Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Page 31
Stjórn Lxknafélags íslands.
*
Læknafélag Islands 50 ára
Læknafélag fslands var stofnað þ.
14. janúar 1918. Þar sem ekki þótti
henta að efna til almennrar hátíðar
á þeim árstíma, vegna örðugra sam-
gangna, var ákveðið að nota fremur
afmælisárið, en daginn, sem sam-
komutíma og hélt félagið læknaráð-
stefnu í Domus Medica 4.—5. októ-
her, í tilefni af afmælinu.
Pyrsta félag lækna hér var stofnað
af fimm læknum í Austfirðingaf jórð-
ungi, en lagðist niður tveimur árum
seinna. Fyrsti almenni læknafundur
var hins vegar haldinn hér í neðri
deild Alþingis, 27.—30. ágúst, 1896,
°g var m.a. á dagskrá breyting á
skipun læknishéraða. Er það í eðli
sínu hið sama og aðalmálið á dag-
skrá að þessu sinni.
Guðmundur Hannesson, prófessor,
harðist fyrir stofnun Læknafélagsins,
°g tókst það að lokum fyrir hálfri
öld, og voru stofnendur 62, en við-
staddir á stofnfundi 34. Fimm af
stofnendum eru enn á lífi, þar af
einn, sem sótti stofnfundinn.
Verkefni læknafélagsins hafa frá
upphafi verið, að efla sameiningu,
stéttarþroska og hag félagsmanna,
koma fram fyrir þeirra hönd gagn-
vart opinberum aðilum og treysta
tengsl við erlend læknafélög. Eins er
það verkefni félagsins að stuðla að
aukinni menntun lækna, glæða áhuga
þeirra á því, er lýtur starfi þeirra,
og efla samvinnu um allt, er lýtur og
horfir til heilla i heilbrigðismálum
þjóðarinnar.
Kjaramál lækna hafa verið ofai-
lega á baugi, nú sem fyrr, og 1952
voru gerðar breytingar á lögum
Læknafélagsins og það gertaðbanda-
lagi 7 svæðisfélaga, og er Læknafé-
lag Reykjavíkur fjöimennast þeirra.
Félagið hefur gert mikið átak til
að bæta starfsaðstöðu lækna, þar sem
bygging Dómus Medica var. Bygging
var hafin 1963, og lauk henni 1966.
Stjórn Læknafélags Islands skipa:
Arinbjörn Kolbeinsson, formaður,
Friðrik Sveinsson, ritari og Stefán
Bogason, gjaldkeri. Framkvæmda-
stjóri læknafélaganna er Sigfús Guð-
laugsson, viðskiptafræðingur.
IV. alþjóðaþing I.S.R.R.T,
1970
Dagana 1.—5. október 1969 verður
haldið í Tokio í Japan fjórða alþjóða-
mót röntgenfélagasamtakanna.
Októbermánuður hefur orðið fyrir
valinu, einkum með tilliti til útlend-
inga, sem mótið sækja, því hann kyr-
ir fegursti og þægilegasti árstími í
Japan.
Japanska undirbúningsnefndin hef-
ur þegar að mestu lokið undirbúningi
og skipulagningu mótsins, því búist
er við mikilli þátttöku hvaðanæva að
úr heiminum
Þátttökubeiðnir þurfa því að berast
sem fyrst til viðkomandi félags og er
þátttökugjald 10 dollarar (U.S.A.)
til 31. des. 1968, eftir það hækkar
þátttökugjaldið í 15 dollara.
Hafi einhverjar ísl. röntgenhjúkr-
unarkonur áhuga á að sækja þetta
mót, þá hafið samband við undirrit-
aða hið fyrsta.
Jóhanna Þórarinsdóttir,
röntpendeild Landsspítalans.
.lólakurl fás< á skrifslofu ll.F.Í.
ötQtOtptQtOtQtO
mmmxmmæmmmmm
otototototototototototototototototototo:
-0
Tímarit Hjúkrunarfélags íslands óskar öllum
lesendum sínum gleðilegrar jólahátíðar, gœfu-
ríks komandi árs og þakkar samstarfið á liðna
árinu.
ototototototototototoiototototototoi
TÍMAIUT 11.IÚKRUNAKFÉLAGS ÍSLANDS 107