Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Qupperneq 12

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Qupperneq 12
Elín E(/(jerz-Stefánsson: II. heilbrigðisráðstefna Læknafélags íslands FYRRI HLUTI í fyrsta tölublaði rits þessa á yfirstandandi ári var sagt frá heilbrigðismálaráðstefnu Lækna- félags íslands, sem haldin var í nóvember 1967 og þess þá getið, að ætlunin væri að halda fleiri ráðstefnur af svipuðu tagi. Að tæpu ári liðnu, þ.e. dagana 4.-5. október s.l., var boðað til II. heilbrigðisráðstefnu félagsins í sama mund og minnst var hálfr- ar aldar afmælis samtakanna. Þótt ekki væri til annars en geta verðskuldaðs þakklætis til forvígismanna ráðstefnu þess- arar fyrir framtak þeirra, þá finnst mér ærin ástæða til að skrifa hér nokkur orð um at- burð þennan. Efni það, sem valið var til meðferðar, nefndist „Læknis- þjónusta í dreifbýli og þéttbýli", en heiti erinda og flytjendur þeirra voru sem hér segir: 1. Rekstur lækningastöðva í þéttbýli: örn Bjamason.hér- aðslæknir í Vestmannaeyjum. 2. Rekstur lækningastöðva í dreifbýli: Gísli Auðunsson, héraðslæknir á Húsavík. 3. Starf héraðshjúkrunarkonu: a) Ólafía Sveinsdóttir, hjúkrunarkona í Grindavík. b) Auður Angantýsdóttir, hj úkrunarkona, áður á Flateyri. 4. Fyrirhugaðar nýjungar í heimilislæknisþ j ónustunni: Dr. Jón Sigurðsson, borgar- læknir Reykjavíkur. 5. Byggðaþróun og áætlanir um byggðakjarna: Lárus Jóns- son, viðskiptafræðingur. 6. Sérmenntun heimilislækna (Postgi’aduate training of general practioners): Dr. James Cameron, fulltrúi frá The British Medical Associ- ation. 7. Fjármögun heilbrigðismála: Páll Sigurðsson, trygginga- yfirlæknir. 8. Hjúkrun í heimahúsum: Sól- veig Jóhannsdóttir, hjúkr- unarkennari við Hjúkrunar- skóla Islands. 9. Framhaldsmenntun heimilis- lækna og sérfræðiviðurkenn- ing þeirra: ólafur Mixa, læknir. Þegar ég sat ráðstefnuna, var mér ekki í huga að skrifa skipu- lega frásögn né útdrátt erinda eða umræðna, er þar fóru fram, til fróðleiks öðrum, sem ekki gafst kostur á að vera viðstadd- ir. Nú,þegar nokkuð er um liðið, skortir mig minni og gögn til að gera þessu góð skil, en samt vil ég reyna að greina ögn frá því, sem einkum vakti athygli mína og umhugsun, í þeirri von að sá þráður samhugar og samvinnu, sem reynt var að spinna, megi síður slitna, þar sem hjúkrunar- konur fá að gert, þótt jafnframt sé mér engin launung á óánægju minni með nokkur veigamikil atriði, sem fram komu. Vinur er sá er til vamms segir. örn Bjarnason ræddi hóp- starf lækna, er annast heimilis- lækningar, og hafa sameiginlegt luúsnæði fyrir starfsemi sína í lækningamiðstöð og stj órna þeirri stofnun sjálfir. En lækn- ingar eru aðeins einn þáttur læknisþjónustunnar, sagði hann. Hópsamvinnan þarf að ná til allrar almennrar læknisþjón- ustu, sem veitt er utan spítala. Fyrir slíka starfsemi þarf að koma upp sérstökum stofnunum, heilsugæzlustöðvum, er sameina undir einu þaki læknamiðstöð, heilsuverndarstöð og aðstöðu til að taka röntgenmyndir, sinna smærri slysum og gera minni háttar aðgerðir. Frá fyrirkomulagi læknamið- stöðva greindi Örn nánar. Hann kvað lækna sömu stöðvar hafa samráð sín á milli, halda sam- eiginlega spjaldskrá með öllum upplýsingum um sjúklingahóp- inn, en sjúklingi er heimilt að leita til þess læknis, sem hann óskar, en nokkur starfsskipting skal þó verða eftir sérfræði- þekkingu læknanna. Önnur að- stoð skal og vera sem hér segir: 1. Einkaritari sér um að vélrita öll bréf, vottorð og skýrslur og að spjaldskrá sé í röð og reglu og ritarinn er tengilið- ur milli aðstoðarf ólks og lækn- anna innbyrðis og sér um skipulagningu hins daglega starfs. 2. Sé vinnuálag ekki mikið, get- ur ritarinn annazt móttöku sjúklinga og símavörzlu, ella verður að ráða annan til þeirra starfa. 3. Hj úkrunarkonur aðstoða læknana við störf þeirra, svo sem við slys og smærri að- gerðir og við skoðanir, sem ekki verða framkvæmdar án hjálpar eða nærveru hjúkr- unarkonu. Annars vinnur 88 TÍMAKIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.