Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1997, Qupperneq 47
Nám í höfuðbeina-
og spjaldhryggsjöfnun
Meðferðarformið „Cranio Sacral
Therapy“ þróaði dr. John Upledger til
meðferðar á ýmsum erfiðum kvillum.
Hann sýndi fram á að nýta mætti sér þá
uppgötvun dr. Williams Sutherlands frá
upphafi 20. aldar að höfuðkúpubein
mannsins væru hreyfanleg. Dr. Upledger
uppgötvaði að innan hryggsúlu og
höfuðkúpu er sjálfstætt vökvaþrýstikerfi
sem hefur áhrif um allan líkamann og er
meðferð hans fólgin í því að hlera
sláttinn í þessu innra þrýstikerfí og losa
um þá mótstöðu sem hindrar eðlilega
hreyfingu beina og flæði mænuvökva, en
höfuðbein og himnur eiga að vera
hreyfanleg svo að þau valdi ekki óeðli-
legum þrýstingi á kerfíð.
Nám í þessu meðferðarformi
skiptist í þrjá hluta en alls verður kennt í
rúmlega 150 klst. Fyrsta stig verður
kennt dagana 14. - 19. mars nk. Kennari
verður Svarupo H. Pfaff, löggilt
„heilpraktikerin“ frá Þýskalandi en
nánari upplýsingar og skráning er í
höndum Gunnars Gunnarssonar,
sálfræðings, í síma 564 1803.
(Texti byggður á bœklingi um
höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun)
Alþjóðlegur sumarskóli
Trust Nurses Association býður
námskeið fyrir hjúkrunarstjórnendur
sem kallast Shaping Health Services
into the 21st Century. Námskeiðið er
haldið í St. Catherine's College í
Oxford, Englandi, dagana 29. júní - 2.
júlf 1997. Alþjóðlegir fyrirlesarar
munu fjalla um (á ensku):
„International Shifts in Care Delivery,
Research & Development — Leading
the Corporate Agenda, Nurses in
Corporate Leadership Roles“ auk þess
sem vinnusmiðjur verða starfandi.
Meðal fyrirlesara eru: prófessor sir
Duncan Nichol, Delores Jones,
prófessor Beverly Alimo Metcalfe,
prófessor Maggie Pearson og June
Gibson. Skráningargjald (fullt fæði
innifalið): 600 £.
Þarna gefst kærkomið tækifæri til
að auka þekkingu sína og skapa og efla
tengsl við vinnufélaga hvaðanæva að.
Ekki skemmir að skólinn er í fögru
umhverfi í skemmtilegri borg og því
tilvalið að slá tvær flugur í einu höggi;
nám og sumarleyfi. Hægt er að fá nánari
upplýsingar frá: Mr. Brian Footitt,
Director of Nursing Development, South
Tees Acute Hospitals NHS Trust,
Middlesbrough General Hospital,
Ayresome Green Lane,
MIDDLESBROUGH TS5 5AZ, United
Kingdom.
Enska fyrir hjúkrunarfræðinga
Cambridge Collocation stofnunin býður upp á enskunámskeið fyrir
hjúkrunarfræðinga sem vilja bæta við þekkingu sína eða hyggja á störf í
enskumælandi landi.
Námið fer fram í Lucy Cavendish menntaskólanum í Cambridge í Englandi og
á árinu 1997 er boðið upp á vikunámskeið þar sem kennarar eru hvort tveggja í
senn, tungumálakennari og hjúkrunarfræðingur.
Námskeiðin eru sem hér segir:
Nr. Tími: £
1 7.-11. apríl 640
2 16.-27. júní 780
3 1.-12. september 780
Umsóknareyðublað og upplýsingabæklingur liggur frammi á skrifstofu Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Þriðja alþjóðlega NIVA nómskeiðið um
Ahrif líkamlegs og andlegs vinnuólags á heilsufar,
Reykjavík 11.-15. maí 1997
Líkamleg vinna getur valdið óþægindum og
verkjum frá hreyfi- og stoðkerfi. Andleg vinna
°g sálrænt álag geta leitt til ýmiss konar
vanheilsu (t.d. óþæginda frá hreyfi- og
s,oðkerfi, hjarta- og blóðrásarsjúkdóma og
veiklunar ónæmiskerfis). Sálrænt álag getur
einnig dregið úr vinnugleði og afköstum.
Þekking á lífeðlisfræðilegum viðbrögðum við
hkamlegu og andlegu vinnuálagi er nauð-
synleg forsenda skilnings á vinnutengdri
vanheilsu og skipulagi forvama.
Á þessu námskeiði verður fræðileg umfjöllun
Um efnið og hugtökum því tengdu, fjallað um
aðferðir til að meta vinnuálag, lífeðlis-
hteðilega svörun og tilurð sjúkdóma.
Álarkmið
^fúr námskeiðið eiga þátttakendur að:
• kunna skil á núverandi stöðu þekkingar
um líkamlega svömn við líkamlegri og
andlegri vinnu
• þekkja aðferðir til að mæla vinnuálag og
vandamál sem geta tengst slíkum
mælingum
• átta sig á núverandi stöðu og takmörkum
þekkingar á hvernig vinnutengd heilsu-
farsvandamál koma upp, þar meðtalin
vandamál tengd starfsemi vöðva, hjarta og
ónæmiskerfi.
Markhópar
Rannsóknarfólk, starfsmenn sem sinna
heilsuvernd starfsmanna og forvörnum á
vinnustað eða aðrir sem áhuga hafa á
tengslum atvinnu og heilbrigðis.
Efni námskeiðsins
Mælingar á líkamlegu og andlegu vinnuálagi,
sál-vefrænir sjúkdómar eða einkenni,
svömn vöðva-, hjarta-, blóðrásar og
ónæmiskerfis, sársaukaskynjun, faralds-
fræðilegar rannsóknir á óþægindum frá
hreyfi- og stoðkerfi, áhættuþættir
vinnutengdra óþæginda frá hreyfi- og
stoðkerfi, meinafræðilegar skýringar.
N ámskeiðsnefnd
Hanne Christensen og Nils Fallentin,
Danmörku, Stein Knardahl, Noregi, Gisela
Sjögaard, námskeiðsstjóri Danmörku.
Skipuleggjandi námskeiðisins hérlendis er
Þórmrn Sveinsdóttir, Vinnueftirliti ríkisins
og gefur hún nánari upplýsingar í síma 567
3500, fax: 657 4086.
Umsóknarfrestur: 9. ntars 1997.
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 1. tbl. 73. árg. 1997