Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Qupperneq 20

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Qupperneq 20
Guörún Marteinsson: Framhaldsnám við Royal College of Nursing, London Námsgrein: Deildarkennsla — clinical instruction Ég hefi verið beðin að skýra svolítið frá framhaldsnámi því, sem ég stundaði s.l. vetur í London. Námskeiðið stóð yfir í 6 mánuði, byrjaði 19. sept. 1967 og iauk í apríl 1968, með skrif- legu prófi, sem tekið var í þrem aðalfögunum. I skólann innrituðust að þessu sinni 280 þátttakendur, en nám- skeiðin eru haldin í ýmsum greinum, t.d. spítalastjórn — administration — (6 mán.), deildarh j úkrunarkonustörf — ward sister’s coui’se — (3 mán), kennaranámskeið — tutors course — (2 ár), rannsóknir á hjúkrunarstörfum — nursing research—og svo námskeið fyr- ir clinical instructors/teachers of pupil nurses, sem ég tók. Er þessi skóli talinn hafa afrekað mikið í þágu hjúkrunai’mála, og er mikils metinn á heimsmæli- kvarða. Kennarar mjög góðir, vel menntaðir og vekja hjá öll- um áhuga og aðdáun. Enda kom í ljós, að þarna var samankom- ið til framhaldsnáms náms- fólk frá 38 löndum. Var mikinn fróðleik að fá og lærdómsríkt að kynnast þarna fólki af mismun- andi hörundslit og trúarbrögð- um, og lærði ég mikið í landa- fræði og sögu með því að starfa og ræða við þetta fólk. Við vor- um 42 í deildarkennslu-nám- skeiðinu, þar af 8 útlendingar og fjórir frá Wales. Mér létti, þegar ég fyrst hitti skólafélaga mína og komst að raun um, að flestir voru á lík- um aldri og ég (ég óttaðist að allir væru miklu yngri). Einn- ig komst ég að raun um, þegar ég fór að kynnast betur, að skólasystkini mín höfðu sömu áhugamál og áttu við marga þá sömu erfiðleika að etja, að meira eða minna leyti eins og við hér heima á Fróni. Sem dæmi má nefna: 1. Mikill skortur á kennurum og hjúkrunarkonum. 2. Mikil löngun til að koma á meiri og betri kennslu í verk- legu námi nemendanna. 3. Erfiðleikar við að samræma bóklega námið í skólanum við verklega námið á sjúkra- húsunum. 4. Skortur á nægilegri sam- vinnu milli skólans annars vegar og spítalans hins veg- ar. 5. Löngun til að veita nemend- um aukna kennslu í sam- ræmi við kröfur nútímans. 6. Sameiginlegt markmið hjá öllum: að bæta með þessari auknu samvinnu og auk- inni kennslu hjúkrun sjúkl- ingsins. Hjálpa nemendum til að fá betri skilning á hjúkrun hvers einstaklings í heild, skilning á allri hans likamlegu og andlegu að- hlynningu. Royal College of Nursing hef- ur nú haft þetta deildarkennslu- námskeið undanfarin 8 ár, og er því vel kunnugt um þessi sam- eiginlegu vandamál. Skólinn vill aðstoða námsfólk skólans við að ráða fram úr þessum örðugleik- um. Þar sem námsfólk á þessu námskeiði var mestmegnis fólk, sem hefur mikla starfsreynslu að baki sér, gátu allir, hver á sinn hátt, lagt til sinn skerf, komið með ýmsar góðar tillögur og þegar allir leggja saman með margar hugmyndir í einn stór- an sjóð, kryfja þær síðan til mergjar, fást oft mörg góð ráð, sem hver og einn getur síðan notfært sér með breytingum í samræmi við sitt heimaland eða aðstæður á hverjum stað. Lærð- ir kennarar eru svo til staðar til að auka þekkingu okkar á ýms- an hátt, þannig að við getum betur hagnýtt okkur þessi fræði og síðan orðið þjóð okkar, skóla og sjúkrahúsum að meira liði. Þær námsgreinar, sem aðal- áherzla var lögð á og hafðar voru sem próffög voru: Uppeldis- og sálarfræði — Educational psychology Eðlilegt samstarf líffæranna og breytingar, sem orsakast af sjúkdómum. — Normal and disordered functions of the body. Kennsla í hjúkrun á deildum. — Ward teaching. Mr. Goodwin var kennari okk- ar í psychology. Hafði hann mjög mikla þekkingu á þessu fagi, sem er án efa mjög erfitt að kenna, á svona stuttu nám- skeiði, þannig að nemendurnir fái einhvern skilning á þessu víðtæka fagi, en með þolinmæði, miklum áhuga og velvilja í okk- ar garð, tókst honum að fá okk- 96 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉI.AGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.