Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Page 24
Dvalarheimiiið Ás heimsótt
Þann 12. október síðastliðinn
fóru nokkrar hjúkrunarkonur í
boði Gísla Sigurbjörnssonar til
Hveragerðis til að skoða dvalar-
heimilið Ás, sem þar er óðum að
auka starfsemi sína.
Fæstar okkar höfðu hugmynd
um fyrirkomulagið á dvalar-
heimili þessu, en það kom í ljós,
að þarna er um 21 hús að ræða,
flest fremur lítil.
Fyrst skoðuðum við nokkur
hús með einstaklingsherbergj-
um. Þar voru íbúarnir ýmist
aldrað fólk eða fólk, sem hafði
verið sent af sjúkrahúsunum til
hressingar.
Ekkert þessara húsa var ný-
byggt, en öll voru þau nýlega
standsett og áttu það sameigin-
legt, að vera sérstaklega vistleg
og umgengnin var alls staðar
með afbrigðum snyrtileg.
Víðast er einn sjúklingur í
hverju herbergi, en sums staðar
tveir. Öll eru þessi herbergi sitt
með hverju móti og hver vist-
maður hefur sína persónulegu
hluti hjá sér.
í hverju húsi er dagstofa og
eldhús með ísskáp og öllu öðru,
sem venjulegu eldhúsi tilheyrir.
Fólkið sér sjálft um morgun-
kaffi, eftirmiðdags- og kvöld-
kaffi og auk þess má það útbúa
hádegis- og kvöldmat, ef það vill
og getur. En þeir, sem vilja,
borða í mötuneyti skammt frá.
Eins er með ræstingu og önn-
ur heimilisstörf. Fólkinu er sagt,
að vel sé þegið, ef það geti tekið
til hjá sér, en þeir, sem ekki
treysta sér til þess, fá aðstoð
eftir þörfum.
Nokkur húsanna eru ætluð
fyrir hjón, og eru tvær íbúðir
í hverju húsi með dagstofu,
svefnherbergi og gestaherbergi.
Tvö hús sáum við nýbyggð og
rúma þau hvort um sig tvenn
hjón. Þær íbúðir hljóta að full-
nægja kröfum jafnvel þeirra
vandlátustu, svo smekklegar og
nýtízkulegar eru þær. Enda fór-
um við flestar að telja árin, sem
við eigum eftir, þangað til við
fáum að setjast þar að.
Einnig skoðuðum við hús, sem
á að vera aðsetur fyrir lækni og
hjúkrunarkonu. Þar er líka hár-
greiðslustofa fyrir visfólkið. —
Þessi hárgreiðslustofa er ó-
venjuleg að því leyti, að ekkert
kostar að fara þar í lagningu.
Að lokum skoðuðum við nokk-
ur gróðurhús af mörgum, sem
eru í tengslum við dvalarheimil-
ið. Þar eru margar nýjungar á
ferðinni.
Á eftir var okkur svo boð-
ið kaffi og bakkelsi í öðru mötu-
neyti heimilisins. Mötuneytinu
hefur verið komið fyrir í húsi
Kristmanns Guðmundssonar,
rithöfundar, og er þar allt ný-
endui’byggt og mjög skemmti-
legt, en það tók einmitt til starfa
daginn áður en við komum.
Á meðan við drukkum kaffið,
sagði Gísli Sigurbjörnsson okk-
ur ýmislegt um starfsemina. —
Þarna er rúm fyrir 82 vistmenn,
en ráðgert er að fjölga þeim.
Mikil áherzla er lögð á, að
fólkið taki einhvern þátt í starf-
seminni, ef það getur og 17 fá
þóknun fyrir störf sín. Þeir
vinna aðallega við gróðurhúsin
og aðstoða við heimilisstörfin
þá, sem ekki geta bjargað sér.
Fljótlega eiga að koma plast-
Þensi liúit tilheyra dvalarheimilinu.
100 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS