Norðurslóð


Norðurslóð - 14.12.1982, Qupperneq 6

Norðurslóð - 14.12.1982, Qupperneq 6
\ W1 Stórtorgið í Hamri Hamar í Noregi: Vinabæjarmót næsta sumar Vinabæjarmót: Á komandi sumri veröur haldið vinabæjarmót í Hamari, Noregi eða dagana 11 .-22. júní. Hamar er fallegur bær sem stendur við vatnið Mjösa um 2 tíma akstur frá Oslo. Vonandi nota einhverjir Dal- víkingar og Svarfdælingar sér þetta tækifæri til að kynnast frændum okkar í Noregi. Ferða- kostnaður verður í lágmarki, vegna þeirra kjara sem Norrænu félögin hafa hjá Flugfélögun- um. Auðvelt verður að tengja þetta frekara ferðalagi um Noreg eða norðurlöndin. Gist- ingu er hægt að fá ýmist á hótelum, sumarhúsum eða þá á heimilum hjá félögum í norrænafélaginu í Hamar, þá ókeypis, og er það skemmti- legasta formið, því þá kynnast menn best landi og þjóð. Allar nánari upplýsingar um þetta má fá á bæjarskrifstofunni. Hvað eru vinabæir? í dag hafa 27 bæir og kauptún Gamall draumur rætist Höfnin við Mjösenvatnið Tónlistarfélag Dalvíkur gengst nú fyrir söfnun til kaupa á vönd- uðum flygil. Meiningin er að staðsetja hann í Víkurröst. Nothæft hljóðfæri hefur ekki verið til lengi og það sem verra er mjög erfitt hefur reynst að útvega hljóðfæri til tónleika- halds. Að okkar mati er ein aðalforsendan fyrir tónlistar- lífi hér á staðnum sú að til sé boðlegt hljóðfæri. Þess vegna viljum við kaupa vandað hjóð- færi sem hægt væri að nota við öll tækifæri. Kveikjan að þessari söfnun er, að okkur stendur til boða vandað hljóðfæri. Umrætthljóð- færi er af gerðinni PETROF, alveg nýtt og ónotað og kaup- verð um 100 þús. kr. Vitandi það að „margt smátt gerir eitt stórt“ leitum við til flestra félaga, kóra og klúbba á svæðinu. Jafnframt er það von okkar að einstaklingar heima og að heiman láti eitthvað af hendi rakna. Við gerum okkur grein fyrir því að umrætt hljóðfæri þarf að varðveita. Þar er átt við góða geymslu og góða meðferð. Þess vegna ætlum við að byggja 6 - NORÐURSLÓÐ traustan skáp utan um flygilinn og jafnframt að setja reglur um notkun hans. Nú þegar hefur borist svarfrá nokkrum aðilum og undirtektir allar það góðar að ákveðið hefur verið að kaupa umræddan flygil. Það er gert í trausti þess að allir þeir sem leitað verður til sýni þessu verkefni sama áhugan. Lesandi góður viljir þú styrkja þetta menningarframtak biðjum við þig að hafa samband við einhvern undirritaðan, eða leggja upphæðina inn á hlaupa- reikning Tónlistarfélags Dalvík- ur nr. 700 í sparisjóði Svarfdæla en það má gera í öllum bönkum og sparisjóðum. Að lokum þetta. Gamall draumur er að rætast. Megi þetta hljóðfæri verða okkur ölfum til ánægju og yndisauka á ókomnum árum. Tónlistarfélag Dalvíkursend- ir velunnurum sínum nær og fjær bestu jóla og nýársóskir. F.h. Tónlistarfélags Dalvíkur Friðrik Friðriksson Guðm. Ingi Jónatansson Hcimir Kristinsson Jóhann Daníclsson Leiðréttingar f grein á baksíðu er farið rangt með nafn kon- unnar í Grímsnesi á Dalvík. Hún er þar nefnd Anna. Hér var um misheyrn að ræða, hún heitir Aðalrós, af kunningjum kölluð Alla. (Uppgötvaðist of seint til að lagfæra í grein- inni). I síðasta tölublaði var farið rangt með föður- nafn Friðriks heitins Sigurjónssonar á Dal- vík. Hann var þar sagð- ur Friðriksson. Beðist er velvirðingar á þessum rangfærslum. á íslandi vinabæi á hinum Norðurlöndunum. Vinabæjarsamskiptin hafa farið vaxandi á seinni árum. Vinabæir eru nokkurskonar sendiráð í hinum löndunum, algent er að þau greiði götu nemenda í skóla, og gagnkvæm- ar heimsóknir eru víða orðnar algengar, svo sem nemenda og kennaraskipti, samskipti á sviði iþrótta, kóra o.s.frv. Víða hér á landi eru þessi samskipti komin í nokkuð.fast form t.d. í Hveragerði, Akra- nesi og víðar. Þar hafa tekist mikil kynni meðal íbúanna og margir eignast góða vini á hinum norðurlöndunum sem á þann hátt hafa eflt þekkingu manna á öðrum löndum. Bæði hafa menn lært ýmislegt gagn- legt og eytt fordómum. Við íslendingar höfum sótt ákaflega mikið af okkar menn- ingu og þekkingu til hinna Norðurlandanna, en svo er aftur spurning hvort okkur hefur tekist að aðlaga það eins og þyrfti að okkar aðstæðum. Norrænafélagið á Dalvík mun í vetur reyna að kynna vinabæina enn frekar og þá líka í samstarfi við skólann. En með því fyrsta sem félagið gerir eftir áramótin er að halda Grænlandskynningu þar sem sýndar verða myndir og sagt frá Grænlandi. Lögtaksúrskuröur Hér með úrskurðast lögtök fyrir vangreiddaum söluskatti mánuðina júlí, ágúst og september 1982, sem á hefur verið lagðurá Akureyri, Dalvík og í Eyjafjarðarsýslu, svo og fyrir söluskatts- hækkunum. Ennfremur tekur úrskurðurinn til þungaskatts samkvæmt mæli af diselbifreiðum fyrir mánuðina júní, júlí, ágústog septembers.l., þ.e. af bifreiðum með umdæmismerki A. Fer lögtak fram að liðnum 8 dögum frá birtingu úrskurðar þessa. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu, 30. nóvember 1982. Jólasveinar ganga um bæinn Jólasveinarnir verða á ferð- inni um Dalvíkina á aðfanga- dag eins og undanfarin 44 ár, að bera út jólapóstinn. Þessi skemmtilegi siður á vart sinn líkan á landinu, og verður honum vonandi við- haldið um ókomin ár. Myndirnar voru teknar á aðfangadag fyrir tveimur ár- um, þegar sveinarnir höfðu viðdvöl í Dalvíkurskóla, og létu lífga upp á andlitið á sér. Gamla brúin kvödd Það fór þó aldrei svo, að gamla Argerðisbrúin fengi ekki eftir- mælin sín, þótt ekki kæmu þau frá Vegagerð ríkisins. Nu þegar til stendur að brjói litla ljóðakveðja frá H. Z. og orðum. Brúin gamla, góða, gengin brátt er þín ævileið á enda. Yfir hættan gýn: Brotin, barin niður bráðum verður þú. Fjöregginu fórnar fyrir aðra brú. Þú hefur þjóð og landi þjónað lengi og vel. Greiddir margra götu gegnum bliðu og él. Sýndi Ijóst og lengi leiðarblutverk þitt nótt og nýta daga notagildi sitt. a gömlu brúna niður, berst þessi gerum við orð hans að okkar Oft með ólíkinduni á þig reyna hlaut. Þínar styrku stoðir stóðust hverja þraut. Burðarþoli þínu það er víst og rétt var í einu og öðru cngin takmörk sett. Farðu heil að hruni happasæla brú, þegar þægðarönnum þínum lýkur nú. Mun þín sæmdarsaga sigurljóma skyggð lengi i minni lýða lifa í vorri byggð. H. Z. Frá Handlist- arfélaginu Fréttatilkynning Á haustinu hefur starfsemi Handlistarfélagsins verið með tölverðum blóma. Þann 14. okt. fékk félagið Önnu Höskulds- dóttur frá Heimilisiðnaðarskól- anum til að hafa sýnikennslu í jólaföndri. Um svipað leyti var samið við Skátafélag Dalvíkur um afnot af húsnæði þess einu sinni í viku. Síðan hefur verið opið hús á vegum félagsins á mánudagskvöldum, þar sem félagar hafa komið saman og unnið að jólaföndri. Hefur þátttaka í þessum vinnukvöld- um yfirleitt verið góð. Um miðjan janúar mun starf- semin hefjast að nýju með helgarnámskeiði í skrautskrift. Skömmu síðar verður annað námskeið, og þá í grunnteikn- ingu. Kennari á báðum nám- skeiðunum verður Einar Helga- son, en þau verða auglýst nánar síðar. Einnig er ætlunin að halda áfram að hafa opið hús einu sinni í viku. Þareigafélagsmenn að geta komið tið að vinn að ýmsum verkefnum. Að lokum óskar Handlista- félagið félögum sínum og öðrum gleðilegra jóla og farsæls kom- andi árs. Stjórnin

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.