Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Page 9

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Page 9
eru) settar á sinn stað. Hakan bundin upp. Merkimiði með nafni hins látna, fæðingardegi og ári, dán- arstund, nafni deildar og sjúkra- húss er bundinn við stórutá hins látna, líklakinu sveipað um hinn látna og annar merkimiði festur í það til fóta. Líkaminn er lagð- ur í hreint rúm og yfirlak breitt yfir, og á að liggja í dánarher- berginu í 6 klst. Síðan er hann fluttur burt. Deildarhjúkrunar- konan sér um að flutningurinn fari virðulega fram og séð sé um að sjúklingar séu ekki á ganginum á meðan. Vill hinn deyjandi í raun og veru vita sannleikann? Hve mikið á læknirinn að segja sjúklingnum um ástand hans? Hve mikið af sannleikanum þolir hann að heyra? Þessu síðasta er ekki hægt að svara einhlítt, var almennt álit- ið á ráðstefnunni. Margt fólk byggir sér eins konar varnarvegg gegn dauðan- um, og hann ætti læknirinn ekki rífa niður. Reynslan sýnir aö: Trúaðir þola sannleikann betur en þeir sem obki eru trúaðir. 1 ^bik þekkir yfirleitt 1 . hins eðlilega dauða og eohs hans. Áður dó fólk heima umkringt sinum nánustu, sem fylgdust með dauðastríðinu frá upphafi 1 enda. í dag deyr það á sjúkra- lusum, fahð sínum nánustu »Jak við skóg af tækjum“ eins °o einhver hefur komizt að orði. 1 dag forðast flestir að tala v dauðann. Það sem maður þekkir ekki, óttast maður. Hið oþekkta skapar ótta og óróa. Hvernig á að varna ótta við dauðann hjá hinum fullorðna uutímamanni ? Með fræðslu á unga aldri, elur Helmer Niklasson hér- aðslæknir í Lundi. Hann hefur borið fram tillögu til fræðslu- ráðsins um áð innleiða fræðslu í dauðaþekkingu (dödskunnskap) í námsskrána. „Objektiv fræðsla um dauðann sem eðlilegan endi lífsins er nauðsynleg í nútíma skólakerfi," heldur hann fram. Og því ekki það? Þegar barn er frætt um upphaf lífsins, ber því einnig að fá að vita eitthvað um endinn. En hvernig á að meðhöndla óttann hjá hinum devjandi? Á sjúkl. að fá að vita að endirinn er nærri? Hve mikið á læknirinn að segja? Þessar spurningar voru auðvitað mikið ræddar. „Ekkert einhh'tt svar er til“, sagði nrófessor Adams-Ray. ..Stundum má minnast á ástandið, stundum ekki. Það er ekki víst að sjúklingur, sem spyr hvort hann muni bráðlega deyja. óski í raun og veru að vita blákaldan sannleikann. Oftast meinar hann sennilega fremur: „Batnar mér?“.“ Frk. Ek sagði að það væri á- berandi hve oft læknirinn léti hjúkrunarkonuna um að sefa óttann og óróann hiá hinum dauðvona. þótt honum bæri auð- vitað að vera hjá sjúkl. til hins síðasta til að róa og sefa og til að draga úr sársauka. Próf. Adams-Ray var bessu fullkom- lega sammála. Sjúkl. lítur á nærveru læknisins sem eins kon- ar tr.vggingu fyrir áð öll von sé enn ekki úti. Hætti læknirinn að koma til sjúklingsins, hverfur vonin um bata hjá honum. Læknir þarf einnig að vera ná- lægur til þess að sjá um að sjúkl. fái nægilegt af de.vfandi lvfjum. Amerísk rannsókn, sem ekki var vitnað í á ráðstefnu þessari, en fellur vel inn í þetta sam- hengi, sýnir, að 69—90% af hópi sálfræðinga álitu það ó- heppilegt að segja sjúklingi að hann myndi deyja bráðlega. En 77—89% af sjúklingum, sem spurðir voru álitu að þeir ættu að fá að vita sannleikann. Ein af ástæðunum var: „Ég vil ekki að rétturinn til þeirrar reynslu að vita að ég eigi að deyja sé frá mér tekinn.“ Það minnir á það sem annar sjúklingur — amerísk kona; frægur rithöfundur, sagði, þeg- ar læknirinn, vegna eindreginna óska hennar sagði henni, að hún gengi með ólæknandi sjúkdóm. „Þetta verður þýðingarmikill viðburður. Maður deyr aðeins einu sinni, og það er reynsla, sem ég vil ekki missa af. Gefið mér ekki of stóra skammta af deyfilyfjum nú, bíðið méð að gefa mér þau þar til stundin kemur.“ Farið var eftir ósk hennar (en þetta birtist í stóru amer- isku læknatímai-iti), og hún mætti dauðanum án ótta, hún tileinkaði sér allt innihald þessa síðasta kapítula lífsins. Trúaöir þola mest. Samkvæmt reynslu Back- manns safnaðarformanns, þola hinir trúuðu alltaf betur að heyra sannleikann en sá, sem ekki á trúarsannfæringu. Sá trúaði hefur meiri andlegan við- námsþrótt. Þetta er góður leið- arvísir, líka fyrir sjúkrahúss- prestinn, sem á leið sinni um sjúki'ahúsið hefur meðal annars þáð verkefni að hafa næmt eyra fyrir hinar ósögðu óskir hjá sjúklingunum. Það kann einnig að vera vandamál fyrir hann að skera úr um hversu mikið af sannleikanum sjúklingur þolir. Undirbúningur sá, sem áður tíðkaðist, með sakramentunum, er nú orðinn sjaldgæfur, jafn- framt því sem dauðinn liefur flutt frá heimilunum og yfir til sjúkrahúsanna. En sjúkrahúspresta höfum við jú (hér á landi er aðeins einn sem starfar sem slíkur ein- göngu, séra Magnús Guðmunds- son fyrrv. prófastur í Ólafsvík. (Þýð.)). Það á alltaf að spyrja hinn dauðvona, hvort hann óski Framhald á bls. ý.2 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 33

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.