Fréttablaðið - 06.02.2017, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 06.02.2017, Blaðsíða 2
Ómissandi á pizzuna, í ofn- og pastaréttina, á tortillurnar og salatið. Er nú á tilboði Heimilis RIFINN OSTUR ÍSLENSKUR OSTUR 100% 370 g Ólympíufarinn varð að sætta sig við silfrið Tíundu Reykjavíkurleikunum lauk í gær en keppni hefur staðið undanfarnar tvær helgar í 22 íþróttagreinum víðsvegar um höfuðborgina. Ein af lokagreinunum á leikunum var keppni í listhlaupi á skautum. Þar varð hin ástralsk-bandaríska Brooklee Han að sætta sig við silfur en hún varð í 20. sæti á síðustu Ólympíuleikum. Sigurvegarinn var Karly Robertson frá Skotlandi. Fréttablaðið/SteFán Veður Vaxandi austanátt í dag og þykknar upp. Stormur um kvöldið, slydda og síðan rigning sunnan- og austanlands, en hægari og úrkomulítið norðvestantil á landinu. Hiti 0 til 6 stig. sjá síðu 16 umhverfismál Ríkissjóður hefur keypt sumarbústað við Vallhallar- reit að ósk Þingvallanefndar sem hyggst rífa húsið og „uppræta og fjarlægja greniskóginn“, eins og segir í bréfi Ólafs Arnar Haralds- sonar þjóðgarðsvarðar í bréfi til forsætisráðuneytisins. „Opnun lóðarinnar fyrir almenn- ing og uppræting greniskógarins myndi bæta til muna ásýnd þjóð- garðsins, bæði fyrir gangandi gesti sem og þá sem njóta útsýnis frá Hakinu,“ segir Ólafur Örn Haralds- son í bréfi þar sem óskað er eftir heimild og aðstoð forsætisráðu- neytisins við kaup á húsinu. „Fyrirsjáanlegt er að núverandi sumarbústaður og greniskógur stendur í vegi fyrir tengingu sem nú er rætt um að verði milli aðal- aðstöðu ferðamanna á Hakinu og svæðisins við Valhallarreitinn og umhverfisins við Öxará,“ skrifar þjóðgarðsvörður og bætir við að svigrúm þurfi vegna stórviðburða, meðal annars árin 2018 og 2030. Húsið sem um ræðir er ríflega 70 ára, byggt 1945, og er 49 fermetrar. Bústaðurinn, sem var í eigu tíu ein- staklinga úr sömu fjölskyldunni, var endurbyggður fyrir um aldar- fjórðungi að því er fram kemur í verðmati sem fasteignasalan Eigna- miðlun vann fyrir Þingvallanefnd. Eignamiðlun sagði húsið virðast vera í mjög góðu ástandi. „Staðsetning er einstök eða nánar tiltekið næsta lóð vestan við lóðina þar sem áður stóð Hótel Valhöll. Lóðin er skógi vaxin,“ segir Eigna- miðlun um sjálfan staðinn sem er leigulóð í eigu ríkisins. Eignamiðlun mat verðmæti bústaðarins 35 milljónir króna. Í Kaupa hús og uppræta greni við Valhallarreit Rífa á 72 ára sumarbústað sem ríkið keypti á Þingvöllum á 35 milljónir og fjar- lægja greniskóg á lóðinni sem stendur næst Valhallarreitnum. Skógurinn hefur „slæm sjónræn áhrif“ tekur forsætisráðuneytið undir með Þingvallanefnd. tré austan Þingvallabæjarins voru felld 2007. Fréttablaðið/anton bréfi til fjármálaráðuneytisins í ágúst síðastliðnum tók forsætis- ráðuneytið undir ósk Þingvalla- nefndar um kaup á húsinu. „Þingvallanefnd telur mikilvægt af skipulagsástæðum að fá umráð yfir lóðinni sem er 5.600 fermetrar, uppræta greniskóg sem er á lóðinni og hefur slæm sjónræn áhrif og opna aðgang að henni fyrir almenning,“ segir í bréfi forsætisráðuneytisins. Kaupin voru síðan gerð í septem- ber 2016 fyrir áðurnefnda upphæð. Samkomulag er í gildi milli Skóg- ræktar ríkisins og þjóðgarðsins á Þingvöllum um að erlend tré innan þinghelginnar skuli felld þótt Skóg- ræktin standi vörð um lundi utan þinghelginnar. „Trén sem voru í kring um Val- höll voru felld á grundvelli þess samkomulags,“ segir Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri og vísar til þess að talsvert var fellt af gömlum og háum grenitrjám milli Valhallarreitsins og umræddrar sumarbústaðarlóðar á árinu 2006. gar@frettabladid.is Kjaramál Sjómannasamband Íslands segir Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa viljandi sett við- ræður félaganna í  hnút með frétta- bréfi þeirra til félagsmanna sinna um bókun Sjómannasambandsins á fundi ríkissáttasemjara. Þá var sett fjölmiðlabann á við- semjendurna og ákveðið að ekki mætti ræða efnisatriði kjaraviðræðn- anna opinberlega. Í tilkynningu frá Sjómannasambandinu, sem send var út í gærkvöldi, segir: „Sáttasemjari hafði varla lokið máli sínu þegar SFS greinir frá bókun sem fulltrúar sjó- manna settu fram. SFS gerir því skóna að bókunin sé í raun ný krafa frá sjó- mönnum. Og að sjómenn vilji ekki semja.“ Í fréttabréfinu sem SFS sendi á félagsmenn sína á laugardag, sagði að með bókun Sjómannafélagsins, hefði komið fram ný og áður órædd krafa í deilunni. Bókunin sýndi vilja- leysi til að ná farsælli lendingu í kjaraviðræðunum. - snæ Stutt og snarpt fjölmiðlabann lögreglumál Mikill erill var hjá lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Í gærmorgun var tilkynnt um erlendan ferðamann sem hafði brotið rúðu í bifreið í miðborginni. Þegar lögreglu bar að garði bar mað- urinn því við að hafa reiðst íslenskum manni sem hafði uppi niðrandi tal til hans vegna kynþáttar hans. Klukkustund síðar var tilkynnt um ölvaðan mann sem braut rúðu í húsi í Vesturbænum, en lögregla hafði einnig afskipti af þeim manni og hann var vistaður í fangageymslu. Í tilkynningu frá lögreglu má finna alls 26 tilvik þar sem lögregla hafði afskipti af mönnum aðfara- nótt sunnudags vegna ölvunar þeirra. Mikið var um ölvunarakstur og akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá aðstoðaði lögreglan meðal ann- ars mann sem svaf áfengissvefni í miðbænum og ofurölvi mann sem var vís til þess að fara sér að voða í Hafnarfirði. Þá stöðvaði lögreglan för öku- manns vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Kom í ljós að maðurinn var einnig eftirlýstur og var tekin skýrsla af honum þegar hann hafði rænu til. – snæ Braut rúðu vegna kynþátta níðs lögreglan handtók eftirlýstan mann aðfaranótt sunnudags. Fréttablaðið/ Vilhelm 26 tilvik þar sem lögregla hafði afskipti af mönnum vegna ölvunar þeirra Opnun lóðarinnar fyrir almenningi og uppræting greniskógarins myndi bæta til muna ásýnd þjóðgarðsins. Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum 6 . f e b r ú a r 2 0 1 7 m á N u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 0 6 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :4 2 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 2 A -4 E B 4 1 C 2 A -4 D 7 8 1 C 2 A -4 C 3 C 1 C 2 A -4 B 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 5 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.