Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Síða 16

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Síða 16
Landsspítalinn opnar barnaheimili Fyrir stuttu opnaði Lands- spítalinn nýtt barnaheimili í Engihlíð 6. Okkur langaði að sjá, hvernig börnin og starfs- fólkið yndi sér á nýja heimilinu, svo að við fórum og hittum að máli Þuríði Sigurðardóttur, ein- staklega elskulega stúlku. Hún hefur starfað við Landsspítala- deildina í Grænuborg frá upp- hafi eða í tvö og hálft ár, og nú er hún forstöðukona nýja barna- heimilisins. Við spyrjum hana, hvað marg- ar stúlkur hugsi um börnin. „Við verðum fimm, þrjár starfsstúlkur og tvær fóstrur, en reyndar verðum við ekki nema fjórar í einu. Barnaheim- ilið er opið frá kl. 7.15 til 19.15, ÉÞ..3 1 leikstofu. en lokað frá hádegi á laugard. og til mánudags." „Og hvernig heldurðu, að að- staðan verði?“ „Það er ekki búið að fullgera nema lítinn hluta af húsnæðinu, en þegar allt er tilbúið, höfum við 10 herbergi til umráða. Á hæðinni eru eldhús og fjögur herbergi. í tveim stærri stofun- um verða 12 börn á aldrinum tveggja til þriggja ára, en í tveim minni stofunum verða 8 börn á aldrinum 4-6 ára í hvorri stofu. í kjallaranum eru smíða- herbergi og föndurherbergi, sem eldri börnin hafa aðgang að. Þar eru einnig tvö fataherbergi og baðherbergi, og er ætlunin að börnin fái að sigla og leika sér við baðkerið, sérstaklega þegar vont er veður. Hér í garðinum hefur verið komið fyrir leiktækjum. Þar er nokkuð þröngt fyrir þetta mörg börn, en það vill svo vel til, að opinn leikvöllur er hinum megin við girðinguna og hann ætlum við að nota og verðum við þar hjá börnunum. Hérna á næstu grösum er svo Miklatún, þangað verður gaman að fara í göngu- ferðir í góðu veðri. Matinn fá- um við allan frá Landsspítalan- um og er hann sérstaklega góð- ur. Börnin fá morgunmat, liá- degismat og eftirmiðdagsdrykk. Auk þess fá þau ávexti, þegar þau vakna, — öll eru þau látin leggja sig, ef mæðurnar hafa ekkert á móti því, — svo fá þau, sem ekki eru farin klukkan 5, ávexti. 92 TÍMAKIT IIJÚKKUNAKFÉI.AGS ÍSLANDS Alltaf eru pollarnir skemmtilegir. Ég held, að hér vérði mjög skemmtilegt, þegar allt er kom- ið í lag. Húsnæðið er ágætt og auk þess er alltaf liægt að gera meira fyrir hvert barn, þegar þau eru ekki fleiri en hér. Það er líka skemmtilegt fyrir þau að eiga það sameiginlegt, að mæð- ur þeirra allra vinna á sama stað.“ „á hvaða aldri eru börnin?“ „Þau eru yngst tekin tveggja ára og mega vera til sex ára. Hér er engin aðstaða til að hafa yngri börn.“ „Eru börnin hér aðeins á með- an mæðurnar eru að vinna?“ „Já. Við göngurn mjög ríkt eftir því, að þær taki þau strax eftir vinnu og komi ekki með þau, þegar þær eiga frí. Þótt við

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.