Norðurslóð - 16.12.1981, Page 1
Messufólk á Tjörn 7. júní 1896
1. Séra Tómas Hallgrímsson, Völlum.
2. Séra Kristján Eldjárn Þórarinsson, Tjörn.
3. Una Jóhannesdóttir, Uppsalakoti.
4. Jón Tr. Jóhannsson, meðhjálpari, Tjörn.
5. Ingigerður Zóphoníasdóttir, lengst á Skáldalæk.
6. Sesselja Jónsdóttir, Tjörn.
7. Guðrún Guðmundsdóttir, Hrappstaðakoti.
8. Jón Jónsson, Hrappstaðakoti.
9. Þorbjörg Kristjánsdóttir, Tjörn.
10. Petrína Hjörleifsdóttir, Tjörn.
11. Þorbjörg Þórarinsdóttir, lengst í Gullbringu.
12. Sesselja Kristjánsdóttir Eldjárn, Tjörn.
13. Sigurður Jóhannsson, lengst í Gullbringu.
14. Vilhjálmur Einarsson, Jarðbrúargerði, siðar á Bakka.
15. Þór Vilhjálmsson, Jarðbrúargerði, síðar á Bakka.
16. Guðrún Gísladóttir, Ytraholti.
17. Guðrún Jóhannesdóttir, Ytraholti.
18. Jóhannes Þorkelsson, Ytraholti.
19. Soffía Zóphaníasdóttir(?),BrekkumeðbarnsittÖnnuSigfús-
dóttur.
%
Við þessa messu var altaris-
ganga með fermingarbörnum
sem fermst höfðu í Tjarnar-
kirkju á hvítasunnudag hálfum
mánuði áður. Þau voru aðeins
fimm talsins: Dagbjört Jóhann-
esdóttir Ytraholti, Dórothea
Þórðardóttir Steindyrum, Guð-
rún Sigfúsdóttir Syðraholti,
Jón Pálsson Bakkagerði og
Þorbjörg Kristjánsdóttir Tjörn.
Gera verður ráð fyrir að þau
séu á myndinni svo og aðstand-
endur þeirra, enn fremurfólk úr
Tjarnarsókn, en reyndar einnig
fleiri. Ekki er víst að þetta séu
allir kirkjugestirnir. Að svo
stöddu hefur ekki reynst unnt
að bera kennsl á fleiri en þá sem
skýringarmynd sýnir. En hugs-
anlegt er að fleiri þekkist,
einkanlega ef bændur og bœnda
konur á nœstu bœjum eru höfð í
huga og mjög líklegt er að verið
hafi við kirkju þennan dag.
Jón J. Árnason (1853-1927)
smiður og Ijósmyndari á Lauga-
landi á Þe/amörk mun hafa
tekið þessa mynd eins og
margar aðrar hér nyrðra á
síðustu árunum fyrir aldamót.
Eintakið sem hér er prentað
eftir var í eigu séra Kristjáns.
Um nokkurt skeið varþað týnt,
en Sesselja Eldjárn fann það í
bókakistu á kirkjulofti og þar
með var því borgið. Einhvern-
tíma skömmu upp úr 1960
lánaði Sesselja myndina til
eftirtöku hjá Jóni Kaldal Ijós-
myndara í Reykjavík. Þar
brunnu og skemmdust margar
myndir í eldsvoða 1963 og var
jafnvel talið aðþessi myndhefði
glatast. Fyrst 1977 var gerð
rœkileg gangskör að því að leita
hennar meðal leifa frá brunan-
um, og þar fannst hún reyndar,
en talsvert skemmd af reyk og
hita. Fœr Ijósmyndari tók að sér
að gera eins góða eftirmynd og
efni stóðu til og það er hún sem
hér birtist. Upprunalegu mynd-
ina gaf Sesselja Þjóðminjasafni
Islands.
Talið hefur verið að þetta sé
eina kopían sem til er afþessari
sögulegu mynd. Það er þó ekki
endilega víst. Æski/egt vœri að
hugsanlegur eigandi betra ein-
taks af myndinni gæfi sig fram
og kynni þá að vera unnt að
bera kennsl á fleira messufólk.
Það mundi auka gildi myndar-
tnnar.
f
JOLADAGBOK
Aðfangadagskvöld kl. 6: Aftansöngur í Dalvíkur-
kirkju.
Jóladagur:
Kl. 1,30: Messa í Vallakirku
Kl. 3,30: Messa í Tjarnarkirkju.
2. jóladagur:
Kl. 2: Messa í Urðakirkju.
3. jóladagur:
Kl. 2: Messa í Dalbæ.
Nýársdagur:
Kl. 4: Messa í Dalvíkurkirkju.
Verslanir K.E.A. verða opnar á laugardögum í
desember sem hér segir:
Laugardaginn 19. des. verður opið frá kl. 13 - 22.
Miðvikudaginn 23. des. verður opið frá kl. 9-23.
Fimmtudaginn 24. des. verður opið frá kl. 9-12.
Söluop verða opin sunnudaginn 27. des. frá kl. 14-18
Söluop verða lokuð á aðfangadag, jóladag, annan í
jólum, gamlársdag og nýársdag.
Sunnudaginn 3. í jólum heldur U.M.F. Þorsteinn
Svörfuður hátíðlegt 60 ára afmæli sitt með fjöl-
breyttri dagskrá. Auk heimafólks eru allir fyrrver-
andi félagar hjartanlega velkomnir.
Samkoman hefst kl. 9 e.h.
Þriðjudaginn 29. des. heldur kvenfélagið Tilraun
barnaball með jólasveinum og öllu tilheyrandi.
Ballið byrjar kl. 13.30.
Jólaskemmtun barnanna á Dalvík verður þann 29.
desember kl. 3 e.h.