Pilsaþytur: málgagn Kvennalistans í Vestfjarðakjördæmi - 03.04.1995, Side 4
4
PILSAÞYTUR
Hvaða jafnrétti er það?
Frá Breiðuvík.
Á fyrstu árum Kvennalistans á
Islandi var ég ekki sammála því
að á þessum „jafnréttis" tímum
þyrfti að koma til sérframboð
kvenna. Mér fannst það jafnvel
tímaskekkja en annað hefur
komið á daginn. Málflutningur
kvennanna hefur verið með þeim
hætti að fólk eins og ég fór að
hlusta. Raddir þeirra á þingi eru
okkur nauðsynlegar og víða hefur
það sýnt sig að þær hafa haft
veruleg áhrif. Með fjölgun
kvenna á þingi breyttist margt. Þó
að Kvennalistinn hafi ekki enn
komist í ríkisstjórn, þá hefur hann
með sínum hættti vakið máls á
ýmsu sem vart mátti heyrast áður.
En það er ekki nóg. Til að ná fram
sínum málum þarf Kvennalistinn
að komast í stjórn.
I dag finnst mér við Islending-
ar ekki hafa efni á að hafna
reynsluheimi kvenna, hugviti
þeirra og víðsýni. Því segi ég að
á meðan staðan er eins og hún er,
er þörf á sérframboði kvenna.
Vestfirðingar,
konur og karlar!
Stöndum saman um að styðja
Jónu Valgerði til áframhaldandi
þingsetu. Hún hefur sýnt það og
sannað að hún er tilbúin að vinna
- Hvaða jafnrétti erþað að kona sem vinnur nákvæmlega
sama starfog karl fái lægri laun?
- Hvaða jafnrétti er það að svokölluð „kvennastörf“ eru
metin til lægri launa en flest önnur störf?
- Hvaða jafnrétti erþað að af 63 þingmönnum eru aðeins
16 konur á þingi?
Ungt fólk
- takið afstöðu!
Kosningarétturinn er hluti af því lýðræði sem við búum
við á íslandi. Þá gefst fólki kostur á að taka þátt í að velja
þá sem fara með stjórntaumana hverju sinni.
Allir ættu því að nota kosningarétt sinn, ungir jafnt sem
aldnir, konur jafnt sem karlar.
Ungu fólki finnst kannski stundum langt bil á milli sín og
þeirra sem sitja inni á Alþingi og sér því lítinn tilgang með
að kjósa. En kosningarétturinn gefur okkur kost á að taka
þátt í valinu á þeim sem fara með stjórntaumana hverju
sinni, kost á að hafa áhrif og því ættu allir að notfæra sér
hann. Líka þú. Kvennalistinn hvetur því allt ungt fólk til að
athuga hvað er í boði og taka afstöðu.
Þitt atkvæði skiptir máii.
Veldu Kvennalistann því hann er eini flokkurinn
með framtíðarsýn.
að okkar sameiginlegu hags-
munamálum. Það vita allir sem
vilja vita að búsetuskilyrði okkar
eru ekki þau sömu og á þéttbýlli
svæðum. Við eigum í vök að
verjast. Jóna Valgerður hefur
sýnt að hún vill vinna að jafnrétti
fyrir okkur öll. Ég trúi því ekki að
óreyndu að Vestfirðingar hafni
einu konunni sem þeir hafa raun-
hæfa ntöguleika á að koma á
þing.
Konur!
Við látum það ekki gerast,
við kjósum X-V.
Arnheiður Guðnadóttir
ferðaþjónustubóndi, Breiðuvík
í Vesturbyggð,
skipar 5. sœti Kvennalistans í
Ætlar þú að verja þína fjárfestingu!
Ert þú ekki orðin(n) þreytt(ur)
að vera alltaf í óhreinum bíl?
Er ekki leiðinlegt að hafa
þessa fúkkalykt í bílnum vegna þess að
gólfin hafa safnað í sig bleytu?
• Tjöruþvottur frá kr. 625..-
• Djúphreinsun og þurrkun á teppin frá kr. 1.250.-
• Vetrarvörn (sem er smurning í lásana, silicon á listana
og rainex á gluggana) á kr. 1.500.-
• Blettun frá kr. 2.500.-
• Alþrif frá kr. 2.500.- (tjöruþvottur, bón og vönduð þrif
að innan).
Fyrir heimilið:
Þrif á lofti og
veggjum (í staðinn
fyrir að mála)
- Þrif á teppi
(í staðinn fyrir að
skipta um teppi)
- Bónleysun og
bónun (í staðinn fyrir
að skipta um dúk).
MASSI
ER KLASSI
Suðurtanga 2
Sími 5196
BÍLEIGENDUR!
Oft var þörf en nú er nauðsyn
að smyrja bílinn.
Við leysum það af hendi fljótt og vel.
JULjfe JUt dttL
Vélsmiðja ísafjarðar