Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Qupperneq 23

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Qupperneq 23
Ný forstöðukona við Landsspítalann yggis. En í sumum tilfellum gæti það aftur á móti kostað líf sjúklingsins, ef ekki er nægileg kunnátta til að stjórna þessum tækjum á réttan hátt. Þetta er aðeins ein hlið á nauðsyn aukinnar þekkingar. 5. Það sameiginlega markmið, að bæta hjúkrun hvers sjúk- lings næst helzt með því að leggja áherzlu á þau atriði, sem áður eru nefnd. Með góðri og aukinni samvinnu, aukinni kennslu og auknum skilningi á vandamálum ná- ungans, trúi ég ekki öðru, en sjúklingurinn hljóti ósjálf- i’átt að njóta góðs af. Að lokum vil ég aðeins leyfa niér að þakka skólastjóra, frk. Þorbjörgu Jónsdóttui', fyrir að hvetja mig til að fara í þetta framhaldsnám. Námið er að vísu kostnaðarsamt, og erfitt að losa sig frá hjúkrunarstörfum eftir 15 ár samfleytt. En það opnast fyrir manni nýr heim- ur, og vildi ég óska, að fleir- uni gæfist þess kostur, og leggðu áherzlu á að halda áfram námi °g bæta við sig á einhvern hátt. Það er með því eina móti, sem við getum veitt góða og örugga hjúkrun á þessum framfaratím- um, þegar allar breytingar eru svo örar og tæknin orðin svo margþætt. Kröfurnar, sem gerð- ai' eru til hj úkrunai'konunnar af samtíðarmönnum — læknum — sjúklingum — nemendum — öllu samstai'fsfólki — fara sí- fellt vaxandi. Við verðum því að hjálpast að; gei’a meiri kröfur til okkar sjálfra, og eins og Ingrid Wyller skólastj. segir einhvers staðar: „Islendingar eiga eins og aðrir við örðugleika að etja, - skilningsleysi - fátækt - , en ef vilj inn er fyrir hendi, eru allir veg- ir færir. Guðrún Marteinsson, hjúkrunai'kennari á sjúkradeildum. Frk. Sigríður Bachmann. Frk. Hólmfríður Stefánsdóttir. N lega lét frk. Sigríður Bachmann af stöi'fum forstöðukonu Landsspít- alans. Sigríður lauk hjúkrunarnámi frá University College Hospital School of Nursing í London árið 1927. Að loknu prófi stundaði hún framhalds- nám í heilsuvernd og kennslu við Bed- ford College of London í eitt ár. Síð- ar kynnti hún sér heilsuverndogrekst- ur hjúkrunarskóla í Bandaríkjunum. Þegai' heim kom starfaði hún í mörg ár fyrir Rauðakross Islands, bæði við hjúkrun og einnig hélt hún námskeið í hjálp í viðlögum og hjúkrun í heima- húsum, í Reykjavík og úti um land. Þar sem þessi námskeið voru mjög vel sótt og víða haldin, þá var þetta ómetanleg kynningarstarf- scmi fyrir hjúkrun í landinu. Árið 1940 varð hún kennari við Hjúkrunarskóia Islands. Eftir átta ára kennslu varð hún skólastjóri skól- ans í tvö ár, en árið 1954 forstöðu- kona Landsspítalans. Þessu erfiða starfi hefur hún gegnt síðan af ein- stökum dugnaði. Sigríður var sæmd Florence Nightin- gale orðunni árið 1957 og riddara- krossi fálkaorðunnar árið 1958. Við forstöðukonustarfinu tók frk. Hólmfríður Stefánsdóttir. Hún lauk námi frá Hjúkrunarskóla Islands árið 1956. Hefur síðan unnið á Lyflæknis- deild Landsspítalans, við Hjúkrunai'- skóla íslands, í Bandaríkjunum og Heilsuhælinu Vífilsstöðum, þar sem hún var forstöðukona um tíma. A Landsspítalanum frá 1966. Hún var skipuð forstöðukona Landsspítalans frá 1. júlí 1967, og stundaði síðan framhaldsnám í spítalastjórn við Edinborgarháskóla í eitt ár. Ritnefndin vill fyrir hönd hjúkr- unarkvenna óska Hólmfríði alls hins bezta í nýja starfinu og þakkar um leið Sigríði Bachmann heilladrjúg störf í þágu hjúkrunarstéttarinnar, Landsspítalans og Hjúkrunarskóla íslands. HJÚKRUNARKONUR ATHUGIÐ! Þæi' hjúkrunarkonur, sem hafa ekki fengið eyðublöð til útfyllingar fyrir væntanlegt Hjúkrunai’kvennatal, eru beðnar að hafa samband við skrifstofu félagsins, Þing- holtsstræti 30, sími 21177, hið allra fyrsta. Hjúkrunai’konur, sem ekki hafa endux-sent eyðublöð sín útfyllt, eða eiga eftir að senda mynd, eru beðnar að gera það nú þegar, því að verið er að ganga frá handi’iti til prentunar. TÍMARIT H.lÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 99

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.