Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Qupperneq 21

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Qupperneq 21
Guðrún Marteinsson. ur lnngflest til að fá áhuga og þá um leið að hafa gagn af þess- um fyrirlestrum. Mr. Goodwin lagði mikla áherzlu á, hve þýð- ingarmikið það er fyrir alla, sem eiga mikil samskipti við meðbræður sína, að geta sem bezt skilið hegðun þeirra, hugs- anir og hátterni. — Pedagogy— kennslufræði — kynnir margar kennsluaðferðir, námstækni, — eykur skilning kennarans á nemendunum, bendir á leiðir til að auka skilning nemendanna á sjúklingunum. Eitt, sem hjálpaði okkur mik- ið í námi okkar, var hið geysi- lega fullkomna fag-bókasafn við The Royal College of Nursing. Það er eitt það auðugasta bóka- safn sinnar tegundar í heimi. Þar er að finna öll tímarit og blöð, sem lúta að hjúkrunarmál- um eða viðkoma lieilsu mann- kynsins á einn eða annan hátt fyrr og síðar. Og er mikil áherzla lögð á að kenna öllu námsfólki við skólann að hag- nýta sér safnið sem bezt. Líffærameinafræði var kennd af tveimur ungum læknum, báð- um með doktorsgráðu í sinni sérgrein, Dr. Barrcough og Dr. Morriston, sérlega færir kenn- arar, hvor á sinn máta, fullir áhuga, mjög skýrir og greinar- góðir. Hlýddum við á fyrirlestra hjá þeim tvisvar í viku, en auk þess fóru þeir með okkur um St. Thomasar sjúkrahúsið annan- hvorn laugardagsmorgun og veittu okkur klinik kennslu. (Þeir skiptu okkur í tvo hópa, og fóru svo hvor með sinn hóp). Var þetta geysilega lærdóms- ríkt. Sjúklingarnir, sem við kynntumst hverju sinni,voru þá með einhverja þá sjúkdóma, sem við vorum þegar búin að kynn- ast áður í fyrirlestrum í skólan- um. Urðu okkur þá miklu ljós- ari öll þau sjúkdómseinkenni, sem koma fram hjá sjúkling- unum. Þetta undirstrikaði hjá okkur nauðsyn þess, hve mikils- vert er að kunna að ,,ob- servera" sjúklinginn á sjúkra- stofunni. Síðan var farið yfir journalinn, — röntgenmyndir skoðaðar, öll rannsóknarblöðin athuguð, hvað væri normalt, hvað óeðlilegt, hvaða þýðingu þessar breytingar hefðu o.s.frv. Að auki fengum við kennslu í líffæra- og lífeðlisfræði, sem nauðsynlegt er að rifja upp, til að geta betur tileinkað sér allt, sem læknarnir kenndu.Við fund- um þá mörg, hve nauðsynlegt er að halda þessu við, ef þekking á að vera fyrir hendi á hinum ýmsu sjúkdómum. Án þeirrar grundvallar þekkingu stendui- hjúkrunarkonan illa að vígi, þeg- ar hún þarf aðaðstoðahinaungu hjúkrunarnema við námið. Var það mikið átak hjá flestum okkar að samræma ,,anatomv“ — „pathology“ — og „physio- logy.“ En þá fyrst öðlast skiln- ingur á góðri hjúkrun á sjúk- lingnum, að hjúkrunarkonan skilji samsetningu líkamans, — hvaða efni eru nauðsynlegí upp- byggingu hinna ýmsu vefja, hvað orsakast vegna skorts á þeim efnum, hvað veldur skort- inum og svona mætti lengi telja. Og þegar farið er að læra þetta svona vel, þá vaknar áhugi hjá nemandanum til að fá að vita ennþá meira. Tilsögn í kennslu var með ýmsum hætti. Mikið var notuð sú aðferð, sem Englendingar nefna „role-acting,“ en það er gert á þann hátt, að einn nem- andi tekur að sér hlutverk kenn- arans — annar hlutverk nem- andans — og þegar kennsla fer fram inn á „deildum" (verklegu kennslustofunni), þá er þriðji nemandinn látinn taka hlutverk sjúklingsins. — Fékk hver sitt verkefni til að undirbúa sig fyr- ir hvert hlutverk. Seinni hluta vetrar var okkur síðan falið að búa sjálf út verkefni, og sjá um að stjórna því alveg. Var okkur skipt í þrjá hópa, og fór liver hópur á „sitt“ sjúkrahús, á hverjum fimmtu- degi eftir hádegi. Var ég svo lánsöm að vera send á mj ög fall- egan, nýjan og fullkominn skóía, sem var tengdur við „The Hospital of Sick Children," Great Ormond St., sem var sér- spítali fyrir börn. Voru verk- legu kennslustofurnar í þessum skóla mjög vel úr garði gerðar, stórar og með nýjustu tækjum. Mættu „leikarar" í búningum — kennari — nemi — sjúkling- ur, og voru þrjú verkefni tekin hverju sinni. Var þetta mjög lærdómsríkt, og lærðu allir að- iljar á þennan háttmeira,þvíað TÍMARIT II.IÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 97

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.