Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Qupperneq 9
Frá fundinum í Helsingaeyri.
grein fyrir starfsemi sinni síð-
an síðasti fulltrúafundur var
haldinn.
I greinargerð frá launa- og
kjaramálanefnd SSN kom m.a.
fram að nokkrar úrbætur hafa
átt sér stað til handa þeim lægst
launuðu. Hins vegar skortir að
nægilegt tillit sé tekiðtilsundur-
greiningar eftir starfsaðstöðu,
sérhæfniogmenntunar. Uppbæt-
ur vegna óheppilegs vinnutíma
hafa aukist, en þó ekki svo að
sanngjarnt megi teljast. Nefnd-
in álítur, að þar sem hjúkrunar-
konur leita fremur til annarar
atvinnu en hjúkrunar sé orsök-
in oftast sú hversu vinnutími
við hjúkrunarstörf er óhentug-
ur. Er þörf sérstakra athugana
á þessu sviði.
Á fundinum var lögð rík
áherzla á nauðsyn góðrar sam-
vinnu milli þeirra heilbrigðis-
starfsmanna er vinna innan
sj úkrastofnananna annarsvegar
og þeirra, er vinna utan þeirra
hins vegar, þannig að heilsu-
gæzla einstaklingsins verði órof-
in og vel viðunandi.
Einnig var lögð áherzla á
mikilvægi þess að hjúkrunar-
konur verði virkir þátttakend-
ur á sviði rannsókna í þágu heil-
brigðismála.
Urðu um öll þessi mál lífleg-
ar umræður og var ánægjulegt
að heyra skoðanir þessarra
merku kvenna.
Auðheyrt var að hjúkr-
unarkonur á Norðurlöndum létu
hagsmunamál sín mjög til sín
taka, enda skilyrði fyrir góðri
samvinnu og góðum árangri.
TJtgáfu-og kynningarnefndSSN
eða Pressekommiteen, hélt fund
utan dagskrár. Nefndina skipa
ritstjórar norrænu hjúkrunar-
tímaritanna og er markmið
hennar að sjálfsögðu útbreiðsla
og kynningarstarf innan vé-
banda SSN.
Lögð var áherzla á að auka .
bæri fréttasendingar frá hinum
norrænu h j úkrunarfélögum milli
blaðanna þannig að alltaf væri
eitthvað nýtt frá hverju landi í
hverju blaði.
Til mála hefir komið að leggja
nefnd þessa niður í núverandi
mynd, en efna í þess stað til
reglubundinna ritstjórafunda
norrænna h j úkrunartímarita. Er
þetta einn liður í endurskipu-
lagi SSN. Formaður í Presse-
kommiteen er ritstjóri finnska
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 85