Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Page 19

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Page 19
f tilefni af fyrirhuguðu alþjóðamóti hjúkrunarkvenna í Montreal í Kanaóa á næsta ári birtist hér stutt frásögn af starfi og þróun félagssamtaka hjúkr- unarkvenna þar í landi. Þetta undruðust hinir nýju ensku ráðamenn. Svo endaði sjö ára stríðið. Frakkar létu af hendi Norður-Ameríku til Eng- kinds að undanskyldu St. Pierre og Miquelon og hin engilsax- nesku stjórnarlög gengu í gildi í Kanada 1867. Þannig voru heilbrigðismálin lögð undir þeirra dómsvald um allt landið. Það var eðlileg ráðstöfun á þess- um árum þegar samgöngur voru strjálar og erfiðar milli hinna dreifu héraða að hvert hérað hafði sín hjúkrunarsamtök. — Þessi dreifðu samtök voru síðar satneinuð í 10 héruðum í eitt fé- Þig, Canadian Nurses. INNFLYTJENDUM FJÖLGAR. Innflytjendur byrjuðu smám saman að streyma til landsins eftir sjö ára stríðið. Margir Bandaríkjamenn fluttu til Kan- uda eftir borgarastyrjöldina. Flestir innflytjendur komu þar á árunum kringum 1880, en straumurinn hélt áfram alla 19. öldina. Hópar af innflytjendum dreifðust yfir landið. Þörfin fyr- h' sjúkrahús varð of mikil til að kirkjan og nunnurnar gætuann- uð henni. Byrjað var að reisa spítala sem ekki voru reknir í anda kirkjunnar. Alls staðar stríddu hjúkrunarkonur móti farsóttum vanbúnar af áhöldum °8' lyfjum. Hjúkrunarkonurnar á þessum nýju sjúkrahúsum höfðu ekki reynslu nunnanna í sjúkdómafræði og siðfræði, var því brýn nauðsyn að mennta þær. NIGIJTINGALE- ÁHRIFIN. Um þetta leyti gætti áhrifa frá Florence Nightingale í Evr- ópu. Hennar áhrifa hafði líka gætt í starfi hjúkrunarkvenna í Kanada, en starf í hennar anda liófst þó í alvöru eftir að Bellevue Training hjúkrunar- kvennaskólinn í New York tók upp hennar kerfi. Skólinn varð fyrirmynd annarra skóla í U.S.A. Þar sem hjúkrunarskólar í Kanada voru ekki fullkomnir á þessum árum, sóttu margar hj úkrunarkonur þaðan menntun sína til New York og fluttu áhrifin með sér heim. Fyrsti kanadiski h j úkrunarkvennaskól- inn var stofnaður af Dr. Mack á General Marine Hospital í Suður Ontario 1874. Honum var stjórnað af 2 hjúkrunarkonum sem höfðu lært af Florence Nightingale. Á næstu 10 árum voru allmargir skólar stofnaðir í landinu og kenndu allir eftir Florence Nightingale- kerfinu. SAMANSAFN AF HUGMYNDUM. Á þennan hátt urðu kanadisk- ar hjúkrunarkonur fyrir áhrif- um frá Frakklandi, Englandi og U.S.A. og er það ef til vill skýr- ingin á áhuga kanadiskra hjúkr- unarkvenna á alþjóðasamstarfi. Fyrsta sporið að skipulögðum félagsskap hjúkrunarkvenna i Kanada var á þann veg að hjúkrunarkonur og nemar, sem komu frá sama skóla voru sam- an í félagi. Árið 1896 voru þessi félög sameinuð í eitt samband í Bandaríkjunum og Kanada. — Helzta áhugamála þessa sam- bands var að aukametnaðhjúkr- unarkvenna fyrir starfi sínu og menntun stéttarinnar og setja fastar siðareglur. Auk þess bar meðlimum að hjálpa hver öðrum félagslega og á annan hátt. Um þetta leiti var að byrja skipu- lagning á alþjóðlegu samstarfi hjúkrunarkvenna í Englandi. Fengu þær hugmyndir góðar viðtökur í Ameríku og voru mjög í samræmi við áhuga hjúkrunarkvenna í Kanada um alþ j óðasamstarf. ÞÁTTTAKA I ALÞJÓÐASTARFL Mary Agnes Snively, forstöðu- kona við Toronto General Hos- pital, átti frumkvæðið og vam. mest að sameiningu margra fé- laga hjúkrunarkvenna við sjúkrahús og skóla í Kanada í eitt samband. Hinn 15. október 1908 skrifaði Mary Agnes Snively, Mrs Bedford Fenwick, formanni I.C.N. og skýrði frá þróun félagsmála í Kanada og sótti um upptöku í alþjóða- samtökin. Þegar þátttakendur í I.C.N. hittast í Kanada 1969 verða þeir boðnir velkomnir af landsamtökum, sem frá upphafi hafa verið alþjóðleg í hugsjón- um og viðsýn og með stolti geta litið til baka á hlutdeild síns fagra en erfiða lands Kanada í alþjóðasamstarfi hjúkrunar- kvenna. Lausl. þýtt Kristjana Sigurðardóttir. TÍMAKIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSI.ANDS 95

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.