Norðurslóð


Norðurslóð - 16.12.1981, Blaðsíða 16

Norðurslóð - 16.12.1981, Blaðsíða 16
__ AUGLÝSINGASTOFA KRISTÍNAR HF. 83.36 Þessar standa fyrir sínu... Minningar, sagnir, kímnisögur og þjóðsögur AF JÖKULDALSMÖNNUM OG FLEIRA FÓLKI eftir sagnaþulinn Þorkel Björnsson frá Hnefilsdal er óvenju skemmtileg syrpa þjóðlegs fróðleiks í upprunalegustu merk- ingu þess orðs, sagnir og minni sem varðveist hafa í munnlegri geymd kynslóðum saman. AF JÖKULDALSMÖNNUM OG FLEIRA FÓLKI eru skemmtilegar frásagnir sem fólk mun lesa sér til ánœgju, hvar sem er á landinu. All- margar myndir prýða bókina. iÐUNN MANA Skuggsjá íslensks mannlífs Eitt vinsœlasta ritsafn sem út kemur hér um þessar mundir. íþað velur Gils Guðmundsson sýnishorn úr íslenskum sjálfsœvisögum og minningaþáttum. Hann er jafnan fundvís á skemmtilegt efni og hefur dregið fram margt hugtœkt sem grafið er í gömlum ritum og fáir þekkja. MÁNASILFUR geymir ýmsar perlur íslenskrar frásagnarlistar að fornu og nýju. Fágætlega vel samdir þættir EF HÁTT LÉT í STRAUMNIÐ HÉRAÐSVATNA, minningar Ólínu Jónasdóttur, er bók sem allir unn- endur íslenskrar alþýðlegrar frá- sagnarlistar og þjóðlegra frœða munu kunna að meta. Ölína Jónas- dóttir var Skagfirðingur og segirfrá mannlífi þar. Líka er skemmtilegur kafli um Laxamýri í Suður-Þingeyj- arsýslu, œskuheimili Jóhanns Sigur- jónssonar skálds. Bókin er prýdd allmörgum myndum. Bræðraborgarstíg 16 Pósthólf 294 121 Reykjavik Simi 12923-19156 r i i i i i i i i i i i i i i i » i i i i i i i i i i Auglýsing frá stjórn verka- mannabústaða á Dalvík Áformað er að byggja verkamannabústaði nk. sumar og er því hér með auglýst eftir væntanlegum umsækjendum um íbúðir. Umsóknareyðublöð fást á skrif- stofu Dalvíkurbæjar. Rétt til kaupa á íbúðum eiga þeir sem hér segir: A. Eiga lögheimili á Dalvík. B. Eiga ekki íbúðir né eign í öðru formi. C. Hafa haft meðaltekjur pr. ár þrjú síðast liðin ár áður en úthlutun fer fram eigi hærri upphæð en sem svarar kr. 59.520 hjá einhleypingi eða hjónum og kr. 5.260 fyrir hvert barn á framfæri innan 16 ára aldurs. Ekki mega vinnustundir á ári vera f'ærri en 516 ('/2 staða). Kaupskilmálar: Kaupandi greiði 10% af verði íbúðar sem greiðist í tvennu lagi. 90% er lánað til 42 ára með 0.5% vöxtum og að fullu verðtryggt. Umsóknum sé skilað fyrir 24/12 1981 á Bæjarskrifstofuna þar sem einnig eru veittar allar nánari upplýsingar. Dalvík 3/12 1981 F.h. stjórnar Helgi Jónsson Rafn Arnbjörnsson 1 I Frá Hitaveitu Dalvíkur Samkvæmt reglugerð Hitaveitunnar er stillingu rennslihemla einungis breytt um áramót og þurfa beiðnir þar að lútandi að berast hitaveitustjóra eða skrifstofu Dalvíkurbæjar fyrir 1. janúar 1982. Hitaveitustjóri. J Innheimta bæjarsjóðsgjalda Þeir fáu sem ekki hafa enn staðið að fullu skil á álögð- um gjöldum ársins 1981 og/eðaeldri gjöldum eru vin- samlegast beðnir að gera skil sem allra fyrst. Athygli skal vakin á því að 31. desember 1981 verða reiknaðir 4,5% dráttarvextir á öll vanskil til Bæjarsjóðs Dalvík- ur. Á það við um útsvör, aðstöðugjöld og fasteigna- gjöld. Bæjarskrifstofan verður lokuð á aðfangadag en 30. desember verður opið til kl. 18 og frá 9-12 á gamlársdag. Bæjarritari. 16 - NORÐURSLÓÐ

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.