlega endurnýjað baðherbergi. Lóðin er í góðri rækt. Innkeyrsla er steypt og stétt fyrir framan húsið er hellulögð. Rafmagnshiti er í útitröppum. Við verönd er lítið gróðurhús með rafmagni. Húsið að utan er í góðu ástandi, klætt með endingargóðri klæðningu.Húsið stendur á 1.216,0 fermetra eignarlóð á sunnanverðu Arnarnesinu þar sem mikils skjóls nýtur fyrir norðanátt. Verð 84,9 millj. GRETTISGATA 46BLIKANES 6 LANGALÍNA 20 - 28, SJÁLANDI GARÐABÆ NÝJAR 2JA, 3JA OG 4RA HERBERGJA ÍBÚÐIR. MIKIÐ OG ÓHINDRAÐ SJÁVARÚTSÝNI. Sérlega glæsilegt 3ja hæða álklætt fjölbýlishús í Sjálandi í Garðabæ. Íbúðirnar eru frá 93 upp í 188 fermetra og verða afhendar með vönduðum íslenskum innréttingum frá Brúnás og vönduðum AEG eldhústækjum. Íbúðirnar verða ýmist með svölum eða stórum timburveröndum og svölum. Stæði í bílageymslu fylgja öllum íbúðum. Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, þó verða flísar á baðherbergjum og þvottahúsum. Byggingaraðili er: Byggingarfélag Gylfa og Gunnars. Vel staðsett 269,8 fm. einbýlishús á tveimur hæðum að meðtöldum 47,4 fm. bílskúr. Tvennar svalir sem snúa annars vegar í suður og hins vegar til suðausturs. Garðurinn er ræktaður og mætir óspilltu mosavöxnu og grónu hrauninu til norðurs. Stórar stofur með arni. Þrjú rúmgóð herbergi. Sjónvarpsrými. Tvö baðherbergi. Íbúð á neðri hæð með sér inngangi. Húsið er mikið endurnýjað. Verð 77,9 millj. Sævangur – Hafnarfirði. 320 fm. atvinnuhúsnæði við Skemmuveg 16 sem skiptist í 3 iðnaðarbil, sem hvert um sig er með sér innkeyrsludyrum og gönguhurð. 3ja fasa rafmagn er í öllum bilum. Úr öllum bilum er neyðarútgangur með eldvarna- hurðum. Malbikað plan og athafnasvæði fyrir framan inn- keyrslu/ athafnasvæði í öll bilin án hitalagna. Verð 72,9 millj. Skemmuvegur -Kópavogi. Vel staðsett skrifstofu- og verslunarhúsnæði við Urðarhvarf 14 í Kópavogi. Húsið stendur á miklum útsýnisstað þar sem horft er m.a. út á sundin, að Esjunni og yfir efri hluta Elliðaárdals. Aðkoma að húsinu er góð og næg bílastæði á lóð og í bíla- kjallara hússins. Tvær efstu hæðirnar ( 5. og 6. hæð) eru komnar í útleigu. Tvær lyftur eru í húsinu. Lausar hæðir til útleigu eru eftirfarandi: 1. hæð, verslunar- og þjónusturými: 858,9 fermetrar. 2. hæð, skrifstofurými: 900,5 fermetrar. 3. hæð, skrifstofurými: 900,4 fermetrar. 4. hæð, skrifstofurými: 900,4 fermetrar. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu. Urðarhvarf 14 - Kópavogi. Til leigu verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Túngata 34. Efri hæð í tvíbýlishúsi. Leirubakki 22. 4ra herbergja íbúð. Glæsilegt 86,2 fm. skrifstofuhúsnæði / vinnustofu / loft á 2. hæð auk um 20,5 fm. millilofts, sem ekki er getið hjá Fasteignaskrá Íslands, samtals er eignarhlutinn því um 107,3 fm. að stærð. Öll gólf eru flotuð og lökkuð og gólfhitalagnir eru á aðal- hæð. Mjög mikil lofthæð er í eignarhlutanum eða um 5,0 metrar og eru öll loft hvítmáluð. Eignarhluti merktur 0216. Staðsetning er virkilega góð á einum eftir- sóttasta stað borgarinnar þar sem mikil upp- bygging hefur átt sér stað undanfarin ár. Verð 34,9 millj. Fiskislóð 45. Glæsilegt skrifstofuhúsnæði / vinnustofa Nýtt 160,1 fm. staðsteypt parhús á einni hæð að meðtöldum innbyggðum bílskúr við Vogatungu 95 í Mosfellsbæ. Húsið, sem er í byggingaferli afhendist eftir samkomulagi og skilast fokhelt að innan en óeinangrað og fullbúið að utan með grófjafnaðri lóð. Byggingaraðili er tilbúinn til að skila húsinu tilbúnu undir innréttingar að innan, fullbúnu að utan og með frágenginni lóð. Loft verða þó óklædd og gólf óflotuð. Allar byggingarteikningar afhendast samþykktar frá skipulagsnefnd Mosfellsbæjar til kaupanda. Vogatunga – Mosfellsbæ. Nýtt parhús. Glæsilegt 227,2 fm. einbýlishús á tveimur hæðum að meðtöldum innbyggðum 41,0 fm. bílskúr á fallegum útsýnisstað í Hafnarfirði. Húsið var allt endurnýjað á smekklegan hátt fyrir 10 árum og sá Rut Káradóttir innanhúsarkitekt um innanhús- hönnun. Möguleiki er að gera séríbúð á neðri hæð hússins. Teikningar fyrir 55 fm. stækkun á stofu til suðurs fylgja með eigninni. Staðsetningin er afar góð rétt ofan við Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði. Útsýni frá eigninni er glæsilegt út á sundin, að Reykjanesskaganum, Snæfellsnesi og Akrafjalli til norðurs og fjallgarðanna á Reykjanesi og allt að Bláfjöllum til suðurs. Verð 79,9 millj. Fagrihvammur - Hafnarfirði. OP IÐ HÚ S Í D AGOP IÐ HÚ S ÞR IÐJ UD AG 294,0 fm. einbýlishús með aukaíbúð á jarðhæð og innb. tvöföldum bílskúr við Hæðarbyggð. Húsið er upphaflega teiknað sem einbýlishús en nýlega var útbúin 2ja-3ja herbergja aukaíbúð á hluta jarð- hæðar hússins. Mjög auðvelt er að breyta húsinu aftur í einbýlishús með því að fjarlægja tvo létta veggi á neðri hæð. Baðherbergi á báðum hæðum hafa verið endurnýjuð og eldhús á efri hæð er nýlegt. Lóðin er stór og gróin með háum trjám, tyrfðum flötum, afgirtri verönd til suðurs og vesturs með heitum potti og malbikaðri stórri innkeyrslu með hitalögnum undir að hluta. Staðsetning eignarinnar er afar góð þaðan sem stutt er í Hofstaðaskóla og Fjölbrautaskólann. Verð 89,9 millj. Hæðarbyggð – Garðabæ JÖRÐ - ÞINGVALLASVEIT Til sölu 4.000 hektara jörð í Borgarbyggð, aðeins í um 60 kílómetra fjarlægð frá Höfuðborgarsvæðinu. Jörðin er skráð sem lögbýli og liggur frá botni Lundareykjardals og að landi Þingvallakirkju. Vegurinn um Uxahryggi er innan landamerkja jarðarinnar. Jörðin er að stórum hluta í 150 - 300 metra hæð yfir sjávar- máli og á henni eru mörg vötn, þau stærstu Reyðarvatn og Uxavatn en upptök Grímsár eru í Reyðar- vatni. Í Reyðarvatn austanvert kemur Reyðarlækur úr Stóra-Brunnvatni og frá norðaustri falla í það tvær ár, Leirá og Fossá. Heitt vatn úr borholum er leitt að landinu og notað til upphitunar á bæjunum Þverfell I og II. Hér er um að ræða mjög landstóra og merkilega jörð nærri höfuðborginni, sem nýta mætti með margvíslegum hætti. Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali í netfanginu gtj@fastmark.is TIL LEI GU LUNDUR 25 – KÓPAVOGI. Glæsilegt 5 hæða fjölbýlishús við Lund nr. 25 í Kópavogi. Íbúðirnar eru 2ja, 3ja og 4ra herbergja frá 111,0 fm. upp í 179,2 fm. og verða afhentar með vönduðum íslenskum innréttingum frá Brúnás og vönduðum AEG eldhústækjum. Íbúðirnar verða ýmist með svölum eða veröndum. Stæði í bílageymslu fylgja öllum íbúðum. Afhending íbúðanna er í mars/apríl 2017. Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, þó verða flísar á baðherbergjum og þvottahúsum. Byggingaraðili er: Byggingarfélag Gylfa og Gunnars. Eignin verður til sýnis þriðjudag frá kl. 17.15 – 17.45 105,2 fm. efri hæð í tvíbýlishúsi við Túngötu að meðtaldri 7,1 fm. sér geymslu í kjallara. Hæðin skiptist í hol, rúmgóða stofu, eldhús, 3 herbergi og baðherbergi. Íbúðinni fylgir 19,5 fm. sér íbúðarherbergi í kjallara með aðgengi að salerni, eldhúsi og sturtu, sem eru sameiginleg með neðri hæð hússins.Geymsluris er yfir íbúðinni og er það einangrað. Verið er að skipta um allt gler og glugga í kjallara og verður þeim framkvæmdum lokið fyrir afhendingu eignarinnar. Lóðin er öll afgirt með steyptum veggjum. Verð 55,0 millj., HLÍÐASMÁRI 8 – KÓPAVOGI. Til leigu skrifstofu – og lagerhúsnæði í góðu lyftuhúsi miðsvæðis í Kópavogi. Húsið er afar vel staðsett við fjölfarna umferðaræð. Til leigu er eftirfarandi: • 211 fm. skrifstofuhúsnæði á 2. hæð. • 170 fm. lagerhúsnæði í kjallara. Leigutími er umsemjanlegur, til lengri eða skemmri tíma. VATNSENDAHLÍÐ - SKORRADALUR Vel staðsett sumarhús við Vatnsendahlíð í Skorradalshreppi. Eignin stendur á 2.634,0 fm. leigulóð og er skráð 53,0 fm. auk u.þ.b. 12 fm. gestahúss eða samtals um 65 fm. Húsið var byggt árið 1989 og gestahúsið árið 2010 - 2012. Húsið snýr til suðurs og nýtur vel sólar. Sólpallur er mjög stór og umlykur bústaðinn til austurs, suðurs og vesturs. Lóðin er með fallegum trjám, runnum og lítilli tjörn. Stórar gras- flatir og góð aðkoma að bústaðnum. SKÚLAGATA 40A – LAUS TIL AFHENDINGAR STRAX. Vel skipulögð 87,3 fm. íbúð á 3. hæð í góðu lyftuhúsi ásamt sér stæði í lokaðri bíla- geymslu við Skúlagötu. Íbúðin er í húsi fyrir 60 ára og eldri sem eru í félagi eldri borgara. Íbúðin skiptist í anddyri, stofu, þvottaherbergi, sjónvarpshol, eldhús, tvö herbergi og baðherbergi. Snyrtileg sameign. Eignin verður til sýnis miðvikudag frá kl. 17.15 – 17.45 Falleg 114,8 fm. íbúð á 3. hæð að meðtöldum tveimur geymslum. Stórar svalir til suðvesturs með glæsilegu útsýni. Rúmgóð stofa, sjónvarpshol og þrjú góð herbergi. Nýleg gólfefni og nýlegt gler í flestum gluggum ásamt nýlegum lausafögum að stórum hluta. Hús að utan er í góðu ástandi nýlega sprunguviðgert og málað. Frábær staðsetning þar sem skólar og leikskólar eru í göngufæri ásamt Mjóddinni. Verð 35,9 millj. SÍÐUMÚLI 27 - SKRIFSTOFUHÆÐ TIL LEIGU. Til leigu glæsileg 332,4 fm. mjög vönduð og mikið endurnýjuð skrifstofuhæð auk rishæðar, sem nýtt er sem geymsla. Á hæðinni eru tvö stór opin rými, fundarherbergi og 10 afstúkaðar skrifstofur. Sameign er öll til fyrirmyndar. Hluti húsgagna og annars búnaðar getur fylgt með eigninni. 28,5 millj. 40,9 millj. SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI 3JA HERBERGJA 4RA HERBERGJA SUMARHÚS SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI Höfum fjölda kaupenda að 2ja og 3ja herbergja íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Skoðum og verðmetum samdægurs. Hafðu samband. OP IÐ HÚ S ÞR IÐJ UD AG OP IÐ HÚ S MI ÐV IKU DA G TIL LEI GU TIL LEI GU 0 6 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :4 2 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 2 A -8 0 1 4 1 C 2 A -7 E D 8 1 C 2 A -7 D 9 C 1 C 2 A -7 C 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 5 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.