Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Page 26

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1968, Page 26
Utgáfu- og kynningarnefnd SSN Árið 1955 var stofnuð út- breiðslunefnd SSN — SSN Pub- lic Relation Committee •— enda náði þá hugtakið „Public Rela- tion“, eða kynningar- og út- breiðslustarfsemi, til flestra sviða þjóðlífs. Nefndina skipuðu ritstjórar norrænu hj úkrunartímaritanna og tóku sér fyrir hendur að efla norræna hyggju, útbreiðslu og kynningarstarf innan vébanda SSN. Viðfangsefnið var og er þess eðlis, að stöðugrar elju er þörf, og verkið vinnst ekki allt í einum áfanga. Hin einstöku verkefni eru breytileg, en mark- miðið helzt óbreytt og þar með tilgangur nefndarinnar. I upphafi hét nefndin út- breiðslunefnd en nú útgáfu- og kynningarnefnd, og hæfir síð- ari nafngiftin tilganginum bet- ur. Fyrsti formaður nefndarinn- ar var Vera Brock, ritstjóri danska hj úkrunartímaritsins, en núverandi formaður er Mara- jatta Katajamáki, sem jafn- framt er aðalritstjóri málgagns finnskra hjúkrunarkvenna. Meginviðfangsefni umræddr- ar nefndar snýr að fulltrúamót- unum annað hvort ár. En kynn- ingarstarfsemi nefndarinnar hér mótast einkum af því, hvort landsnefndir þær, er mótin ann- ast, óska íhlutunar og aðgerða nefndarinnar á sviði útgáfu- og kynningarstarfs. Mikilvægt hefur verið, að í nefndinni hafa átt sæti ritstjór- ar hjúkrunarblaðanna, en þeir hafa átt þess kost í störfum sín- um að koma á framfæri nor- rænni samhyggð, jafnframt því að skiptast innbyrðis á upplýs- ingum af starfsvettvangi. Góð reynsla hefur skapað það sam- dóma álit, að framvegis sem hingað til verði nefndin skipuð ritstj órum tímarita þeirra hj úkr- unarfélaga, sem aðild eiga að SSN. Nú á byrjuðum öðrum ára- tug liggur fyrir að meta er- indi og erfiði nefndarinnar og móta sameiginlegt upplýsinga- starf á komandi tímum. Kemur þar til fréttaþjónusta milli land- anna, samtímis birting frétta- greina í öllum norrænu hjúkr- unartímaritunum, og kynnis- ferðir til þeirra landa og staða, þar sem nýjunga gætir. Einn- ig má geta kynnisferðar fyrir rúmlega ári síðan. Var sú ferð skipulögð af þáverandi for- manni nefndarinnar og reyndist bæði ánægjuleg og fróðleg nefndarmönnum og leiddi síð- ast en ekki sízt til athyglis- verðra skrifa. Nefnd sú, er hefur með hönd- um endurskoðun starfshátta SSN, hefur nýlega látið frá sér fara tillögu um heildar- skipan samtakanna. Ekki ligg- ur enn fyrir á hvern hátt sú skipan máía, sem þar er gert ráð fyrir, hafi áhrif á framtíðar- störf og tilveru útgáfu og kynn- Marajatta Katajaniáki ingarnefndarinnar. Til mála hefur jafnvel komið að leggja hana niður í núverandi mynd, en efna í þess .stað til reglubund- inna ritstjórafunda norrænna h j úkrunartímarita. Hvað sem öðru líður þá gegna tímarit hjúkrunarfélaganna veigamiklu hlutverki til efling- ar norrænum anda og sam- skiptum frændþjóðanna á sviði hjúkrunarmála. Aukin víðsýni og þekking á hinum faglegu málefnum á Norðurlöndum kemur í veg fyr- ir einstrengingshátt og leiðir til framsýni og frekari kynna af öðrum þjóðum. Aldu Halldórsdóttir þýddi. 50 TÍMAIUT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.