Norðurslóð - 24.04.1980, Page 7
Framkvæmdir hcijast
við nýju
skólabygginguna
Fyrsti hluti 1. áfanga nýrrar
skólabyggingar á Dalvík hef-
ur verið boðinn út. Um er að
ræða jarðvinriu og botnplötu
unóir 1. áfanga. Tilboðs-
frestur er útrunninn og hafa
tvö tilboð borist. Annað frá
Hallgrími Antonssyni bygg-
ingarmeistara Dalyík fyrir
hönd Þveráss hf. kr.
32.264.000,- og hitt frá Aðal-
bergi Péturssyni múrara-
meistara Dalvík kr.
33.410.360,-. Kostnaðar-
áætlun gerði ráð fyrir kr.
31.667.070,-.
Ekki hefur enn verið
ákveðið hvort öðru hvoru
tilboðinu verður tekið, en
allt bendir til þess að fram-
kvæmdir hefjist innan tíðar.
Eins og áður hefur verið frá
skýrt er hugmynd byggingar-
nefndar sú að hraða svo
framkvæmdum við þennan
fyrsta áfanga að unnt verði
að taka tvær kennslustofur í
notkun í haust. Húsnæ ðis-
þrengsli skólans eru enda
ákaflega mikil ogstanda öllu
skólastarfi fyrir þrifum.
Umsókn um land fyrír
refabú
Hjá bæjaryfirvöldum liggur fyr-
ir umsókn frá Skarphéðni Pét-
urssyni um land undir refabú.
Skipulagsnefnd héfur fjalla ð
um þetta mál og uppi eru
hugmyndir um Sauðanesland
og eyrarnar vestan Hálsár í
Hrísalandi. Ljóst er að nokkurn
tíma tekur að athuga þessi mál,
enda er ekki ljóst hvort Skarp-
héðinn er búinn að fá tilskilin
leyfi frá landbúnaðarráðuneyt-
inu. #
I reglugerð um loðdýrabú er
tilskilið að fjarlægð milli búa
skuli vera a.m.k. 1.000 km.
Líklegt er talið að þessu ákvæði
verði breytt innan tíðar. í
reglugerð um heilbrigðismál eru
aftur á móti ákvæði þess efnis
að minnkabú megi ekki vera
nær íbúðabyggð eða vinnu-
stöðum en 500 metrar. Þetta
ákvæði hefur valdið nokkrum
vandkvæðum í skipulagsvinnu
fyrir Dalvík, því að þéttbýlið á
Dalvík er nú þegar komið í allt
að 500 m. fjarlægð frá Minnka-
búinu á Böggvisstöðum.
AUGLÝSING
Kveðin hefur verið upp almennur lögtaksúrskurður á
Akureyri, Dalvík og Eyjafjarðarsýslu fyrireftirtöldum
opinberum gjöldum.
1. Söluskatti, sem fallinn er í eindaga.
2. Viðbótar og aukaálögðum söluskatti vegna
fyrri tímabila,
allt ásamt vöxtum og kostnaði við lögtak og uppboð
ef til kemur.
Lögtök fara fram, innan átta daga frá birtingu
úrskurðar þessa á ábyrgð gerðarbeiðanda en
kostnað gerðarþola.
Akureyri, 15. apríl 1980.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík, sýslumaðurinn
i Eyjafjarðarsýslu.
Óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum
gleðilegs sumars!
iirilrtilrLl
mm
slippstodin
H.P.
PÓSTHÓLF 246 . SÍMI (96)21300 . AKUREYRI
Útgerðarfélag
Dalvíkinga hf.
sendir sjómönnum og öðru starfs-
fólki sínu bestu óskir um
gleðilegt sumar
og þakkar góð og heillarík störf
á liðnum vetri.
Mjólkursamlag
K.E.A.
sendir Svarfdælingum og öðrum viðskipta-
vinum við Eyjafjörð
bestu sumarkveðjur
og þakkar ágæt samskipti á liðnum árum.
NORÐURSLÖÐ - 7