Fréttablaðið - 06.02.2017, Blaðsíða 38
„Þetta hef ég aldrei prófað áður. Sko,
ég er enn að reyna að finna út úr því
hvað ég er að fara að gera. Þetta verð-
ur einhvers konar raftónlist, býst ég
við – ég verð bara með einhverjar
græjur á sviðinu að baka raf. Ég er
búinn að vera að vinna í alls konar
tónlist lengi, en hún hefur ekki beint
verið til flutnings svona á sviði,“
segir Örvar Smárason, en hann mun
koma fram einsamall á Sónarhátíð-
inni og frumflytja þar nýtt verkefni
– en Örvar er vanur að koma fram
með hljómsveitarfélögum sínum í
annaðhvort Múm eða FM Belfast.
Er það búið að blunda lengi í þér
að fara út í þetta?
„Neeei, ég get nú eiginlega ekki
sagt það. Ég gerði þetta eins og svo
margt annað og bókaði þessa tón-
leika bara í ákveðnu hugsunarleysi.
Það leiðir oft til jákvæðra hluta, að
gera hlutina bara út í loftið.“
Þannig að þetta er algjörlega
„spontant“ hjá þér?
„Já. Svo sé ég bara hvaða þýðingu
þetta hefur fyrir mig. Ég hafði eigin-
lega ekkert spáð í það, en ég fór í eitt-
hvert viðtal um daginn þar sem ég
var spurður af hverju ég væri að gera
sólóverkefni og ég fattaði að ég hafði
ekkert hugsað út í það, þetta er bara
eitthvað sem ég allt í einu byrjaði að
gera.“
Er það eitthvað við Sónarhátíðina
sem fékk þig til að frumflytja þetta?
Svona fyrst þú ert að gera þetta þar.
„Hmm, nei alls ekki, það kom bara
á réttum tíma – þetta var bara ein-
hver hugdetta sem ég fékk.“
Þau hafa þá bara hringt í þig á hár-
réttum tíma?
„Já.“
Þannig að þú ert ekki með neitt
planað í kringum þetta?
„Ég er að setja þetta saman núna.
Ég er að vinna mína fyrstu plötu,
eða svona sóló… – samt svo fyndið
að kalla þetta sóló. Ég er að vinna
fyrstu plötuna undir mínu nafni.“
Hver er ástæðan fyrir því að þú vilt
ekki kalla þetta sóló?
„Sko, ástæðan fyrir því að ég vil
ekki kalla þetta sóló er sú að það er
svona eitthvað sem hangir eða loðir
við sólóverkefni – að maður standi
fremst á sviðinu og syngi, beri hjarta
sitt á borð.“
Þannig að þetta er ekki útrás fyrir
listrænan metnað sem þú hefur ekki
getað komið frá þér annars staðar?
„Það er ekki beint það sem ég
er að gera, ekki svo ég viti til. Ég er
bara að láta hlutina ráðast einhvern
veginn.“
Þannig að gestir Sónarhátíðar-
innar þurfa ekki að búast við að þú
rífir upp gítarinn?
„Nei, ekki í þetta sinn allavega.
Það gæti gerst – ég er ekki búinn að
útiloka neitt. Ég vil ekki vera að festa
neitt niður.
En svo er ég líka að vinna að öðru
verkefni, með Sin Fang og Sóleyju.
Þetta er samstarfsverkefni þar sem
við gefum út nýtt lag síðasta föstu-
dag í hverjum mánuði. Þannig að
þetta eru tólf lög í ár. Við gáfum út
fyrsta lagið núna í lok janúar. Það
verkefni var einmitt líka bara ein-
hver hugdetta sem gekk of langt,
eins og svo margt.
Stundum er bara þess virði að
framkvæma þessa hluti, þó ekki
væri nema til þess að maður fram-
kvæmdi eina af tuttugu „frábærum“
hugmyndum. Það eru allir með
milljón hugmyndir og ef maður nær
ekki nema bara að framkvæma eina
og eina – þá hefur maður eitthvað
fyrir stafni. Við höfum samt annars
ekkert pælt meira í hvað við ætlum
að gera með þessi lög, við byrjum
bara á að semja þau og sjáum svo
til.“
Örvar verður svo á faraldsfæti
eins og vanalega, bæði með Múm
og FM Belfast. Hann spilar í Berlín
næstu helgi með Múm í kringum
kvikmyndahátíðina í Berlín. Síðan
er það Reykjavík Music Festival í LA
og FM Belfast verður að sjálfsögðu
líka á Sónar. Nóg að gera.
stefanthor@frettabladid.is
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Þetta verður
einhvers konar
raftónlist, býst ég við – ég
verð bara með einhverjar
græjur á sviðinu að baka
raf.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
Norski hönnuðurinn og innan húss -
arkitekt inn Jahn Aamodt er maðurinn
á bak við Timeout hæg inda stól inn.
Hann hefur unn ið til fjölda verð launa
fyrir hönn un sína en við stönd um fast
á því að Timeout hæginda stóllinn sé
hans 9. sinfónía. Stóllinn er nútíma -
legur en um leið alveg tímalaus.
T I M E O U T HÆ G I N D A S T Ó L L I N N
TIMEOUT stóll, verð: 299.990 kr.
TIMEOUT skemill, verð: 79.990 kr.
J a h n A a m o d t
TIMEOUT ER FÁANLEGUR Í MÖRGUM LITUM Í LEÐRI OG ÁKL ÆÐI.
T I M E O U T
H Æ G I N D A S T Ó L L I N N
t r a u s t u r h e i m i l i s v i n u r
bókaði sig í ákveðnu
hugsunarleysi
Örvar smárason tónlistarmaður hefur lengi vel spilað um allan
heim bæði með Múm og FM Belfast. Hann mun koma í fyrsta sinn
fram einsamall á Sónarhátíðinni núna um miðjan febrúar en hann
segist enn vera að finna út úr því hvað hann sé að fara að gera.
Örvar segist allt eins geta rifið upp gítarinn á Sónar, þó að hann búist nú reyndar ekki við því. FRÉTTABLAÐIÐ/EyÞÓR
6 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M Á N U D a G U r22 L í f i ð ∙ f r É T T a b L a ð i ð
0
6
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:4
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
2
A
-5
D
8
4
1
C
2
A
-5
C
4
8
1
C
2
A
-5
B
0
C
1
C
2
A
-5
9
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
5
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K