Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Side 5

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Side 5
„Eiga margar eftir aó skila eyðubloðum?“ „Örfáar hjúkrunarkonur eiga enn eftir að skila eyðublöðum og geta þær átt von á okkur öllum sex í síðdegiskaffi innan skamms, svo þáð er betra fyrir þær að hafa hraðann á. Ennfremur eiga margar eftir að skila myndum og vill nefndin nota tækifærið og minna á, að þær verði sendar hið fyrsta.“ „Hafið þið leitað aðstoðar um starfstilhögun og eru einhverjir sérstakir, sem þið vilduð geta hér?“ „Ólafur Þ. Kristjánsson, skólastjóri Flensborgarskólans í Hafn- arfirði, hefir verið okkur til ómetanlegrar hjálpar, en hann er sem kunnugt er ritstjóri Kennaratals á íslandi og manna fróð- astur um þessi efni. Til gamans er rétt að geta þess, að Hjúkrunarkvennatal á Is- landi er fyrsta hjúkrunarkvennatal á Norðurlöndum." Nefndarkonum kemur öllum saman um, að þrátt fyrir allt hafi verið mjög skemmtilegt að starfa í hjúkrunarkvennatalsnefnd, enda virðast þær vera einstaklega samstilltur hópur, sem reyndar er skilyrði fyrir góðri samvinnu. Vafalaust hefir engin nefnd innan hjúkrunarfélagsins unnið öllu meir en þessi hópur, ekki einu sinni ritnefndin!! Eiga þær miklar þakkir skilið. E. P. M. Vprðlaunaufhending. Á félagsfundi HFl, 18. marz 1968 veitti formaðurinn, María Pétursdótt- ir, Sigþrúði Ingimundardóttur verð- laun fyrir góða kunnáttu í hjúkrunar- sögu. Gert er ráð fyrir, að framvegis verði sams konar verðlaun veitt. Slíkt hefir stjórn HFI samþykkt fyrir all- löngu. Hjúkrunarsagan veitir innsýn í for- tíð, samtið og jafnvel framtíð, upp- lýsingar um hjúkrunarfélagið frá fyrstu tíð, hvað gera þarf, hvers vænta má, og um félagsstarfsemina yfirleitt. Það er því æskilegt, að HFl hvetji hjúkrunarnema til að afla sér sem beztrar þekkingar á þessari fræðigrein. Verðlaunin voru að þessu sinni silf- urpappírshnífurinn sem myndin sýnir. Gullsmiður: Einar Esrason. Leturgraf- ari: Björn Halldórsson. TÍMAUIT HJÚKKUNAUFÉLAGS ÍSLANDS 29

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.