Norðurslóð - 14.12.1982, Blaðsíða 13
Kveðja að sunnan
Hjónin í Sunnuhlið á Álftanesi, Arný Þor-
leifsdóttir og Frímann Sigurðsson hugsa
heim um jólin og senda öllum vinum og
vandamönnum á Dalvík og i Svarfaðardal
innilegustu jólakveðjur og óskir um gæfurikt
komandi ár.
Kærar þakkir fyrir allt gamalt og gott.
Þakkarávarp
Ég þakka öllum vinum minum og kunningj-
um, sem sýndu mér vináttuvott með gjöfum
og heimsóknum á 60 ára afmæli mínu 2. júlí
síðastliðinn.
Lifið heil, gleðileg jól og farsælt komandi ár.
MAFtlNÓ SIGURÐSSON, Búrfelli.
Skíðaferð - Skíðaferð
Ferðafélag Svarfdæla efnir til skíðaferðar fram í
Stekkjarhús fimmtudaginn 30. desember. Þátttak-
endur skulu mæta hjá Kóngsstöðum um hálf tvö
leitið. Gangan tekur einn klukkutíma. Félagið gefur
kaffi í gangnaskálanum (en ekki meðlæti).
Gleðileg jól.
Dalvíkingar - Svarfdælingar
Hafið þið athugað að samkvæmt opinberum útreikn-
ingum kostar það 4-500 kr. að aka litlum fólksbíl til
Akureyrar og aftur heim?
Gjaldið með rútunni er 100 kr. fram og til baka.
Förum alla virka daga frá Dalvík kl. 9 árdegis, frá Ak-
ureyri kl. 5 síðdegis. Á sunnudögum kvöldferð frá
Dalvík kl. 8. Afgreiðslan er nú hjá versluninni Víkur-
torg.
Við óskum héraðsbúum öllum gleðilegra
jóla og góðs komandi árs.
DALVÍKURRÚTAN.
Ævar Klemensson.
Ýlir hf.
auglýsir
Við bjóðum úrval jólagjafa fyrir alla fjölskylduna,
svo sem, leikföng, gjafavörur, fatnað, myndavélar, filmur, ferðaút-
varpstæki, bílaútvörp, útvarpsklukkur, armbandsúr, vídeótæki og
spólur, skiði, skiðabindingar, skiðaskó, skíðafatnað, mokkafatnað
o.m.fl.
Blóm og blómaskreytingar.
Leigjum vídeótæki og efni á myndböndum, með og án ísl. texta.
Leigan verður opin alla daga sem verslunin verður lokuð um jól og
áramót, kl. 18.30 til 19.00. Þeir sem vilja leigja vídeótæki er bent á að
panta tímanlega.
Burtfluttum Dalvíkingum bendum við á heimsendingar okkar á
blómum og blómaskreytingum.
Dalvíkingar, það er ómaksins vert að athuga hvað við höfum á boðstól-
um, áður en ekið er úr bænum til innkaupa.
Sími 61405 og 61488.
Við óskum viðskiptavinum
okkar gleðilegra jóla og
þökkum viðskiptin á árinu.
landsmönnum öllum
jóla árs og friðar.
viðskiptin á liðnum
Verslunin Sogn
auglýsir
Við erum alltaf að taka upp nýjar og nýjar sendingar.
★ Buxur úr ullarefnum.
★ Mussur, peysur og vesti á fullorðna.
★ Mikið úrval af Glitvörum
• steinblóm
• kornkeramik
★ íslensk handunnin kerti
★ Fjórða sendingin af - CLARIOL FOOT SPA -
fótanuddtækjum er á leiðinni
★ Mikið af jólaskreytingarefni
Sendum starfsfólki og við skiptavinum béstu óskir um
gleðileg jól og farsældar á komandi ári. Þökkum sam-
skiptin. *
Verslunin Sogn.
Pantið jólaölið
tímanlega
Við veitum 15% kynningarafslátt í jóla-
mánuðinum á FANTA, TAB, SPRITE,
FRESKA í eins líters umbúðum.
Óskar Jónsson & Co
Sími 61444
Dalvík.
Innheimta bæjarsjóðsgjalda
Þeir fáu sem ekki hafa enn staðið að fullu skil á
álögðum gjöldum ársins 1982 og/eða eldri
gjöldum eru vinsamlegast beðnir að gera skil
sem allra fyrst. Athygli skal vakin á því að 31.
desember 1982, verða reiknaðir5%dráttarvextir
á öll vanskil til Bæjarsjóðs Dalvíkur. Á það við
um útsvör, aðstöðugjöld og fasteignagjöld.
Bæjarskrifstofan verður lokuð á aðfangadag, en
30. desember verður opið til kl. 18 og 9-12 á
gamlársdag.
Bæjarritari.
NORÐURSLÓÐ - 13