Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Page 6
Úr
dagsins
önn
Ingibjörg Gunnarsdóttir:
Störfin á skrifstofu HFÍ
Starfið á skrifstofunni má segja að sé þríþætt. Það er gjald-
kerastarfið og innheimta félagsgjalda, bréfaskriftir, og upplýs-
ingar ýmiss konar varðandi félags-, launa- og kjaramál hjúkrunar-
félagsins.
Á síðasta aðalfundi félagsins var ákveðið að skrifstofan tæki
að sér gjaldkerastörfin, sem áður höfðu verið í höndum gjaldkera
í stjórn félagsins. Þá var einnig ákveðið að ráða aðra stúlku á skrif-
stofuna í hálfs dags starf, en sl. þrjú ár hefur félagið haft opna
skrifstofu hálfan daginn og hjúkrunarkona unnið skrifstofustörf-
in. Með tilkomu innheimtu félagsgjalda og öðrum starfssviðum
gjaldkera var náttúrlega óhjákvæmilegt að bæta við starfskrafti.
Ég var fyrst og fremst ráðin til þessara starfa. Þá var félagsgjald-
ið hækkað talsvert eins og öllum er kunnugt. Borgarskrifstofurnar
og Skrifstofa ríkisspítalanna hafa verið okkurmjögvinsamlegarog
séð um innheimtu á félagsgjöldum hjúkrunarkvenna, sem vinna á
þeirra stofnunum hér í Reykjavík, en við fengum unglingsstúlku
til að sækja gjaldið til þeirra hjúkrunarkvenna, sem ekki eru starf-
andi. Verð ég að segja að það hefur gengið vonum framar með til-
liti til hinnar miklu hækkunar. Ég get þó ekki látið vera að beina
þeim óskum mínum til þeirra félaga, sem ekki hefur náðst í, að
hafa samband við okkur á skrifstofunni.
Já, það er margt fleira sem hér fer fram heldur en að telja
peninga. Alltaf fer nokkur hópur hjúkrunarkvenna til vinnu er-
lendis, aðallega til Norðurlandanna, og höfum við alla milligöngu
um ráðningu þeirra, sendum umsóknir og eru talsverðar bréfa-
skriftir í sambandi við það. Þá er eðlilegt að félagsmálastai’fið
krefjist nokkurs tíma. Samvinna hjúkrunarkvenna á Norðurlönd-
um og Alþjóðasamband hjúkrunarkvenna hafa töluvert samstarf
og bréfaviðskipti, og fylgjast vel hvort með annars starfi.
Þá er kannske eftir að telja það verkið, sem oft tekur mikinn
tíma, en það er símaþjónustan. Það kemur fyrir, og oftar en hitt,
að hér er talað stanzlaust í símann allan skrifstofutímann. Það er
talsvert leitað hingað vegna launa- og kjaramála og veitum við
náttúrlega allar upplýsingar og aðstoð, sem er á okkar valdi.
Nú er í fullum gangi undirbúningur undir Norðurlandamót
hjúkrunarkvenna, sem halda á hér árið 1970 og hér liggja frammi
umsóknareyðublöð fyrir þá félaga, sem ætla að fara á Alþjóða-
mótið í Montreal á næsta ári. Það eru að vísu starfandi nefndir að
hverju málefni, en á vissan hátt fara verkefnin fram á vegum
skrifstofunnar.
82 TÍMARIT IIJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS