Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Qupperneq 25
gróðurhús við hvert hús. Þá
skapast vinna fyrir þá, sem eitt-
hvað geta unnið.
Á það er lögð mikil áherzla, að
allt sé sem heimilislegast, og
hefur það að mínuin dómi tekizt
óti'úlega vel. Styrkir frá ríkinu
eru engir, en daggjaldið er kr.
215.00 og kr. 378.00 fyrir þá,
sem eru á ríkisframfærslu.
Við vorum allar hæstánægðar
með fróðlegan dag, þegar við
héldum h 'im á leið.
EUn Birna Daníelsdóttir.
Gísli Sigurbjömsson ásamt gestunum.
Landsspítalinn opnar
barnaheimili
Framh. af bls. 93
hvort hægt sé að fá hálfa vinnu
eða minna og hvort nokkur
möguleiki sé að fá fastan vinnu-
tíma.
LANDSSPÍTALINN
Ekki væri unnt að reka deild-
ir Landspítalans án giftra
hjúkrunarkvenna, og eru þar
margar hj úkrunarkonur, sem
vinna ýmist hluta úr eða heila
vinnuviku, og hafa gert undan-
farin ár.
Fastan vinnutíma getur ver-
ið mjög erfitt að samræma á
sjúkradeildunum, þar sem sjúk-
lingar þurfa 24 klukkustunda
hjúkrun á sólarhring, og er
vöktum skipt með þeim hjúkr-
unarkonum, sem eru á hverri
deild, svo að þær komi sem jafn-
ast niður. Við verðum að hafa í
huga að ógiftarhjúkrunarkonur
geta einnig haft ýmsum skyld-
um að gegna utan síns vinnu-
tíma og svo auðvitað sín áhuga-
mál.
LANDAKOTSSPÍTALI
Nú sem stendur vantar okkur
aðallega hj úkrunarkonur á næt-
urvakt, til dæmis 3 eða 4 nætur
í viku. Hér vinna einnig margar
hjúkrunarkonur Hálf a vinnu.
flestar frá kl. 19—23 og einnig
á öðrum tímum.
Eins og auglýst var í síðasta
blaði opnar Landakotsspítali
barnaheimili um miðjan desem-
ber. Því miður var heimilið ekki
tilbúið, þegar blaðið fór í prent-
un, svo að við getum engar
myndir birt þaðan að sinni.
BORGARSPÍTALINN
Já, það er hægt, en þörf stofn-
unarinnar hverju sinni ákveður
að sjálfsögðu vinnutímann. Til
skýringar má geta þess að við
Borgarspítalann eru starfandi
10 hjúkrunarkonur í 1/2 vinnu,
flestar vinna þrjár vaktir í
viku, hinar 14 vakt á dag. Enn-
fremur eru 5 hjúkrunarkonur
með fastar næturvaktir, 3
þeirra eru í i/ó vinnu, hinar 2 í
hlutavinnu og er vinnutíminn
fastákveðinn.
Að sjálfsögðu verður að haga
niðurröðun vinnutíma þannig,
að vinnutími % dagshjúkrunar-
kvenna, sem „rotera" á vöktum,
raskist sem minnst.
Elín Birna Daníehdóttir.
TÍMARIT IIJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 101