Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Blaðsíða 10

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Blaðsíða 10
hj úkrunarblaðsins, Marajatta Katajamáki. Gott var að hvíla lúin bein og' aðallega heilann að afloknum vinnudegi. Var ýmislegt til afþreyingar og helst í frásögu færandi ferð um Norður-Sjáland næstsíðasta mótsdaginn. — Hjúkrunarfé- lagsdeildin í Frederiksborgar- amti var gestgjafi okkar í þess- ari ferð. Veðrið var eins fagurt og bezt var á kosið og Norður-Sjáland skartaði sínum fegurstu haust- litum þennan dag. Var móttaka með glæsilegum veitingum á heilsuhælinu Arre- södal. sem stendur við eitt stærsta stöðuvatn Sjálands, Arresö. Þarna er aðallega endurhæfingarstöð fyrir post- operativa sjúklinga frá sjúkra- húsum Kaupmannahafnar. Nokkrir sjúklinganna sýndu smá skopþátt, sem átti að lýsa hinum óstýrilátu unglingum í dag. Varð ekki betur séð en leik- arar þessir væru á batavegi!! AÍlir skemmtu sér konunglega og var ánægjulegt að sjá að full- trúar SSN gátu gleymt fundar- störfum. En skemmtunin í Arresödal var aðeins byrjunin, því geysi- legur kvöldverður beið okkai' í Hilleröd. Enn var þríréttað veizluborð þar sem m.a. logandi ábætir var borinn fram í myrkri. Sannað- ist enn að Danir eru einsdæmi hvað matargerð og framreiðslu snertir. Rektor Niels Holm skemmti okkur með norrænum ljóðasöng og söng m. a. „Sólskríkjuna“ okkar. Mér til mikillar undrunar voru allar hressar síðasta móts- daginn, og virtist enginn hafa látið ný áhrif og veizluhöld á sig fá. Var nú liðið að fundarslitum, en eftir var formannskosning SSN. Nýr formaður var kjörinn Ritntjórar hjúkrunartímarita Norðurlanda. F.v.: Elisabetli Engesland, Nor- egur, Elisabeth P. Malmberg, ísland, Marjatta Katajamáki, Finnland, Vera Brock, Danmörk, Susanna Stubbendorff, Svíþjóð. Endurskipu- lagsnefnd SSN. F. v.: Annemarie van Bockliofen, Finnland, Idunn Heldal Haugen, Noregur, Gunnvor Berg- kvist, Svíþjóð, Ingrid Nielsen, Danmörk, María Péturs- dóttir, ísland. 86 TÍMARIT HJÚKRUNAHFÉLAGS ÍSþANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.