Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Side 4

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Side 4
Nóttin var su Nóttin var sú ágæt ein, í allri veröld ljósið skein, það er nú heimsins þrautar mein að þekkja hann ei sem bæri. Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. í Betlehem var það barnið fætt, sem bezt hefur andar sárin grætt, svo hafa englar um það rætt sem endurlausnarinn væri. Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. Fjármenn hrepptu fögnuð þann, þeir fundu bæði guð og mann, í lágan stall var lagður hann, þó lausnarinn heimsins væri. með vísnasöng ég vögguna þína hræri. Lofið og dýrð á himnum hátt honum með englum syngjum þrátt, friður á jörðu og fengin sátt, fagni því menn sem bæri. Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. Þér gjöri’ ég ei rúm með grjót né tré, gjarnan læt ég hitt í té, vil ég mitt hjarta vaggan sé, vertu nú hér, minn kæri. Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. Umbúð verður engin hér, önnur en sú þú færðir mér, hreina trúna að höfði þér fyrir hægan koddan færi. Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. Á þig breiðist elskan sæt, af öllum huga’ ég syndir græt fyrir iðran verður hún mjúk og mæt, miður en þér þó bæri. Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. Einar SigurSsson. 80 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉI.AGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.