Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Side 30
FRÉTTIR og TILKYiimR
TILKYNNING UM
AÐALFUND.
Skv. ákvöróun síðasta framhalds-
aðalfundar 12. febr. 1968 á að halda
næsta aðalfund á tímabilinu marz—
júní 1969. Ber þá að kjósa formann
og, svo sem venja hefur verið, ýmsar
nefndir.
Á stjórnarfundi 4. nóv. 1968 voru
eftirtaldar hjúkrunarkonur kjörnar í
nefndanefnd (uppstillinganefnd), en
skv. félagslögum ber stjórn H.F.Í. að
tilnefna þessa nefndaraðila 4 mánuð-
um fyrir aðalfund (14. gr.)
Anna Guðrún Jónsdóttir, Borgar-
spítalanum, Fossvogi. Heimasími:
38964, Úthlíð 16.
Karítas Kristjánsdóttir, Landsspít-
alanum. Heimasími: 15714, Hring-
braut 105.
Sólveig Hannesdóttir, Heilsuvernd-
arstöð Reykjavíkur. Heimasimi:
16979, Barónstíg 41.
Með tillögur um formanns- og
nefndakjör ber að snúa sér til
nefndanefndar. Athygli skal vakin á
því, að skv. 17. gr. félagslaga skal
boða til aðalfundar með minnst 3ja
vikna fyrirvara.
Aðalfundur verður haldinn snemma
í marz og fundarboð send út fyrstu
dagana í fehrúar.
HJÓNABÖND
Bergdís Sigurðardóttir, hjúkrunar-
nemi og Smári Sveinsson, skilta-
gerðarnemi.
Álfheiður Ólafsdóttir, hjúkrunar-
kona og Ólafur Jóhannsson, raf-
virki.
Kristín Pálsdóttir, hjúkrunarkona
og Sveinbjörn Björnsson, prentari.
Hrafnhildur Kristjánsdóttir, hjúkr-
unarnemi og Þórður Þorgrímsson,
verzlunarmaður.
HJÚKRUNARKONUR ATHUGIÐ.
Jólatrésskemmtun félagsins verður
haldin að vanda.
Nánar auglýst í blöðum og útvarpi.
Nefndin.
LEIÐRÉTTINGAR.
I síðasta tölublaði misritaðist texti
unöir mynd á blaðsíðu 77. Þar átti að
standa: Sigurlín Gunnarsdóttii, for-
maður hins nýja félags.
Eftirfarandi texta vantaði undir
mynd á blaðsíðu 65: Tveggja manna
s.júkrastofa á geðdeild.
Auk þess var farið íangt með
vísu á bls. 69. Vísan er rétt þannig:
Gaman væri í Systraseli
að sýna lit á hjarta þeli,
aldrei gluggar hússins héli,
svo horfa megi inn um Peli.
Ritnefndin biður velvirðingar á
þessum leiðinlegu mistökum. Til að
bæta fyrir ruglinginn í vísu
Pela, Iangar okkur að Iáta fylgja síð-
ustu vísuna, sem við heyrðum eftir
hann:
Vísan er svona:
Komi ég í Systrasel
svona upp úr jólum,
takið gömlum vini vel,
verið á stuttum kjólum.
FÉLAGSFUNDUR H.F.I.
Félagsfundur H. F. I. var haldinn
mánudaginn 28. okt. s.l., í Súlnasal,
Hótel Sögu.
19 nýútskrifaðar hjúkrunarkonur
voru teknar inn í H. F. í. og bauð
formaður María Pétursdóttir þær
velkomnar í félagið.
Tómas Á. Jónasson, læknir, hélt
erindi um „magasár", orsök þess og
meðferð og sýndi skuggamyndir til
skýringar.
Sigrún Gísladóttir, hjúkrunarkona,
greindi stuttlega frá fundi fulltrúa-
ráðs B. S. Ii. B.
Á fundinum voru milli 60—70 með-
limir.
GÓÐAR RJÓMAKÖKUR.
100 gr. sykur.
100 gr. smjör.
100 gr. hveiti.
Vs eggjarauða.
möndlur.
súkkulaði.
súkkulaðirommflöskur.
Degið hnoðað létt saman og búnar
til litlar kúlur. Kúlunum difið í hakk-
aðar möndlur.
Bakist með góðu bili á milli á
smurðri plötu í 8—10 mín. við góðan
hita (200°).
Bráðið súkkulaði sett ofaná kök-
urnar.
Skreytið með þeyttum rjóma, sem
stappað hefur verið í súkkulaði-
rommflöskuni ea. 2 í 1 dl.
liIM.KOK\
Þegar einhvern langar til að drepa
tígrisdýr, kallar hann það íþrótt. Ef
tígrisdýr ætlar að drepa hann sjálfan
kallar hann það grimmd.
B. Sliaw.
*
Gerðu náunga þínum það sama og
hann ætti að gera þér, og vertu fyrri
til þess.
E. N. Weslcott.
106 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS