Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Side 8
Fulltrúafundur SSN i Helsingjaeyri
dagana 18. —20. september 1968
Fulltrúafundur SSN var hald-
inn í Helsingjaeyri, Danmörku,
dagana 18.—20. sept. 1968. Frá
íslandi sóttu fundinn þærMaría
Pétursdóttir, form. H.F.I.,
María Finnsdóttir, Elín Eggerz-
Stefánsson, Vigdís Magnúsdótt-
ir og Elísabeth P. Malmberg.
Fundurinn var haldinn í
reglulegu „lúxusumhverfi,"
nefnilega Hotel Hamlet í
Helsingjaeyri, örstutt frá Krón-
borgarkastala.
Mjög þægilegt þótti okkur að
hafa fundarsal og vistarverur á
sama stað.
Móttaka Dansk Sygeplejerád
var til fyrirmyndar og hin
danska „hygge“ var allsstaðar
ríkjandi.
Til Helsingjaeyrar var komið
þriðjudag 17. sept. kl. 19.00 og
vannst rétt tími til að þvo af sér
ferðarykið þegar sezt var að
geysimiklu veizluborði, sem
skreytt var fagurlega blóma-
lengjum í fánalitunum. Undir
hverjum diski var handsaumuð
bakkaservietta með blómum og
upphafsstöfum SSN. Var þetta
gjöf til allra fulltrúanna frá
Dansk Sygeplejarád, sem þar
höfðu lagt mörg „sporin“ að
verki. Formaður Dansk Syge-
plejerád, Kirsten Stallknecht,
bauð fulltrúa velkomna með
nokkrum velvöldum orðum.
Okkur Isiendingum var dreift
eins langt hvorri frá annarri og
unnt var, svo ekki var annað að
gera en rifja upp sænskuna,
norskuna og dönskuna.
Margt var spjallað og spurt og
mikið borðað, enda ekki annað
hægt. Allir virtust velupplagðir
og fullir starfsáhuga.
Miðvikudag 18. sept. kl. 9.30
setti formaður SSN, Aagot
Lindström, fundinn, bauð full-
trúa velkomna og stýrði fundi
af miklum skörungsskap.
Á dagskrá voru 40 mál til um-
ræðu og verður of langt mál að
gera grein fyrir þeim öllum hér,
en aðeins drepið á það helzta.
Það mál sem lengstan tíma
tók og mest var rætt var tví-
mælalaust endurskipulag SSN,
en sérstök nefnd hefir unnið að
breytingartillögum þeim, sem
lagðar voru fram á fundinum.
Nefnd þessi er skipuð einum
fulltrúa frá hverju landi og er
María Pétursdóttir fulltrúi okk-
ar (sjá mynd á bls. 86).
Hvert félag lagði síðan fram
athugasemdir sínar varðandi
breytingatillögurnar og talaði
þar Elín Eggerz-Stefánsson fyr-
ir hönd H.F.Í.
Þar sem mál þetta er skammt
á veg komið er ekki tímabært að
gera grein fyrir því enn, en
nefndin mun starfa áfram, og
taka til athugunar nýjar tillög-
ur, er fram komu á fundinum.
Verður endurskipulag SSN næst
tekið fyrir á fulltrúafundi SSN
1970 í Reykjavík.
Hinar ýmsu nefndir gerðu
íslenzku
fulltrúamir.
F. v.: María Pétursdóttir, María
Finnsdóttir, Elín Eggerz-Stefánsson,
Vigdís Magnúsdóttir, Elísabet P.
Malmberg.
84 TÍMARIT H.IÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS