Fréttablaðið - 24.04.2017, Page 30

Fréttablaðið - 24.04.2017, Page 30
Tottenham á enn eftir að stíga stærstu skrefin Tottenham er eitt mest spennandi lið Evrópu en heldur áfram að falla á stærstu prófunum. Liðið er í stöðugri framför en þarf að læra að sýna miskunnarleysi á ögurstundu. fótbolti „Við þurfum að finna leiðir til að vinna svona leiki. Við vorum miklu betri á löngum köflum en Chelsea fann leið til þess að vinna eins og í úrslitaleik deildabikarsins fyrir tveimur árum. Við vorum líka betri í þeim leik svo það er erfitt að kyngja þessu. Það er erfitt að setja fingur á það af hverju við töpuðum; kannski vantaði smá heppni, þetta féll með þeim og það var erfitt að koma til baka,“ sagði Harry Kane, aðalmarkaskorari Tottenham, eftir 4-2 tapið fyrir Chelsea í undanúr- slitum ensku bikarkeppninnar á laugardaginn. Kane dró þetta ágætlega saman. Tottenham var sterkari aðilinn lengst af, þá sérstaklega í seinni hálf- leiknum fram að þriðja marki Chel- sea á 75. mínútu. Fimm mínútum síðar skoraði Nemanja Matic sann- kallað draumamark og eftir það var engin leið til baka fyrir Tottenham. Eftir að Argentínumaðurinn Mauricio Pochettino tók við Totten- ham sumarið 2014 hefur liðið verið á stöðugri uppleið. Því hefur samt gengið erfiðlega að vinna allra stærstu leikina og gengið illa á Wembley sem er vandamál því liðið mun spila þar á næsta tímabili á meðan bygging nýs heimavallar stendur yfir. Tottenham tapaði fyrir Chelsea í úrslitaleik enska deildabikarsins 2015 og gerði 2-2 jafntefli við sama lið í maí á síðasta ári sem gerði út um möguleika liðsins á að vinna Englandsmeistaratitilinn. Í þeim leik sýndi Spurs mikið agaleysi; missti niður tveggja marka forystu Leikmaður helgarinnar Christian Benteke skoraði bæði mörk Crystal Palace þegar liðið vann 1-2 útisigur á Liverpool, hans gamla liði, í gær. Palace hefur verið á mikilli sigl- ingu að undanförnu og unnið sex af síðustu átta leikjum sínum. Og strákarnir hans Sams Allardyce eru komnir upp í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Ótrúlegur viðsnúningur hjá Palace sem var í tómu rugli undir lok stjórnartíðar Alans Pardew. Benteke var aðeins eitt tímabil í herbúðum Liver- pool og þrátt fyrir að hafa ekki náð að sýna sínar bestu hliðar skoraði hann níu mörk í 29 deildarleikjum. Það var ekki nóg til að sannfæra Jürgen Klopp, knatt- spyrnustjóra Liverpool, sem seldi hann til Palace á tæpar 30 milljónir punda. Belginn stóri og stæðilegi hefur átt fínt tímabil með Palace og er kominn með 14 mörk í vetur. Benteke hefur alls skorað 65 mörk í 149 leikjum í ensku úrvals- deildinni sem verður að teljast góð tölfræði, sérstak- lega í ljósi þess að hann lék með Aston Villa fyrstu þrjú tímabil sín í deildinni. – iþs Stóru málin eftir helgina í enska boltanum Stærstu úrslitin Þrátt fyrir að vera manni færri í 65 mínútur vann Hull 2-0 sigur á Watford. Mikilvæg þrjú stig hjá Tígrunum, sérstaklega í ljósi þess að Swansea vann Stoke á sama tíma. Þetta var sjötti deildarsigur Hull undir stjórn Marcos Silva. Hvað kom á óvart? Að Everton tókst ekki að skora gegn West Ham sem er með eina lélegustu vörn deildarinnar. Ever- ton hafði skorað 16 mörk í sex leikjum fyrir leikinn á Lundúna- leikvanginum á laugardaginn en tókst ekki að finna netmöskvana gegn Hömrunum. Mestu vonbrigðin Liverpool hefði farið langt með að tryggja sér Meistara- deildarsæti með sigri á Crystal Palace á heimvelli. Liverpool komst yfir en Christian Benteke, fyrrverandi leikmaður liðsins, skoraði svo tvívegis fyrir Palace og tryggði liðinu sigurinn. Lærisveinar Jürgens Klopp eru nú bara þremur stigum á undan Manchester United sem á tvo leiki til góða á Liverpool. og fékk níu gul spjöld. Tottenham-menn gerðu svo all rækilega í brækurnar í Evrópu- keppnum í vetur; fyrst í Meistara- deild Evrópu og svo í Evrópudeild- inni. Spurs spilaði fjóra Evrópuleiki á Wembley og vann aðeins einn. Það er freistandi að stimpla Tott enham-menn sem lúsera sem skreppa saman þegar á stóra sviðið er komið. Það er samt ekki alveg sanngjarn dómur, sérstaklega ekki eftir leikinn á laugardaginn. Totten- ham spilaði vel og á löngum köflum í seinni hálfleik komst Chelsea ekk- ert í boltann. Lærisveinar Antonios Conte áttu fimm skot á markið í leiknum og fjögur fóru inn. Fyrsta markið kom beint úr aukaspyrnu, annað markið úr vítaspyrnu og fjórða markið var þrumuskot af löngu færi hjá manni sem hefur skorað heil sex mörk í 143 leikjum fyrir Chelsea. Tottenham fékk alls á sig þrjú mörk úr föstum leikatriðum á laugardaginn sem liðið verst vanalega mjög vel. Það var líka allt annað að sjá Tott- enham í leiknum á laugardaginn en í Evrópuleikjunum fyrr í vetur þar sem liðið sýndi allar sínar verstu hliðar. Enska úrvalsdeildin Staðan Úrslit 34. umferðar 2016-17 Swansea - Stoke 2-0 1-0 Fernando Llorente (10.), 2-0 Tom Carroll (70.). Hull - Watford 2-0 1-0 Lazar Markovic (62.), 2-0 Sam Clucas (71.). Bournemouth - Boro 4-0 1-0 Joshua King (2.), 2-0 Benik Afobe (16.), 3-0 Marc Pugh (65.), 4-0 Charlie Daniels (70.). West Ham - Everton 0-0 Burnley - Man. Utd. 0-2 0-1 Anthony Martial (21.), 0-2 Wayne Rooney (39.). Liverpool - C. Palace 1-2 1-0 Philippe Coutinho (24.), 1-1 Christian Benteke (42.), 1-2 Benteke (74.). FÉLAG L U J T MÖRK S Chelsea 32 24 3 5 65-27 75 Tottenham 32 21 8 3 68-22 71 Liverpool 34 19 9 6 70-42 66 Man. City 32 19 7 6 63-35 64 Man. Utd. 32 17 12 3 50-24 63 Everton 34 16 10 8 60-37 58 Arsenal 31 17 6 8 63-40 57 WBA 33 12 8 13 39-42 44 S’ton 31 11 7 13 37-40 40 Watford 33 11 7 15 37-54 40 Stoke 34 10 9 15 37-50 39 C. Palace 33 11 5 17 46-53 38 B’mouth 34 10 8 16 49-63 38 West Ham 34 10 8 16 44-59 38 Leicester 32 10 7 15 41-53 37 Burnley 34 10 6 18 33-49 36 Hull 34 9 6 19 36-67 33 Swansea 34 9 4 21 39-68 31 M’brough 33 4 12 17 23-43 24 Sunderland 32 5 6 21 26-58 21 Okkar menn Íslendingar í efstu tveimur deildunum á Englandi Swansea City Gylfi Þór Sigurðsson Lék allan leikinn og lagði upp fyrra mark Swansea í 2-0 sigri á Stoke. Þetta var fyrsti sigur Swansea síðan 4. mars. Cardiff City Aron Einar Gunnarsson Var á sínum stað í byrj- unarliði Cardiff sem gerði markalaust jafntefli við Wigan. Wolverhampton Wanderers Jón Daði Böðvarsson Lék seinni hálfleikinn í markalausu jafntefli Úlfanna og Blackburn. Fulham Ragnar Sigurðsson Sat allan tímann á bekknum þegar Fulham vann öruggan sigur á Huddersfield. Bristol City Hörður B. Magnússon Kom ekkert við sögu þegar Bristol vann 3-2 sigur á Barnsley á heimavelli. Harry Kane gengur niðurlútur af velli eftir 4-2 tap Tottenham fyrir Chelsea í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar á laugardaginn. Kane skoraði laglegt skallamark í leiknum en það dugði ekki til. noRDiCPHoToS/GETTy Burnley Jóhann Berg Guðm. Kom inn á sem varamaður á 62. mínútu í 0-2 tapi fyrir Man. Utd. Þetta var fyrsti leikur Jóhanns Berg eftir meiðsli. Chelsea - Tottenham 4-2 1-0 Willian (5.), 1-1 Harry Kane (18.), 2-1 Willian, víti (43.), 2-2 Dele Alli (52.), 3-2 Eden Hazard (75.), 4-2 Nemanja Matic (80.). Arsenal - Man. City 2-1 0-1 Sergio Agüero (62.), 1-1 Nacho Monreal (71.), 2-1 Alexis Sánchez (101.). Enska bikarkeppnin Undanúrslit 2 4 . a p r í l 2 0 1 7 M Á N U D a G U r14 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð 2 4 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C B 2 -9 5 D 8 1 C B 2 -9 4 9 C 1 C B 2 -9 3 6 0 1 C B 2 -9 2 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 2 3 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.